Litli Bergþór - Dec 2017, Page 15
Litli-Bergþór 15
Árangur: Nú í lok október hef ég tekið eftir að
þemavinnan hefur komið fram í leik barnanna og
myndverkum þeirra. Dæmi: Nokkur börn hafa
tínt laufblöð í vettlinginn sinn í von um að þau
breyttust í gullpeninga og skilst mér að hjá einu
barni hafi það jafnvel tekist, það fann pening
sem líklega var lauf áður.
Börnin hafa teiknað í frjálsum tíma Bergþór,
hellinn hans, laufið í vettlingnum, stafinn hans
og annað sem tengist sögu hans. Ég hef jafnvel
séð teikningar í útitíma, í sandinum, hjá sumum
börnum.
Næst munum við vinna með jarðleir og verður
gaman að sjá útkomuna úr þeirri vinnu. Þannig
heldur vinnan áfram með börnunum.
Markmiðið er að vekja forvitni þeirra ásamt
því að kynna fyrir þeim sögu og menningu úr
sveitinni þeirra.
Þar sem ég hef nú flutt úr sveitinni og mun hætta
að vinna í Álfaborg um áramótin, langar mig að
þakka fyrir mig og þau forréttindi að hafa fengið
að vinna með börnunum ykkar síðustu 24 ár.
Horft til Bláfells.
Torfi, Hildur Inga, Kristbjörg.
Aðalbjörg, Þórður, Torfi, Ásgerður.
Leikskólinn hefur verið mér mjög mikilvægur og
hef ég lært mikið af því að vinna með öll börn
sem ég hef kynnst í starfi mínu. Þar hef ég fengið
útrás fyrir þörfina fyrir að segja sögur, syngja,
leika og stunda listsköpun og fyrir það er ég
þakklát.
Við sjáumst þó síðar verði, kveðja, Sigrún Elfa.
Ungmennafélag Biskupstungna
sendir félögum sínum bestu
óskir um gleðileg jól og farsælt
komandi ár og þakkar öllum
þeim sem styrkja útgáfu
Litla-Bergþórs.