Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 71

Heimsmynd - 01.10.1992, Blaðsíða 71
fyrir flokkinn, enda á hún litríkan feril að baki eftir 26 ár í dansinum. María hóf ballettnám 12 ára gömul, en í þá daga þótti þetta, eins og hún segir sjálf, „bara böivað sprikl“. Ballettnám var þá sjálfsagt í margra augum hreint feigðarflan og lítið vit í ballett sem framtíðarstarfi. Þá var ekki einu sinni dansflokkur til staðar þar sem mætti notast við þetta „sprikl“! „Eg sé ekki eftir að velja dansinn og ég sé það alls ekki sem einhverja fórn,“ segir María ákveðin um leið og hún teygir sig eftir nýrri sígarettu. „Þetta var einhverskonar köllun,“ heldur hún áfram. „Eg veit að þetta hljómar voðalega skringilega, en ég bara varð að gera þetta. Annars hefði mér hreinlega blætt út. Ég varð að komast á svið, um það snerist málið. Ég fór í ballett til þess að verða leikkona," og hún getur ekki annað en brosað að tilhugsuninni. „Ég er elst fimm systkina og það var alltaf talað um að ég ætti að læra eitthvað skynsamlegt. Þannig að ég er óskaplega þakklát foreldrum mínum fyrir að hafa leyft mér að fara til Englands á sínum tíma þrátt fyrir að þetta þætti ekkert sniðugt.“ Sautján ára gömul hélt því María út til náms í The Royal Ballet School í Englandi og var þar í tvö ár. Reyndar var hún nú ekki hátt skrif- uð í fyrstu, enda var kunnáttan ekki upp á marga fiska í samanburði við aðra nemendur skólans. En þar sannaðist rétt eina ferðina að hugurinn ber mann hálfa leið. „Mér var sagt að það væri í rauninni of seint fyrir mig að verða dansari þar sem ég væri einu ári eldri en allir hinir og þar að auki með þeim léleg- ustu,“ rifjar María upp. „Flestir ballettdansarar eru nefnilega komnir á samning 18 ára gamlir. En ég var heppin að vera mjög liðug og svo var ég líka svo ofboðslega áhugasöm. Ég ætlaði mér að geta þetta - svo mér var gefið tækifæri og ég var fljótlega flutt upp í besta flokkinn. Astin á þessu var bara svo mikil.“ Fór grótandi af œfingum Ballettheimurinn tekur svo sem engum vettlingatökum á sínu fólki. Þar er að duga eða drepast. María komst inn í 55 manna flokk Deutche Opera í Berlín 19 ára gömul og vann sig þar úr stöðu venjulegs hóp- dansara upp í sólódansara. Eftir ótal tár og mikinn svita var litli ljóti andarunginn að verða að svani. „Fyrstu mánuðirnir voru rosalega erfiðir,“ segir María með áherslu. „Ballettmeistarinn var bandarísk kona og hún tók mig svoleiðis í gegn að það var engu líkt! Hún bara kvaldi mig fannst mér! Hún var alltaf að leiðrétta mig, fá mig til þess að gera meira og meira. Henni fannst ég vera alltof square og proper“ og María sýnir hreyfingarn- ar, „og svo átti ég gera ballanchine-æfingar með mjaðmirnar og fótleggi- na út um allt - og það er allt svo hratt. Ég var í sjokki.“ María hallar sér aftur í stólnum og hryllir sig. „Ohhh,“ segir hún af tilfinningu, „mér fannst hún ætla að gera út af við mig og ég fór off grátandi inn í búnings- herbergið.“ Eftir tvö ár var María komin með samning sem hálf-sóló- dansari með hóp og þar með búin að skjóta mörgum dansaranum ref fyrir rass. „Fyrsta stóra hlutverkið mitt var annar síamskötturinn í Þyrnirós," segir María um leið og hún leikur mjúkar hreyfingar kattarins þar sem hann þvær sér bak við eyrun. „Svo komu hlutverk sem mig var búið að dreyma um að dansa, líkt og Giselle, Svanavatnið - hlutverk sem ég bjóst aldrei við að ég fengi að dansa!” Veröld dansaranna Það er stutt í tilfinningarnar hjá Maríu, það er augljóst af tali hennar og fasi. Dansarar eiga stutta starfsævi