Heimsmynd - 01.10.1992, Síða 30

Heimsmynd - 01.10.1992, Síða 30
titrar hjálpað eiginkonunni ungu til þess að stíga fyrstu skrefin í sviðsljósinu var allt í einu kominn í aukahlutverk. Það kunni hann ekki. Þar af leiðandi eru vinsældir Díönu hluti af vandamálinu, nokkuð sem Karl ræð- ur ekki við. Sérfræðingar segja að þessi tog- streita hafi leitt til samkeppni milli þeirra hjóna eins og kom augljóslega fram í sjón- varpsþætti frá breska sjónvarpinu um Karl. Þau keppast um sviðsljósið og athyglina, á sama tíma og hann heldur stórmerkilegan fyrirlestur um verndun gamalla húsa í London talar hún fyrir fullu húsi í söfnunar- átaki fyrir eyðnisjúka. Ef til vill liggur hund- urinn þar grafinn að þau þola ekki sam- keppnina líkt og tvær stjörnur eiga oft erfitt með að rata veginn saman. Erfiðleikar hjóna eru engin nýlunda inn- an bresku konungsfjölskyldunnar. I apríl á þessu ári slitu Andrew, bróðir Karl, og Sarah Ferguson, vinkona Díönu og betur þekkt Talið erað Díana afberi ekki samband Karls við Camillu Parker Bowles og að þunglyndi hennar og sjálfsmorðstilraunirtengist sambandi þeirra beint. Þau hafa þekkst lengi og hafa alla tíð haldið nánu sambandi. Karl ber sterkar taugar til Camillu. Eftir útkomu bókar Mortons talar Daily Express um Parker Bowles sem ósköp venjulega konu enda er hún lítið spennandi í samanburði við hina stórglæsilegu Díönu. sem Fergie, samvistir. Talið er að Fergie hafi ekki þolað álagið og kröfurnar sem voru gerðar til embættis hertogynju. Skilnaður þeirra kom þjóðinni algjörlega í opna skjöldu enda höfðu þau oft sýnt opinberlega að þau væru mjög ástfangin og þess vegna hefur al- menningur velt því mikið fyrir sér hvað hafi komið fyrir. Andrew hafði oft lýst því yfir að hann hafi orðið ástfanginn af rauða síða hár- Margt í bók Mortons á sér hliðstæður í opin- berri framkomu hennar. í meintu símtali við James Gilbey í desember 1989 kvartar hún undan miklu álagi á en þann mánuð var dagskrá Díönu óvenju þétt setin. inu hennar en hún var löngu búin að láta það fjúka. Fergie þykir vel gefin og hafa margt til brunns að bera en það sama má ekki segja um Andrew. Þegar svo hann tók trúanlegar slúðursögur úr slúðurblöðum um að hún héldi við ríkan Texas-búa var það dropinn sem fyllti mælinn. Kröfurnar og hugsunar- Diana leggur mikið upp úr því að synir þeirra fái eins eðlilegt uppeldi og frekast er unnt. Þeir ganga í almenna skóla en ekki í stranga einkaskóla eins og faðir þeirra og vill Díana vera með í ráðum um allt sem tengist framtíð þeirra. hátturinn í Buckinghamhöll gengu fram af henni og hún fór. Eftir að sambúð þeirra lauk hefur Fergie gætt dætra þeirra, Beatrice fjögurra ára og Eugenie tveggja ára, og notið lífsins. Nóg til þess að nýverið settu myndir af henni topp- lausri á frönsku rívíerunni nokkrum kílóum þyngri en áður, með amerískum vini sínum, John Bryan, allt á annan endann í Bucking- ham og er nú talað um hvort nú sé mælirinn fullur í málefnum konungsfjölskyldunnar. Fergie þykir hafa beðið mikinn álitshnekki með hegðun sinni sem kemur niður á allri fjölskyldunni. Þær raddir verða háværari sem segja að drottningin eigi að víkja og The Independent skrifar að ekki sé lengur þörf fyrir konungs- fjölskylduna þar sem hún sé ekki lengur fyr- irmynd þegnanna. Elísabet II drottning er gagnrýnd sem móðir þar sem tvö barna hennar hafa skilið, fátt um fína drætti hjá Karli og Díönu og yngsti sonurinn Edward ku víst alls ekki vera í giftingarhugleiðingum. Ekki síst eru skattamál drottningar til um- fjöllunar en drottningin er undanþegin skatti (um það bil 750 milljónir íslenskra króna á ári) og er það þegnum hennar skiljanlega þyrnir í augum. Nýjasta slúðrið úr Buckingham eru fréttir af meintu símtali Díönu við áðurnefndan vin sinn James Gilbey. Þar á prinsessan að hafa talað í 23 mínútur á gamlárskvöld 1989 við þennan mann. Það var sjötugur bankamaður Cyril Reenan sem seldi slúðurblaðinu Sun HEIMS 30 MYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.