Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 21

Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 21
[hvað segir nóri?] að kýla sig út á kostnaö þjoöaninnar eftir Örnólf Arnason Þú ert mesta átvagl sem ég hef kynnst um dagana, segi ég við Nóra, meira að segja að meðtöldum Omari Ragnarssyni, þegar hann var upp á sitt besta og við vorum allir saman í menntó. Diskur félaga míns líkist engum matardiski heldur er hann stórt fat. Og kjötstykkið, kóti- lettan, er á þykkt við sjómannshönd og rif- beinið á lengd við framhandlegg Nóra, kjötmagnið hlýtur að vera vel á annað kíló. Gott var fæðið í Sevilla, það skal ekki vanmetið, en maturinn hér tekur öllu fram, sem ég hef áður upplifað, segir Nóri og hikar í þetta sinn ekki við að stinga horninu á þykkri og gerðarlegri hörserví- ettunni í hálsmálið á skyrtunni, eins og hann gerir gjarnan heima hjá móður sinni við Laugaveginn: Og það verð ég að játa að þótt þú sért oft dónalegur og kvikindisleg- ur við mig, er ekki frítt við að ég sé að fá eins konar matarást á þér. Þú hefðir bara átt að fá þér ket líka. Þetta er nú einu sinni síðasti kvöldverðurinn okkar hér í Madrid. Eg stend á blístri, segi ég, enda höfum við þegar fengið tvo vel útilátna rétti, álaseyði í brennheitri ólívuolíu með svört- um pipar og hvítlauk og svo íslenskan salt- fisk eldaðan af göldróttum snillingi frá Galisíu. Nóri er búinn að skera af nautakótilett- unni vænan bita sem nú hverfur upp í þennan rauðbirkna og prúðbúna, reykvíska nærfatakaupmann. Við erum staddir á veitingahúsinu Bajamar við Gran Vía í Mad- rid. Nóri tyggur, og án þess að hann gefi frá sér heyranleg nautnahljóð finn ég sæluna streyma frá honum. Loks getur hann aftur talað: Himneskt! Og dásamlegt að fá kjötbita eftir allan þennan fisk. Að honum alveg ólöstuðum, flýtir hann sér að bæta við, því að hann sér lík- lega á svipnum á mér að ég er viðkvæmur fyrir gagnrýni á fiskréttina sem ég hef verið að raða í hann og sjálfan mig. Þegar þú talar um átvögl, segir Nóri, minn- ist ég þess sem hann frændi minn, fyrrverandi ráðuneytisstjórinn, þú manst, gamli frímúrar- inn, sem kom við sögu í Kolkrabbanum, sagði við mig um daginn varðandi EES-bröltið og offorsið að keyra allt í gegn áður en þingmenn eða þjóðin nái að átta sig á því hvað raunveru- lega hangi á spýtunni. Er það þessi áttræði sem fer alltaf til Kanarí- eyja með frænku sinni að iðka jóga? spyr ég. Einmitt, segir Nóri og tyggur kótilettuna frá Avila í Gömlu-Kastilíu. Sá aldurhnigni og lúni ráðuneytisjálkur segir að allt fjasið um ávinning Evrópuþjóða af því að ganga í eina sæng með erfðafjendum sínum, grannþjóðun- um, sé ekki annað en yfirklór. Það sem knúi sameiningarstarfið gegnum ráðuneyti, sérfræð- inganefndir, stofnanir og þing sé tilhugsunin um matinn í Belgíu. Karlinn segir að þar sé besti matur í heimi, þó að ég eigi nú erfitt með að trúa því eftir spænsku kræsingarnar, og að opinberir starfsmenn og stjórnmálakurfar hvarvetna í Evrópu stefni að því að eiga notaleg elliár í Brussel á kostnað landa sinna rjátlandi við einhver skjöl um einskisverð og óskiljanleg málefni, milli þess sem þeir þamba úrval bjóra eða kneyfa eðalvín, japla á ostrum, lifrarkæf- um, sniglum, froskalöppum og maríneruðum kjötréttum með dýrindis sósum ásamt alþjóð- legri sauðahjörð kollega sinna í vælulegum samræðum um vanþakklæti þjóða sinna að sakna þeirra ekki eða taka jafnvel ekki eftir að 21 þeir hyrfu úr landi, eftir allt það firnagagn sem þeir hefðu unnið löndum sínum - og skál og meira kampavín og svo ís og ávaxtakokkteil og reikninginn og allt fært á risnu og bílstjórinn ekur þeim heim í svörtum Benz með CD- númerum að fá sér miðdegislúr áður en kokk- teil-partíin hefjast með tilheyrandi kvöldmál- tíðum á eftir. Þetta er nú eitthvað huggulegra en að spila bridds allan liðlangan daginn á göng- unum í þjónustuíbúðablokk norður á hjara veraldar. Ég gleymdi að segja þér að ég hringdi heim í morgun, segi ég, og frétti að Davíð tókst að bola Eykoni burt úr utanrík- ismálanefndinni. Björn Bjarnason hlaut 18 atkvæði í þingflokknum, Eykon ekki nema 7. Já, það líðst engum að hafa sjálfstæðar skoðanir lengur. Það hefur að vísu aldrei verið vel séð, en nú er það dauðasök, segir Nóri og smjattar á nautakjötinu: Skrýtið að bera ekki kartöflur og grænar baunir með þessu, eins og myndarskapurinn er annars mikill hér á þessum öndvegisstað. Einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem alltaf fer í fótsnyrtingu til dóttur konu sem afgreiðir í búðinni hjá mömmu, enda með kartnögl á flestum tám, sagði í fýrra- vetur, heldur Nóri áfram, að stefna og for- ysta flokksins í ríkisstjórninni nyti í raun og veru ekki stuðnings meirihluta flokks- manna eða þingmanna. Urslit atkvæða- greiðslunnar í fýrra milli Björns og Eykons um formennsku í utanríkismálanefnd bentu til þess að þingmaðurinn fótsnotri hefði rétt fýrir sér. En nú hefur Davíð greinilega styrkt stöðu sína í þingflokknum. Nema fleiri þingmenn hafi frétt af matnum í Brussel og hyggi gott til glóðarinnar. En Eykon tekur hlutverk sitt al- varlega, setur fýrir sig smámuni eins og hvort stjórnarskráin er brotin eða ekki, og er með sí- fellt múður út af EES. Hann er kominn í bull- andi ónáð. Er dóttir afgreiðslukonunnar betri í fót- snyrtingu heldur en þessi Jón frá Texas sem sér um tærnar á hertogaynjunni af Jórvík? spyr ég, enda orðinn leiður á þusi Nóra um heimspóli- tíkina á Fróni. Við félagar höfðum nefnilega um morgun- inn á gangstéttunum fýrir framan blaðasölurn- HEIMS MYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.