Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 10
10 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
og hefur m.a. verið litið til þess
sem gert hefur verið og gefist vel í
nágrannalöndum okkar. Þar á meðal má
nefna vinnuprófanir í atvinnulífinu þar
sem einstaklingar fá tækifæri til að prófa
starfsgetu sína í raunverulegum störf-
um með tímabundinni reynsluráðningu,
án þess að um sé að ræða formlega
ráðningu. Er þetta gert undir handleiðslu
leiðbeinenda eða n.k. „mentora“ hjá
fyrirtækjum og stofnunum sem hafa það
hlutverk að leiðbeina og halda utan um
einstaklinga á meðan á vinnuprófuninni
stendur. VIRK vill gjarnan ná samstarfi við
utanaðkomandi aðila um uppbyggingu á
úrræðum sem þessum og hafa fagaðilar
t.d. möguleika á að sækja um styrki til
VIRK til þróunarverkefna á þessu sviði.
Hjá VIRK hefur þekkingar einnig verið
aflað á sviði fjarvistarstjórnunar og
farsællar endurkomu til starfa eftir
veikindi og slys. Sérfræðingar VIRK
hafa síðan miðlað þessari þekkingu til
starfsmanna og stjórnenda í atvinnulífinu
m.a. með fyrirlestrum og námskeiðum.
Námskeið hafa verið haldin fyrir
stjórnendur m.a. í samstarfi við Samtök
atvinnulífsins, Samtök sveitarfélaga og
einstök sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir.
Fjöldi fyrirlestra hafa einnig verið haldnir
fyrir stofnanir og fyrirtæki eftir óskum
og aðstæðum. Á heimasíðu VIRK er að
finna fræðsluefni og leiðbeiningar í þessa
veru. Nefna má greinar, ýmiskonar
fræðsluefni og bæklinga um fjarvistir og
fjarvistarstefnu, leiðbeiningar um mótun
fjarvistarstefnu, dæmi um fjarvistarsamtal
á vinnustað og margt fleira, sem sjá má
á: http://virk.is/page/fraedsla/.
Samstarf við lífeyrissjóði
Á fyrsta og öðru starfsári VIRK hefur
meginaáhersla verið lögð á samstarf
við atvinnurekendur og sjúkrasjóði með
það að markmiði að ná til einstaklinga
snemma í veikindaferli og koma í veg fyrir
að ráðningarsamband einstaklinga rofni í
kjölfar veikinda og slysa. Það er hins vegar
ljóst að samstarf VIRK við lífeyrissjóði um
allt land mun aukast á næstu árum og
það samstarf þarf að þróa og byggja upp.
Vinna við undirbúning þessa er hafin og
nú þegar hafa verið haldnir 2 fjölmennir
fræðslu- og vinnufundir með fulltrúum
lífeyrissjóða um allt land þar sem farið
var yfir verkefni og hlutverk VIRK og rætt
um hvernig best sé að haga samstarfi
VIRK og lífeyrissjóðanna til framtíðar.
Í stjórn VIRK hefur einnig verið
tekin ákvörðun um það að bjóða
örorkulífeyrisþegum lífeyrissjóðanna upp
á sérstök námskeið á sviði sjálfsstyrkingar
og heilsueflingar og kynna fyrir þeim
starf ráðgjafa VIRK í framhaldi af þessum
námskeiðum. Þessi vinna er hafin og nú
í byrjun árs 2011 voru fyrstu námskeiðin
haldin fyrir þessa hópa og tókust þau
mjög vel.
Útgáfa, fræðsla og kynningar
VIRK hefur gefið út kynningar- og
fræðslubæklinga fyrir einstaklinga og
atvinnulíf og aftast í þessu ársriti er að
finna nánari upplýsingar um þessa
bæklinga. Í byrjun árs 2011 gaf VIRK út
sérstaka dagbók fyrir þá einstaklinga sem
eru í þjónustu hjá ráðgjöfum og er bókinni
ætlað að aðstoða einstaklinga við að efla
stafsgetu og lífsgæði með skipulegri
markmiðssetningu og skráningu. Þessi
bók hefur fengið mjög góðar viðtökur og
bæði einstaklingum og ráðgjöfum finnst
hún gagnleg.
Sérfræðingar og ráðgjafar VIRK hafa hald-
ið fjölmargar kynningar og námskeið fyrir
ólíka aðila um allt land. Þannig er fræðsla
um starfsendurhæfingu og starfsemi
VIRK reglulega á dagskrá á námskeiðum
fyrir trúnaðarmenn stéttarfélaga um
allt land og fjölmargar kynningar hafa
einnig verið haldnar á vinnustöðum
um allt land, heilsugæslustöðvum
og öðrum heilbrigðisstofnunum, hjá
félagasamtökum, opinberum stofnunum,
í háskólum og öðrum menntastofnunum
svo og á ýmsum ráðstefnum og fundum.
Fulltrúum VIRK var boðið að halda
fyrirlestur um starf sjóðsins á mikilvægri
ráðstefnu á sviði starfsendurhæfingar,
International Forum on Disability
Management 2010 í Los Angeles í
september 2010. Markmið með þátt-
töku var að halda fyrirlestur um starfsemi
Starfsendurhæfingarsjóðs og kynna upp-
byggingu og eignarhald sjóðsins sem
víða erlendis er talið vera til fyrirmyndar
og eftirbreytni, þ.e. að atvinnurekendur
og stéttarfélög hafi sameinast í stofnun
og rekstri sjóðsins. Fyrirlesturinn bar
nafnið Breaking the Barriers to Work,
the Icelandic Organizational Model of
Vocational Rehabilitation. Mjög góð við-
brögð voru við þessum fyrirlestri og um
hann sköpuðust áhugaverðar umræður.
Heimasíða VIRK, www.virk.is, er í stöðugri
þróun og sífellt bætist inn á hana efni,
jafnt fréttir, fræðsluefni, viðtöl og greinar.
Um 150-200 manns fara daglega inn á
síðuna að meðaltali, fjöldi innlita í hverj-
um mánuði er að meðaltali um 3700 og
fjöldi gesta um 1600 á mánuði.
Um höfundinn
Vigdís Jónsdóttir er framkvæmdastjóri
Starfsendurhæfingarsjóðs (VIRK) og
hefur gegnt því starfi frá stofnun
sjóðsins. Hún er hagfræðingur að
mennt, með framhaldsmenntun á sviði
mannauðsstjórnunar og alþjóðlega IPMA
vottun í verkefnastjórnun. Hún hefur
starfað sem stjórnandi og verkefnastjóri
stórra verkefna í atvinnulífinu í mörg ár
og einnig stýrt fyrirtæki í heilbrigðisrekstri.
Vigdís starfaði sem hagfræðingur Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga á árunum
1992-1999.