Litli Bergþór - des. 2017, Blaðsíða 50
50 Litli-Bergþór
Laugarási og flest hefði reyndar orðið með
öðrum hætti, ekki síst almennar samgöngur
um efri hluta Árnessýslu.
Þar til nýja brúin á Hvítá hjá Bræðratungu var
opnuð, var Hvítárbrúin hjá Iðu auðvitað enn
mikilvægari en hún er nú.
Myndirnar sem eru hluti af umfjölluninni
eru allar frá Vegagerðinni, nema sú fyrsta
og sú síðasta, en þær eru úr fórum ábúenda
á Iðu.
Sérstakar þakkir flyt ég þeim Marinó Þ.
Guðmundssyni og Hilmari Ingólfssyni fyrir
að hjálpa til við að nafngreina þá einstaklinga
sem sjá má á myndunum. Þeir störfuðu
báðir við lokaáfanga brúarbyggingarinnar
og ég vona að þeir segi mér skemmtilegar
sögur frá þessum tíma, sem síðan munu
birtast í næsta blaði, eða blöðum.
Yfirlitsmynd þegar brúarsmíðinni er lokið og búið að ganga frá veginum beggja vegna. Mynd frá Vegagerðinni.
Vorið 1958 var brúin burðarþolsprófuð og glöggt má sjá á sveigju brúargólfsins
að þarna var um að ræða umtalsvert hlass. Nánari upplýsingar um prófunina
er að finna í lok greinarinnar. Mynd frá Vegagerðinni
Íbúar í Laugarási og á Iðu hafa ákveðið að minnast 60 ára afmælis brúarinnar með því að
opna hana formlega með táknrænum hætti þann 9. desember. Þá verða einnig tendruð ný ljós
á brúnni.
Þó svo þessi samantekt hafi verið sú síðari af tveim um Hvítárbrúna, er ljóst að ýmislegt er enn
ósagt og að því er stefnt að frekari umfjöllun um mál sem tengjast Iðuferju og brúnni verði
birt í næstu blöðum. Þá er fyrirhugað að fjalla um síðustu ferjumennina, og ræða við nokkra
starfsmenn sem unnu við bygginguna og sem enn eru til frásagnar.