Heimsmynd - 01.10.1992, Síða 80

Heimsmynd - 01.10.1992, Síða 80
Gamla bænda- og sveitasamfélagið hefur á skömmum tíma þró- ast í iðnaðar- og borgarsamfélag. Þetta hefur haft í för með sér að í stað stórfjölskyldunnar er nú komin lítil kjarnafjölskylda, sem sinnir færri og að nokkru leyti breyttu hlutverki. Þannig hafa nú ýms- ar stofnanir í æ ríkara mæli tekið að sér að sinna hlutverkum, sem fjölskyldan sá sjálf um að sinna áður. Dæmi um þessi hlutverk eru t.d. félagsmótun og afþrey- ing. Hver fjölskylda elur nú af sér færri börn og sinnir þörfum færri einstaklinga. Orsökin er væntanlega sú, að hjónum hafa nú opnast nýir möguleikar til að hafa stjórn á barneignum, sem svo aftur hefur haft í för með sér aukna möguleika beggja hjóna til tekjuöflunar. Af því leiðir svo aftur að minni tíma er varið innan veggja heimilisins. Þannig notar nú fjölskyldan meiri tíma en áður í að afla tekna utan veggja heimilisins, meðal annars vegna aukinnar neyslu, að ekki sé nú talað um verðtryggð lán vegna hús- næðisöflunar. Með þessu er fjöl- skyldan ekki lengur samfélag um víðtæk og margbrotin hlutverk, framleiðslu og neyslu, heldur nær eingöngu samfélag um neyslu og færri hlutverk en áður. Tjáskipti milli ættliða virðast fara minnkandi, en vegna þess fara nú börn á mis við þann dýrmæta reynslu og þroskasjóð, sem hinir öldnu búa yfir. Vinnuálagið utan veggja heimilisins hefur einnig dregið úr möguleikum hjóna til að sam mótast og styrkja bönd gagnkvæms trausts. En þróunin hefur ekki einungis verið neikvæð. Valdahlutföll innan fjölskyld- unnar virðast vera að breytast og samkomulag um jafnan rétt beggja hjóna til að njóta starfs- og framatækifæra hefur styrkst. Kon- ur hafa af eðlilegum ástæðum einnig óskað eftir jafnri þátttöku- beggja aðila í heimilisstörfunum. Mikilvægi fjölskyldunnar sem mannverndarstofnunar hefur aukist, því hún er nánast eina tilfinninga- lega athvarf okkar í dag. En í því er þó ákveðin hætta fólgin. TILFINNINGARNAR EINAR þá í að sinna brýnustu skyldum heimilislífsins og sjónvarpið sér svo um að veita tilbreytingu og jafnvel skapa í hugum fólks ímyndaðar neyslu- þarfir og skjól fyrir hugrenningar um veröld handan daglegs strits og anna. Við tjáum okk- ur einfaldlega minna en áður. Við höfum ekki eða tökum okkur ekki tíma til að tala saman. Hæfileikinn til að tjá sig er lærður hæfileiki. Þeirri færni þarf að sinna. Strjál tjáskipti- leiða því til ómarkvissari tjáskipta. Og þegar við höfum misst hæfileikann til að tjá okk- ur grípum við til annars tveggja, rífumst af ótamdri heift eða þegjum í þjáningarfullri þykkju. Hér erum við komin að því at- riði, sem ég tel vera alvarlegast og skipta mestu þegar rætt er um hjónaskilnaði. LÍTIL TJÁSKIPTIGETA LEITT TIL RANGHUGMYNDA Sem prestur hika ég ekki við að fullyrða að opinská tjáning milli hjóna skipi einn veigamesta þáttinn í farsælu hjónabandi. Það er líka afar mikilvægt að fara í gegnum tilfmningar sínar í stað þess að fara framhjá þeim, tala og skiptast á skoðunum þó að það sé þjáningarfullt. Ymsar ástæður, sem tilgreindar eru þegar óskað er eftir skilnaði, til dæmis afbrýðisemi, tortryggni og ásakanir um framhjáhald, eiga oft rót sína að rekja til ranghugmynda, sem orðið hafa til vegna skorts á einlægum og heiðarlegum tjáskipt- um. Þjáningarfull tjáskipti geta verið farvegur að lausn, auk- inni samstöðu og þroska, sem svo miklu skiptir. Þannig er hægt að forðast að sólin setjist yfir reiðina. Við þurfum að vinna íyrir öllum góðum hlutum. Góð sambúð krefst álags, en álagið skilar sér í aukinni dýpt og tryggð. Álagið er að vissu leyti eins og það þolpróf, sem málmar stórra úthafsskipa þurfa að standast áður en skip- ið leggur til atlögu við öldur hafsins á vit áfangastaða í fjarska. SÖNN ÁST SPYR EKKIUM ENDURGJALD Annað atriði skiptir líka miklu máli: Að elska er ákvörðun. Sönn ást er ást, sem ekki spyr um endurgjald. Sönn ást er fórnandi ást. Ef við hefjum sambúð með annað í huga er næsta víst, að reynslan tekur í hnakkadrambið á okkur einn góðviðrisdaginn. Um leið og við höfum ákveðið að við ætlum að elska erum við því að taka ákvörðun um að við ætlum að lifa fyrir maka okkar, reyna að fyrirgefa á grundvelli skilnings á aðstæðum og byggja upp sameiginlega hamingju og gleði, en ekki sjálfhverfa og eigingjarna lífsnautn. Takmark hjónabandsins ætti þannig að vera að sameinast og verða ein manneskja. Reynslan sannar að slíkt markmið leiðir til varanlegrar og sannrar lífsfýllingar. Þegar hjónabandið snýst nær eingöngu um gagnkvæmar tilfinningar og ást reynir sannarlega á þol og úthald. Hjónaband sem byggir ein- göngu á tilfinningum er jafn fallvalt og tilfinningar eru í eðli sínu. Með þessu er ég ekki að halda því fram að ást og hlýjar tilfinningar séu gagns- lausar. Þær eru að sjálfsögðu hvati, sem miklu veldur þegar ákvörðun um hjúskap er tekin. Annað atriði, sem fyrrgreind þróun fjölskyldunn- ar hefur leitt af sér er að tími til innilegra tjáskipta og sameiginlegs átaks í önnum daganna hefur farið þverrandi. Sá litli tími, sem aflögu er, fer SMÁLYGAR VERBA AG VEGG Uppsafnaðar smálygar verða oft að vegg, sem örðugt getur verið að brjóta niður. Þær skapa ástand, sem iðulega leiðir til skilnaðar. Smályg- ar geta einmitt átt rót sína að rekja til vanhæfni til tjáskipta. Þó er oftast HEIMS 80 MYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.