Litli Bergþór - dec 2017, Qupperneq 23
Litli-Bergþór 23
Á Lambadal eru 19 börn 1-2 ára. Í haust byrjuðu 8
ný börn hjá okkur og hefur aðlögun þeirra gengið
vel. Við leggjum áherslu á að börnin læri að vera
góð hvert við annað og sýna tillitsemi. Þau eru að
æfa sig að fara í röð. Þau halda í „stélið“ á hvert
öðru og mynda lest og auðvitað heyrist lestarhljóð
í þeim þegar þau ganga eftir ganginum. Oft má sjá
kennara og nemendur grunnskólans horfa á eftir
þessum krúttum með aðdáun í augum. Þau lífga
svo sannarlega upp á tilveruna þessir gullmolar.
Í samveru eiga börnin sitt sæti og er það liður í
að skapa festu og öryggi hjá þeim. Á hverjum
morgni kl. 9 eru hópatímar hjá 2ja ára börnunum
s.s. tónlist, hreyfing, myndlist og málörvun. Í
tónlistartímum fá þau að prófa hin ýmsu hljóðfæri,
hlusta á tónlist, syngja og dansa. Í hreyfistundum
er farið í hreyfileiki t.d. Höfuð, herðar, hné og tær,
þrautabraut og annað skemmtilegt. Yngri börnin
eru mikið í „könnunarleik“. Það er leikur með
verðlaust efni, s.s. perlufestar, keðjur, allskyns
ílát, hólkar, lyklar og annað sem til fellur frá
heimilum. Hugmyndin að „könnunarleiknum“
eða „Heuristic play with objects“ er að uppgötva
eða öðlast skilning. Ef þið eigið verðlaust efni
sem þið viljið leyfa okkur að fá, þá þiggjum við
það með þökkum.
Einu sinni í viku er „Lubbastund“ en það er
málörvunarverkefni eftir talmeinafræðingana
Þóru Másdóttur og Eyrúnu Ísfold Gísladóttur,
sem ber heitið „Lubbi finnur málbein“.
Ekki má gleyma myndlistinni, en þá prófa þau
ýmsan efnivið. Aðalatriðið er að það sé gaman og
að við skemmtum okkur vel í leikskólanum. Við
leyfum myndunum að tala sínu máli.
Kær kveðja frá kennurum á Lambadal.
Lambadalur
í Leikskólanum Álfaborg
Áki Hlynur, Agnes, Hallgrímur og Ólafur í lestarleik.
Eyrún Ósk les með Fjólu Lind, Antoníu Elínu,
Kristínu Kötlu og Guðmundi Alexander.
Guðmundur Alex og Kristín Katla að dást að útsýninu. Jan, Ólafur og Þóra á fullu í hreyfileik.