Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1979, Page 167
Tryggvi Guðmundsson. Sat SVS 1972—7Jf.
F. 3. 6. 1953 að Akurgerði í Hrunamanna-
hreppi, Árnessýslu og uppalinn þar. For.:
Guðmundur Sigurdórsson, f. 5. 9. 1921 að
Götu í Hrunamannahreppi, bifreiðarstj. í
Hrunamannahreppi, og Hrefna Ólafsdóttir,
f. 30. 10. 1927 að Geldingarholti í Gnúp-
verjahreppi, Árnessýslu, húsmóðir. Maki
25. 11. 1977: Anna Brynjólfsdóttir, f. 18. 7.
1952 að Dalbæ í Hrunamannahreppi. —
Stundaði nám við Héraðsskólann að Skóg-
um og Gagnfræðaskóla Selfoss. Hóf störf
1974 sem hótelstjóri við sumarhótelið að
Flúðum í Árnessýslu og starfaði þar til
1978, starfaði á vetrum á Skattstofu Rvík-
ur. Hefur frá hausti 1978 unnið hjá Ferða-
skrifstofu ríkisins í Reykjavík.
Þorgrímur Aðalgeirsson. Sat SVS 1972—71}.
F. 24. 5. 1952 á Húsavík og uppalinn þar.
For.: Aðalgeir Þorgrímsson, f. 9. 2. 1923
að Syðri-Skál í Ljósavatnshreppi, S.-Þing.,
verkstjóri hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur
hf., og Ásta Frímannsdóttir, f. 25. 3. 1921
að Efstalandi í öxnadal, Eyjafjarðarsýslu,
húsmóðir. Maki 4. 9. 1976: Júlíana Dagmar
Erlingsdóttir, f. 17. 6. 1956 í Grindavík,
læknaritari við Heilsugæslustöð Húsavíkur.
— Lauk 4. bekk Gagnfræðaskóla Húsavíkur
vorið 1969. Starfaði áður hjá Fiskiðjusam-
lagi Húsavíkur hf. við fiskvinnslu og einnig
lítillega verið til sjós. Hóf 1970 störf hjá
útibúi Landsbanka Islands á Húsavík og
unnið þar síðan.
163