Litli Bergþór - dec 2017, Qupperneq 7
Litli-Bergþór 7
hlýtur að vera mikilvægast að einbeita sér að því sem sameinar, frekar en deila stanslaust
um það sem við erum ósammála um. Ef þarf að semja um það sem ágreiningur er um, verða
allir að gefa eftir. Síðan er að beita skynseminni þegar ekki er lengra náð í bili. Þannig geta
vonandi flestir unnið saman. Skítkast á ekki að líðast, hvorki gagnvart einstaklingum, né
heilu flokkunum, þar sem t.d. allir eru settir undir sama hatt
sem sitja á þingi fyrir ákveðinn flokk. Það elur á sárindum og
virðingarleysi gagnvart skoðunum andstæðinganna.
Á góðu þingi þurfa að vera fulltrúar allra hópa í réttu hlutfalli
við fjölda fólks í hverjum hóp í samfélaginu. Fjöldi kvenna
sá sami og karla og minnihlutahópar þurfa líka að eiga sína
fulltrúa. Það hlutfall er á ábyrgð okkar kjósenda og þeirra
sem bjóða sig fram. Fulltrúarnir þurfa að hafa samráð við
þá sem eiga hagsmuna að gæta og leita málamiðlana milli
andstæðra skoðana. Og – enn og aftur, - það er eðlilegt að
hafa mismunandi skoðanir, flestir hafa eitthvað til síns máls.
Þetta krefst kunnáttu í rökræðum og vilja til að hlusta á rök
annarra og kjark til að skipta um skoðun ef fram koma betri
rök í málinu. Þeir sem með valdið fara verða svo alltaf að hafa
hugfast að peningar og völd eru vandmeðfarinn kokteill, sem
geta leitt til græðgi og spillingar. Látum það ekki henda okkur
aftur!
GS
„Kokteill“
það er víst
eitthvað sem fer um
kokið, en ... „teill“ setur
mig á gat.
Raflagnir - Viðgerðir
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
Tökum að okkur nýlagnir, hönnun raflagna
og alla almenna rafvirkjavinnu
ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að
við sækjum um öll leyfi fyrir heim-
taug að sumarhúsum og lagningu
raflagna
Heimasími: 486 8845
Verkstæði: 486 8984
GSM: 893 7101
Gleðileg jól