í samanburði við okkur meðal skrif- stofujóna og -jónur. Andlegt og líkamlegt álag er gífurlegt. Samkeppnin er óvægin. Það stendur allt og fellur með líkamanum, ekkert má fara úrskeiðis, þá fer maður ekki á svið. Það er því vart að búast við öðru en að mikið rót geti komið á tilfinningar fólks. Þess fyrir utan felst svo starfið einnig í því að túlka miklar og misjafnar tilfinningar. „Já, dansarar eru alveg sérstaklega mikið tilfinningafólk,“ samþykkir Marfa, „jafnvel meira en leikarar og óperusöngvarar. Ltkaminn nennir ekkert alltaf að standa í því að vera að teygja, lyfta, halda og gera. Svo er maður oft með hræðilegar harðsperrur eða verk í ökkla... og spurningin er, er þetta góður eða slæmur verkur. Get ég unnið með þessu? Miskunnarlaus samkeppnin veldur því að dansararnir fara jafnvel sprautaðir og með bólgueyðandi lyf á svið til að verða ekki af hlutverki. Málið er einfalt, þeir sem hafa heilsuna fá að dansa. Hinir sitja hjá. Þar sem „venjulegt“ fólk myndi taka hvíld frá vinnu fegins hendi, þá er engu líkara en veröldin sé að farast ef dansari má ekki dansa í tvo daga! Off fer maður þetta bara á viljanum," segir María þar sem hún situr og rifjar upp liðna daga. „Maður vinnur sex daga vikunnar, sex til átta tíma á dag fyrir framan ballettmeistarann. Það er verið að reyna að laga það sem ekki tókst í gær, verða betri. Oft er þetta ekkert nema púl. Erfitt að læra nýjan ballett, maður er að drepast í harðsperrum, framfarir eru hægar, maður heldur ekki jafnvægi nógu lengi, eitthvert sporið gekk ekki...“ og hún heldur áfram að telja upp aragrúa atriða sem geta skipt sköpum fyrir frægð og frama dansara. „Ég var með fullkomnunarbrjálæði þegar ég var yngri og var aldrei ánægð með sýningarnar mínar. Svo var ég náttúrlega með sviðsskrekk fyrst. Það gat enginn talað við mann, maður var á taugum fyrir sýning- una, með niðurgang. .. Svo fór maður á svið og þá allt í einu fóru taugarn- ar niður í fótleggina og maður var með blautt brauð í stað fótleggja! En þetta eltist fljótlega af mér. Svo fer maður á svið ... og þar gerist eitthvað ... eitthvað yfirnáttúrulegt.” Mér verður ósjálfrátt hugsað til þess sem verður líklegast að kalla fíls- legar balletttilraunir, hér á árum áður - ég horfi enn á tærnar á mér úr fjarlægð og býst vart við að það komi til með að breytast mikið úr þessu!“ Súkkulaðikex inni í skáp? Hún er tággrönn og rauðklædd frá toppi til táar, lítur einstak- lega vel út. Hún virkar næstum í óþolandi góðu ekki annað en spurt hana hvort hún muni eftir því að borða reglulega - og hvort súkkulaðikex sé á bannlista hjá henni. „Kíktu bara inn í skáp hjá mér,“ svarar María kímin. „Ég er í mjög góðu formi og ég er ekki haldin lystarstoli. Ég þarf að hafa mikið fyrir því að halda kílóunum utan á mér - mamma er svona líka . Það er svo hröð brennsla hjá okkur. Ég þarf helst að borða tvær góðar máltíðir á dag, morgunmat og snakk á kvöldin til þess að missa ekki allt utan af mér. Ég þekkti hinsvegar vinkonur, dansara, sem máttu aðeins borða eina brauðsneið á morgnana, egg í hádeginu og salat á kvöldin ... Ég myndi missa vitiðf' Þegar svo mikið er undir líkamshreysti og aldri komið, líkt og í ballett, er virðingarvert að sjá hve lítið upptekin María virðist af slíkum hlutum. „Ég eyði yfirleitt ekki tímanum í það að vera hrædd við aldurinn. Auðvitað fær maður kast af og til er maður lítur í spegil, svona yfirleitt einu sinni í mánuði,“ segir hún með tvíræðu brosi. „Mér finnst ég heims71 MYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.