Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 8
8 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
Hver eru vandamálin?
Einstaklingar sem koma til ráðgjafa
VIRK kljást við fjölbreytt vandamál sem
krefjast ólíkrar nálgunar og mismunandi
úrræða. Langflestir glíma við alvarlegan
heilsubrest og hafa verið í sambandi
við lækna eða aðra meðferðaraðila. Stór
hópur er með heilsubrest af andlegum
toga og einnig eru stoðkerfisvandamál
nokkuð algeng. Þessar tvær ástæður
skertrar starfsgetu eru algengastar hjá
einstaklingum sem koma til ráðgjafa
VIRK. Aðrar tegundir heilsubrests eru
einnig algengar s.s. ýmsar afleiðingar
slysa, krabbamein og hjarta- og æða-
sjúkdómar.
Yfir 60% allra einstaklinga sem hafa
komið til ráðgjafa VIRK fannst starfið sem
þeir gegndu síðast vera líkamlega erfitt
og um helmingi fannst það vera andlega
erfitt. Um þriðjungur allra einstaklinga hjá
ráðgjöfum VIRK hefur áhyggjur af því að
heilsufar þeirra versni við endurkomu til
vinnu. Þessar tölur gefa okkur ákveðnar
vísbendingar um mikilvægi þess að vinna
betur með stjórnendum í atvinnulífinu og
atvinnurekendum til að ná betri árangri í
starfsendurhæfingu hér á landi.
Hvert fara einstaklingarnir?
Í byrjun febrúar 2011 höfðu 428
einstaklingar lokið þjónustu frá VIRK.
Flestir þeirra fóru á vinnumarkað þegar
þeir höfðu lokið starfsendurhæfingu
hjá ráðgjafa. Þannig voru 74% þeirra
einstaklinga sem luku starfsendurhæf-
ingu hjá VIRK í launaðri vinnu, virkri
atvinnuleit eða í lánshæfu námi á þeim
tíma sem þjónustunni lauk. Nánari
upplýsingar um framfærslustöðu þessa
hóps við lok þjónustu er að finna á
mynd 4.
Eins og áður hefur komið fram voru um
9% á örorkulífeyri við komu til VIRK og um
8% á endurhæfingarlífeyri. Þetta eru ekki
nauðsynlega sömu einstaklingar og þau
19% sem hafa lokið starfsendurhæfingu
hjá VIRK og hafa farið á örorkulífeyri.
Flestir þeirra einstaklinga sem fóru á
örorkulífeyri við lok þjónustu hjá VIRK
voru mjög alvarlega veikir við komu til
ráðgjafa þannig að þeir fengu eingöngu
ráðgjöf við að fóta sig áfram í kerfinu
s.s. upplýsingar um réttindi og aðstoð
vegna umsóknar um örorkulífeyri en
ekki aðkeypt starfsendurhæfingarúrræði.
Þannig hafa aðkeypt úrræði eingöngu
verið keypt fyrir um 20% af þessum hópi
því fyrirséð var strax við komu til ráðgjafa
að þessir einstaklingar færu ekki aftur á
vinnumarkað og hefðu því ekki þörf fyrir
slík úrræði.
Það skiptir miklu máli hver staða ein-
staklinganna er sem koma til ráðgjafa
VIRK. Bestur árangur næst hjá þeim
sem enn hafa vinnusamband við komu
til ráðgjafa. Langflestir þeirra sem eru í
vinnusambandi við komu til ráðgjafa hafa
vinnugetu við lok þjónustu hjá ráðgjafa
eða um 90%. Því er ákaflega mikilvægt
að koma sem allra fyrst að málum með
þjónustu á sviði starfsendurhæfingar
þegar einstaklingar missa vinnugetu
vegna veikinda eða slysa. Að þessu vinna
ráðgjafar VIRK markvisst í samstarfi við
atvinnurekendur og sjúkrasjóði um allt
land. Í töflu 2 má sjá nánari upplýsingar
um hlutfall þeirra einstaklinga sem hafa
útskrifast með vinnugetu miðað við
mismunandi framfærslustöðu þegar þeir
komu inn í þjónustu til ráðgjafa VIRK:
Hafa ber í huga, þegar þessar tölur eru
skoðaðar, að flestir sem koma til VIRK
hafa glímt við heilsubrest af alvarlegum
toga og verið nokkuð lengi frá vinnu
Framfærslustaða eintaklinga í lok þjónustu hjá VIRK
Mynd 4
Laun á vinnumarkaði
Endurhæfingarlífeyrir
Atvinnuleysisbætur
Námslán
Örorkulífeyrir
Annað
19%
19%
6%
53%
4%
2%