Litli Bergþór - des. 2017, Blaðsíða 48
48 Litli-Bergþór
„samgönguleiðirnar ekki vera í sæmilegu
lagi“ og tiltóku þar sérstaklega brúna á Hvítá
hjá Iðu, sem ekkert hefði verið unnið við í heilt
ár.
1955
Í júlíbyrjun sagði svo í Alþýðublaðinu:
Unnið að brúarsmíði hjá Iðu. Öll vinna
við hana lá niðri síðastliðið sumar.
Innan skamms munu hefjast framkvæmdir
við brúargerð á Hvítá hjá Iðu. Sú brú mun
tengja saman þjóðvegina í Biskupstungum
og á Skeiðum og verður hún mesta
samgöngubót fyrir Suðurland. — Vegamót
í Biskupstungum verða við Brúará, liggur
vegurinn síðan í túnfæti í Skálholti og
niður í Laugarás. Áður var heimreið
að Skálholti úr suðri og er sú aðkoma
stórum fegri, sem hin nýja brú hjá Iðu
skapar skilyrði til. Í hitteðfyrra var hafizt
handa um þessar framkvæmdir og reistur annar stöpullinn. Í fyrra lá hins vegar verkið niðri vegna
verkfræðingaverkfallsins. En nú í sumar er áætlað að reisa hinn stöpulinn og sökku, og standa vonir
til að hægt verði að Ijúka verkinu annað sumar, 1956.
Árið 1955 var ár hinna miklu brúasmíða en þá var meðal annars unnið að þrem stórbrúm sem voru yfir
100 metrar. Þetta voru, auk Iðubrúarinnar (109 m), brú yfir Skjálfandafljót hjá Stóruvöllum í Bárðardal
(113 m) og Hofsá í Álftafirði S.-Múlasýslu (118 m). Þetta sumar voru 14 brúarvinnuflokkar að störfum
vítt og breitt um landið.
Í fjölmiðlum var greint frá því að brúarsmíðinni hjá Iðu ætti að verða lokið sumarið 1956, en það átti
ekki eftir að verða. Stór ástæða fyrir þeirri ætlan að ljúka brúarsmíðinni fyrri hluta sumars 1956, var
Skálholtshátíðin. Mun nefndin sem fór fyrir endurreisn Skálholtsstaðar og undirbjó Skálholtshátíðina
hafa lagt mikla áherslu á að svo gæti orðið. Í Þjóðviljanum í maí er þetta haft eftir formanni nefndarinnar:
Er nefndin á sínum tíma hafði heildarathugun Skálholtsmála með höndum sumarið 1954, skoraði
hún á stjórnarvöld að flýta lagningu háspennulínu til Skálholts, og er það verk nú mjög langt á veg
komið. Ennfremur skoraði hún á stjórnarvöld, að brúin á Hvítá hjá Iðu væri fullgerð fyrri hluta
sumars 1956 vegna hinnar miklu umferðar er þá má vænta. Þetta hefur ekki tekizt og er mjög bagalegt
vegna hátíðarinnar, þar sem umferðarmálin verða þann dag ákaflega örðug, er ógerlegt að koma
á ákveðnum einstefnuakstri. Hins vegar
liggja til þeirrar tafar margar orsakir og er
ekki á færi byggingarnefndar Skálholts að
bæta úr þeim.
1956
Í Morgublaðinu þann 12. ágúst er greint frá því
að ekki verði af því að brúarsmíðinni ljúki eins
og að hafði verið stefnt:
FULLGERÐ NÆSTA ÁR
Í fyrrahaust var lokið við að steypa turnana
beggja vegna og þannig standa þeir í dag.
Síðan hefur ekkert verið að frekari smíðum
unnið, en nú er að því unnið að efniskaup
fari fram í vetur og það komi hingað fyrripart
sumars næsta ár og verði þá tekið á ný til
starfa við að fullgera brúna.
Gjaldeyrisvandræðin hafa valdið því að
Strengirnir komu á stórum keflum. Líklegt talið að lengst til hægri sé Haukur
Einarsson og næst honum Páll Helgason. Hinir tveir bíða greiningar.
Mynd frá Vegagerðinni
Hér má sjá hvernig strengirnir voru festir við mjórri línu og hún síðan notuð
við að draga þá milli stöpla. Mynd frá Vegagerðinni