Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 21
21www.virk.is
VIÐTAL
Linn er norsk og þótt hún búi hér og
starfi þá hefur hún einnig mikil tengsl við
heimalandið. Hún sinnir vísindastörfum
og rannsóknum í Noregi meðfram því
að kenna í læknadeild háskólans í
Þrándheimi. Sem trúnaðarlæknir á einum
stærsta vinnustað landsins þarf hún því
stundum að sinna 100 prósent starfi í 50
prósent vinnu.
„Ég hef þurft að forgangsraða í starfi
mínu. Sjálf eyði ég mestum tíma í að
veita einstaklingsmiðaða þjónustu við
þá starfsmenn okkar sem eru í erfiðum,
endurteknum eða langvarandi veikindum.
Ég reyni einkum að ná tali af fólki sem er
ítrekað frá vinnu vegna veikinda eða sem
er að koma aftur til starfa eftir langt eða
erfitt veikindafrí,“ segir Linn en hún hefur
einnig beitt sér varðandi stefnumörkun
í fyrirtækinu á heilsusviði. Þar hefur
hún áhrif á heildarstefnu er varðar
vinnuvernd og heilsueflingu. „Þetta er
öflug teymisvinna þar sem fleiri góðir og
reynsluríkir starfsmenn koma saman og
vinna með áhættumat, atvikaskráningar
og heilsuvernd í tengslum við sýkinga-
varnir, samskipti, vinnustellingar og fleira
slíkt,“ bætir hún við.
VIRK-þjónustan
er himnasending
Linn Getz, trúnaðarlæknir
á Landspítalanum, hefur
nýtt sér úrræði VIRK í starfi
sínu og segir að þjónustan
sé himnasending. Margir
skjólstæðingar hennar eru í
ráðgjöf hjá VIRK og hún er
þakklát fyrir að til sé kerfi
sem hlúir að einstaklingum
og heldur utan um þá.
Linn Getz trúnaðarlæknir