Litli Bergþór - Dec 2017, Page 22
22 Litli-Bergþór
Að lokum
Við höfum átt mörg högg á golfvöllum bæði
innanlands og utan, stundum verið alsæl með
spilamennskuna, en dálítið oft smá spæld. Þetta
er skemmtilegt og einfalt áhugamál, lítið um að
fólk slasi sig og svo er voða notalegt á haustin að
taka settið og ganga frá því út í bílskúr. Þar bíður
það eftir næsta sumri, eða mögulega skemmtilegri
golfferð. Að arka 9 eða 18 holur á golfvelli er
frábær hreyfing og getum við mælt með henni
fyrir alla sem vilja gera eitthvað gott fyrir sál og
líkama.
Hjördís Björnsdóttir, Úthlíð er með 22 í forgjöf, spilar tvisvar til þrisvar
sinnum í viku frá 20. maí til 15. september. Mesta gleðin í golfinu er
að ná hring í góðu sumarveðri á Íslandi með skemmtilegu fólki.
Nokkrar staðreyndir um golf:
● Golf er eins og nóló – þú átt að
komast í holuna á sem fæstum
höggum.
● Það er ótrúlega óþægilegt að halda
um kylfuna svo að rétt sé haldið.
● Hvíta kúlan er kölluð bolti
● Það kallast að slá boltann,
margir segja skjóta kúlum.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár.
upplýsingar og borðApantanir
í 486 1110 eða 896 6450