Litli Bergþór - des. 2017, Síða 42
42 Litli-Bergþór
hvort hún kæmist klakklaust af stað. Og þegar
hún þurfti að skreppa í bæinn, fór hún með
skjaldbökurnar sínar í pössun í Hveragerði og
tók svo rútu í bæinn, því hún keyrði ekki upp
Kambana, sem þá var brattur og hlykkjóttur
malarvegur.
Ásdís var 22 ára þegar hún kom að Árbakka
1957, Bryndís dóttir okkar fæddist 22. júlí 1959
L-B: Segðu mér frá fjölskylduhögum þínum.
Róbert: Kona mín hét Ásdís Sveinsdóttir frá
Bjarnargili í Fljótum og ég kynntist henni þegar
hún var að vinna hjá þeim systkinum Jakobi,
Þorsteini og Maríu Thorsteinsson í gróðrarstöðinni
Árbakka sumrin 1957 og 1958. Ég man að ég lá á
rúminu mínu í kjallaranum hjá Grími, þegar María
á Árbakka birtist þar með Ásdísi til að kynna hana!
Hún kom með vinkonu sinni frá Minni-Reykjum
í Fljótum, en systur þessarar vinkonu höfðu áður
verið í vinnu hjá Stefáni. Það var alltaf margt fólk
í vinnu á Syðri-Reykjum á þessum árum, hálfgerð
verbúðarstemning. Ég var þá að keyra grænmetið.
Það var Jakob sem rak stöðina á Árbakka, en þau
systkinin voru ættuð frá Ísafirði. Jakob hafði
upphaflega komið suður til að hlaða áveitugarða
vegna Flóaáveitunnar, en kom síðar að Syðri-
Reykjum og stofnaði þessa gróðrarstöð um 1950.
Ræktaði þar tómata í gróðurhúsunum fjórum og
grænmeti, kál, gulrætur o.fl., utanhúss. Þorsteinn
var vélstjóri, en
María var heimskona,
skjalaþýðandi og
hafði farið til útlanda.
Hún átti skjaldbökur,
sem mörgum eru
minnisstæðar. Eftir
að þeir bræður hennar
dóu 1966 og 1967,
tók María bílpróf, þá
um sjötugt. Átti ýmist
Trabant eða Moskvits
og gekk á ýmsu með
aksturinn. Fylgdust
sumir spenntir með
Reisugilli á Brún í ágúst 1959. Vinstra megin sést að Árbakka, næst
á myndinni er elsta gróðurhúsið með pökkunarskúrnum í endanum,
síðan litla gróðurhúsið við íbúðarhúsið, en í því var margt framandi, s.s.
vínberjatré og fíkjutré og margs konar blóm. Byggingin sem er samföst
litla gróðurhúsinu, er íbúðarhúsið sem Jakob byggði í upphafi og bjó í
fyrsta áratuginn, áður en að stóra íbúðarhúsið var byggt um 1960.
Húsið á Brún um 1990. Ásdís hafði græna fingur þegar kom að trjárækt
og lagði alúð í að rækta fallegan garð í kringum húsið.
Ásdís Sveinsdóttir um það leytið
sem hún kemur að Árbakka 1957.