Heimsmynd - 01.10.1990, Blaðsíða 56
„Ég er ekki kona sem myndi mæta á
mannamót í æpandi kjól,“ segir
Elísabet Hilmarsdóttir, deildarstjóri
hjá Flugleiðum.
HEIMSMYND ræddi við fimm konur
sem allar hafa náð langt á vinnumark-
aðinum en jafnframt lagt sig fram um að
klæða sig persónulega og kvenlega. Þær
eru konur og þora að vera það.
Sólveig Pétursdóttir, lögfræðingur og
varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hef-
ur skorað karlaveldið á hólm í tvennum
skilningi. Hún hefur boðið krafta sína til
starfa á Alþingi sem til skamms tíma var
eitt helsta vígi karlaveldisins og hún hef-
ur hent hefðbundnu dragtinni út í hafs-
auga. „Ég hef gaman af litsterkum föt-
um, til dæmis ljósrauðu og bleiku," segir
Sólveig. „Skæra toppa, blússur og slæður
nota ég oft til að lífga upp á föt, til dæm-
is getur dökkblár bleiserjakki öðlast nýtt
líf sé hann notaður með björtum litum.
Litir gefa andlitinu ferskan blæ og geta
undirstrikað persónulegan stíl. Hluti af
sjálfstraustinu er að vera ánægður með
útlit sitt. Ég tel tvímælalaust að sjálfs-
traust skili sér í bættum vinnubrögðum.
Konur í dag vilja vera kvenlegar, smart í
vinnunni og ráða því sjálfar hvernig þær
klæða sig.“
Sólveig hefur mjög ákveðnar skoðanir
á því hvers konar klæðnaður henti henni
og segist ekki telja sig áhrifagjarna.
„Pegar ég var yngri fannst mér gaman að
því að vera í öðruvísi fötum og gerði
jafnvel talsvert af því að teikna föt og
láta sauma. I dag held ég hins vegar að
ég hugsi mest um notagildi flíkurinnar og
ég legg mikið upp úr því að þau föt sem
ég kaupi séu vönduð.“
helga Valfells hefur tengst
tískuiðnaðinum á annan
hátt en lestir því hún
vann um tíma hjá tísku-
hönnuðinum heims-
þekkta Calvin Klein í
markaðsþróunardeild
eftir að hún lauk námi í hagfræði við
Harvard háskóla. Hefur þetta haft áhrif
á hana? „Ég eltist að minnsta kosti ekki
við ákveðin vörumerki eftir að hafa séð
hvernig smurt var að óþörfu á vöruna
eingöngu vegna merkisins," segir hún.
„Yfirhöfuð má segja að ég reyni að
klæðast unglegum en jafnframt vönduð-
um fatnaði. Það getur hins vegar verið
mjög erfitt að fá slíkan fatnað hér.“
Annars segist Helga vera hálfgerður
gallagripur þegar að verslunarferðum
kemur því henni finnst langskemmtileg-
ast að kaupa sér spariföt. Óhóflegur tími
fari því oft í að skoða slíkan fatnað með-
an það að kaupa föt til daglegra nota sitji
á hakanum. Helga, sem nú vinnur sem
ráðgjafi hjá Verðbréfamarkaði íslands-
banka, lætur ekki hvarfla að sér að gefa
persónulegan stíl upp á bátinn þótt hún
hafi haslað sér völl innan bankakerfisins.
„Best líður mér alltaf þegar ég er í vönd-
uðum og fallegum fötum, þó auðvitað
geti verið gaman að fara stöku sinnum í
gallabuxur og stóra peysu.“ Aukahlutir
eru áberandi hluti af stíl Helgu. Sjálf