Heimsmynd - 01.10.1992, Page 81

Heimsmynd - 01.10.1992, Page 81
ástæða til að athuga vel hvort aðrar undirliggjandi ástæður geta verið til staðar, til dæmis óhófleg áfengisneysla eða jafnvel tvöfalt líf af einhverri gerð. Þegar um uppsafnaðar smálygar er að ræða getur líka verið að hinn aðilinn þurfi að skoða vel sín eigin viðbrögð og andsvör gagnvart maka sínum. Það getur einfaldlega verið að reynslan hafi kennt viðkomandi að ekki sé óhætt að segja satt, alltaf sé tekið með grimmd og óvægni á öllum málum. ÞE6AR ALLT VERBUR EINNOTA Þeirri hyggju virðist vaxa ásmegin að alit sé einnota. Auglýsingar og ýmsar glansmyndir kvikmynda og fjölmiðla geta komið þeirri hugmynd inn hjá fólki hægt og sígandi að við eigum að njóta og henda, kaupa aft- ur, njóta og henda. Eg er þeirrar skoðunar að þessi afskræmda mynd af raunveruleikanum hafi gert mörgum hjónaböndum mjög illt. Þau hjónabönd, sem ekki byggja á þeirri lífsnautn, sem innihaldsríkar sam- verustundir gefa, eru sérlega útsett fyrir þessum vágesti. Ef við höfum ekki tíma til að tala saman og vera saman í gleði og sorg látum við því miður oft glepjast af því, að láta slíkar ímyndir ná tökum á okkur. Við segjum þá við sjálf okkur, ef til vill ómeðvitað, að best sé að henda maka okkar, fá nýjan maka og njóta hans. Árangurinn verður óhamimgja og þroskavana og bernskur hugur. A EG Afi SKILJA? Margar rannsóknir benda til þess að hjónabandið þurfi að vera mjög slæmt til að hjóna- skilnaður sé betri kostur en að leita sátta og fá aðstoð við úrlausn mála. Prestum bregður oft þegar hjón, sem skilin hafa verið að borði og sæng, koma eftir eitt ár til að sækja lögskilnað- arvottorð og sjá eftir að hafa sótt um skilnað. Oft er þá of seint að grípa í taumana. Fólk kemst fljótt að því, að það fylgir því líka mikið álag að byggja upp nýtt samband og undantekn- ingarlítið er skilnað- urinn efnahags- legt áfall. Sumir sérfræðingar að börn komi oft betur út úr ólgumiklu fjölskyldulífi en brot- inni fjölskyldu. Flestum ber saman um að hjón í skilnaðarhugleið- ingum leiti of seint til hjálp- araðila. Prestar ná vissulega stundum nokkrum árangri við sáttatilraunir sínar, en reynslan sýnir að grípa hefði þurft í taumana mun fyrr. Oft fer fólk ekki til prestsins fyrr en hin raun- verulega ákvörðun hefur verið tekin. Ég tel að mörgum hjónaböndum væri hægt að ef leitað væri til prests þegar verulegs að gæta. Fólk ætti líka að notfæra sér námskeið og samverustundir, sem í boði eru, til að læra hvað hægt er að gera að byggja upp farsæl hjónabönd. Prestar geta líka skorið úr um hvort ástand hjónabands er svo slæmt, að leita þurfi sálfræðilegrar aðstoðar. En það er líka mikilvægt fyrir alla aðila, í skilnaðarhugleiðingum og einnig hina sem ekki búa við veruleg hjúskaparvandamál, að taka ákvörðun um að gefa sér tíma til innihaldsríkra samveru- stunda. Slíkar stundir leiða til betri sam- búðar og geta átt sinn þátt í að gefa börnunum heilnæma mynd af því, hvað það er að vera manneskja í samfélagi við aðra manneskju. Atferli okkar og viðbrögð í lífsstríð- inu ráðast nefnilega að miklu leyti af þeirri foskrift, sem við nemum í æsku.B HEIMS 81 MYND

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.