Heimsmynd - 01.10.1990, Side 42

Heimsmynd - 01.10.1990, Side 42
irnar bera með sér. Það var starfsfólk hárgreiðslustofunn- ar Salon VEH sem hannaði greiðsl- urnar og klippti módelin en Karl Berndsen sá um förðun. Mynd- irnar tók María Guðmundsdótt- ir.D tókst á nokkrum árum að afla sér orðstírs sem leikkona. Hún vann sinn fyrsta leiksigur. 1869 í hlutverki Zanetto í leikritinu Le Passant eftir Francois Coppées. Victor Hugo kallaði hana „gullnu röddina“ eftir að hún lék í leikritinu Ruy Blas eftir hann. En gagnrýnendur voru áfram tortryggnir. Það var ekki fyrr en Sarah Bernhard stofnaði sinn eigin leikflokk að hún lagði heiminn að fótum sér. Hún fór átta sinnum til Bandaríkjanna og lék í New York og ferðaðist allt til Ástralíu frá Suður-Ameríku. Frægust varð hún í hlutverki Kamelíufrúarinnar eftir Alexan- dre Dumas yngra. Það breytti miklu fyrir Söruh þegar hún kynntist leikritaskáldinu Victorien Sardou. Hann skrifaði mörg leikrit fyrir hana í aðalhlutverki, Fédora, La Tosca, Kleópötru og fleiri, leikstýrði sjálfur og kenndi henni að klæðast á áberandi hátt. Hún slasaði sig á sviði í Suður-Ameríku 1905 með þeim afleiðingum að það þurfti að taka af henni annan fótlegginn tíu árum síðar. I fyrri heimsstyrjöldinni lét hún bera sig í litl- um stóli þegar hún heimsótti hermennina á vígstöðvunum. Allt til dauðadags lék hún sitjandi og rétt áður en hún lést var hún fest á filmu í íbúð sinni í París, þar sem hún lést 1923, 59 ára gömul. FEGURÐ: Stutt og stílhreint HÁR, líkt og fatnaður og snyrting, ber í vetur keim af tísku sjöunda áratugarinns. Formin í hársnyrtingu eru sótt til þessa tímabils en útfærð á nýjan hátt. Stílhreinar línur eru ríkjandi en tjásulegt hár hippatímabilsins látið lönd og leið. Lína hárs- ins á annaðhvort að vera stutt eða síð í vetur. Stutt hár er þá oft klippt hátt í hnakkann en síðara að framan. Þannig er það klippt í form sem minnir á kúlu og lítur þá út fyrir að vera túberað án þess þó að vera það. Náttúrulegir brúnir lit- ir eru áberandi í vetrartískunni en gervilegir hárlitir sjást lítið sem ekkert. Mikið er jafnframt lagt upp úr því að hár- ið glansi. Sítt hár sem nær niður á mitt bak á einnig eftir að sjást mikið í vetur. Hárið er þá oft sett upp í nokkurs konar pylsu í hnakkann að sögn Elsu Haraldsdóttur hárgreiðsl- umeistara og lokkar látnir falla lausir um andlitið. Þá verður svokölluð Bardot greiðsla mjög vinsæl í vetur en þá er hárið túberað upp á hvirflinum og lokkar sömu- leiðis látnir falla um andlitið. Þessi greiðsla fer ljósu hári sérlega vel. Stflhreinar línur henta jafnt konum á öllum aldri. Þar hefur svipuð þróun átt sér stað og í fatatísku. Klassískur fatnaður höfðar nú í stöðugt meira mæli til yngri aldurshópa. Þannig má segja að tískan geri það að verkum að allir geti notað sömu föt og sömu klippingar. Á myndunum má sjá tvær klipp- ingar úr vetrarlín- unni frá Salon VEH. Grunn- tónninn í báðum er form sjöunda áratugarins en þeim má breyta mjög eins og mynd- Leikkonan Sarah Bernhardt, hin guðdómlega Sarah, La Divine Sarah, sem var viðurnefni hennar, var fædd 22. eða 23. október árið 1844 í París. Upp- runalegt nafn hennar var Henriette Rosine Bernard. Hún varð goðsögn í lifanda lífi, lék á sviði um alla Evrópu og í Bandaríkjunum og er eitt stærsta nafn í sögu leikhússins. Hún var óskilgetin. Móðir hennar Judith Van Hard var hollensk vændiskona af fínni sortinni og faðir hennar Edouard Bernard laganemi. Ju- dith treysti sér ekki til að ala dóttur sína upp og hin veikbyggða Sarah var send í klaustur. Það var elskhugi móður hennar, hálfbróðir Napó- leons III, sem leiddi hana inn á braut leiklistar- innar með því að koma henni í leiklistarskóla. Enginn kennaranna þar fékk sérstakar mætur á stúlkunni sem þótti ekki mjög hæfileikarík. Síðar komst hún að hjá Comédie-Francaise, franska þjóð- leikhúsinu, en vakti heldur ekki athygli þar. Hún var rekin þaðan 1863 fyrir að gefa eldri leikkonu, sem hafði verið ókurteis, kinnhest. í kjölfarið fylgdi tímabil þar sem Sarah efaðist um hæfileika sína. Á þessum tíma var hún ástkona Hinriks prins af Ligne og eignaðist sitt eina barn, Maurice. Árið 1866 komst hún á samning við Odeon-leikhúsið og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.