Heimsmynd - 01.07.1990, Qupperneq 85
Tveir listamenn,
Ágústa Jóhannsdóttir,
kona Ellerts Schram, Hekla Pálsdóttir, kona Björgvins
Schram yngra, og Hörður Erlingsson, maður Magdalenu
Schram.
dís Baldvinsdóttir (f.1959) lögfræðingur, nemur nú leiklist í
London, Glúmur Baldvinsson (f.1966) viðskiptafræðinemi,
Snœfríður Baldvinsdóttir (f.1968), sem hefur haslað sér völl
sem þekkt fyrirsæta, bjó fyrst í París en nú í London, og Kol-
finna Baldvinsdóttir (f.1970) nýstúdent.
KNATTSPYRNUSNILLINGUR OG RITSTJÓRI
b. Ellert Schram (f.1939) ritstjóri DV, lögfræðingur, er ann-
ar í röðinni. Hann var á sínum yngri árum einn af bestu knatt-
spyrnumönnum þjóðarinnar, margfaldur Islandsmeistari með
KR og lék marga landsleiki og var fyrirliði landsliðsins. Hann
var þekktur sem skapheitur og skapstór leikmaður. Eins og
Björgvin faðir hans tók hann einnig virkan þátt í félagsmálum
íþróttahreyfingarinnar og var formaður KSI á árunum 1973 til
1989. Þeir feðgar voru því formenn Knattspyrnusambandsins í
samtals þrjá áratugi. Ellert hefur einnig setið í stjórn Alþjóða-
knattspyrnusambandsins. Hann var skrifstofustjóri borgar-
verkfræðings á árunum 1966 til 1971 en hugur hans stefndi í
stjórnmál. Hann var formaður Sambands ungra sjálfstæðis-
manna á miklum átakaárum 1969 til 1973 og skipaði sér í raðir
Geirs Hallgrímssonar, öfugt við Gunnar G. Schram, frænda
sinn. Ellert var kjörinn þingmaður Reykjavíkur árið 1971 og
sat á þingi til 1979, Þá stóð hann upp úr öruggu sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins til að rýma fyrir Pétri Sigurðssyni sjó-
manni vegna mikillar óánægju út af því að fulltrúar verkalýðs-
félaganna fóru þá illa út úr prófkjöri. Lýsir það skaplyndi Ell-
erts nokkuð. Hann hafði verið blaðamaður á Vísi á námsárum
framhald á bls. 97
Hallgrímur Helgason, sonur Margrétar
Schram, ræðir við Valgeir Guðjónsson,
eiginmann Ástu Ragnarsdóttur.
FJÖLLISTAKONAN OG RÁÐHERRAFRÚIN
a. Bryndís Schram (f.1938) er elsta dóttirin og hana má
sannarlega kalla fjöllistakonu. Hún hefur verið dansari, leik-
ari, kennari, skólameistari, ritstjóri og fararstjóri en þekktust
er hún eflaust sem dagskrárgerðarmaður í sjónvarpi. Hún hef-
ur numið tungumál við háskóla í Frakklandi og Englandi og er
með BA-próf í ensku, frönsku og latínu frá Háskóla íslands.
Hún hóf nám í Listdansskóla Pjóðleíkhússins tólf ára gömul
og vann þar síðan sem dansari til 1970. Einnig var hún í námi
við Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og lék þar á árunum 1964
til 1970. Hún varð fegurðardrottning Islands 1957. Bryndís var
kennari í Menntaskólanum á ísafirði 1971 til 1978 og jafnframt
skólameistari um eins árs skeið meðan bóndi hennar fór í
framhaldsnám í Boston. Hún vann við dagskrárgerð hjá Sjón-
varpinu 1978 til 1983 og var þá með barnatímann og vann hug
og hjörtu jafnt barna sem fullorðinna. Hún var um tíma rit-
stjóri Tískublaðsins Líf en vann síðan við dagskrárgerð hjá
Stöð 2 um hríð og fleira. Bryndís er þekkt fyrir hispursleysi í
tali og hreinskiptni og hefur stundum verið allnokkuð umdeild
af þeim sökum. Hún lýsir sjálfri sér sem örgeðja og metnaðar-
fullri konu. Fyrir tveimur árum kom út bókin Bryndís sem lýs-
ir lífshlaupi hennar en Ólína Þorvarðardóttir, nýkjörinn borg-
arfulltrúi í Reykjavík, skráði söguna. Varð bókin metsölubók
fyrir jólin 1988. Maður Bryndísar er Jón Baldvin Hannibals-
son hagfræðingur, utanríkisráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins. Má segja að þau hjón séu einhver litríkustu og mest
áberandi hjón landsins um þessar mundir. Börn þeirra eru Al-
Björgvin Schram
og Aldís Brynjólfsdóttir vinstra megin fyrir miðju með
börnum, tengdabörnum og barnabörnum.