Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Page 33
1924
Axel Svanberg Þórðarson. Sat SVS 1923—
21f. F. 21. 12. 1904 á Húsavík, uppalinn í
Reykjavík. For.: Þórður Ingvarsson, f. 16.
5. 1865 að Litladal í Svínavatnshreppi, A,-
Húnavatnssýslu, söðlasmiður á Húsavík og
síðar í Reykjavík og Borgarnesi, d. 1. 12.
1927, og Jónína Þorsteinsdóttir, f. 8. 1.
1874 á Grýtubakka í Höfðahverfi, d. 16.10.
1938. Maki 1. 6. 1935: Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir, f. 29. 10. 1911 að Útgörðum
á Stokkseyri, d. 20. 11. 1971. Barn: Guðjón,
f. 21.10.1935, prófessor við tannlæknadeild
Háskóla Islands. — Tók kennarapróf eftir
tveggja ára nám, 1933. Vann ýmis störf
1924—31, kennari við Barnaskólann á
Stokkseyri 1933—46. Var jafnframt sím-
stöðvarstjóri og póstafgreiðslumaður á
Stokkseyri 1933—46. Starfsmaður hjá Raf-
veitu Rvíkur 1946—53. Kennari við Mið-
bæjarbarnaskólann í Rvík 1953—1969, er
skólinn var lagður niður. Kennari við Aust-
urbæjarskólann í Rvík 1969—74. Var í
skólanefnd og fleiri nefndum á Stokkseyri,
í stjórn Umf. Stokkseyrar um tíma. Um
nokkurra ára skeið æðsti templar í Góð-
templarastúku á Stokkseyri. Var í stjórn
Kennarafélags Miðbæjarskólans í mörg ár,
einnig formaður Bókasafns Miðbæjarskól-
ans, auk fleiri starfa. Aðrar heimildir:
Kennaratal á Islandi, Saga Stokkseyrar.
29