Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 24
24 www.virk.is
VE
LF
E
R
Ð
A
R
K
E
R
FI
Ð
bætir við: „Einnig hefur fólk komið til mín
eftir atvinnumissi. Fólk sem hefur glímt
við einhvers konar sjúkdóma og er á
atvinnuleysisbótum. Bótunum fylgir sú
krafa að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit
en þessir skjólstæðingar mínir gætu
ekki þegið hvaða starf sem er vegna
veikindanna. Því fólki hef ég sömuleiðis
vísað til VIRK.“
Virkur á vinnumarkaði
„Með ráðgjöfinni er unnið markvisst
að því að gera fólk nægilega heilbrigt
til að það geti orðið virkt á nýjan leik á
vinnumarkaði.
„Ég hef vísað töluvert mörgum til
ráðgjafa VIRK hér á Akranesi, Bjargar
Bjarnadóttur. Stundum vísa ég sjúkling-
um þangað strax þegar þeir koma til
mín til að þeir geti nýtt sér ráðgjöfina
sem fyrst,“ segir Jón sem hefur starfað
á Akranesi í tvö ár. Hann segir að aðrir
læknar á heilsugæslunni séu einnig
meðvitaðir um að nýta þessa þjónustu.
„Sjúklingarnir sem leita til mín eru
vitaskuld með mismunandi sjúkdóma.
Algengustu vandamál óvinnufærra
sjúklinga eru vegna veikinda í stoðkerfi
eða andlegra sjúkdóma. Í öllum þessum
tilfellum er það alveg ljóst að sjúklingarnir
geta ekki sinnt starfi sínu. Þá hefur
ráðgjafi VIRK komið til aðstoðar með
mjög góðum árangri,“ greinir Jón frá og
Ráðgjöf VIRK
hefur skilað árangri
Jón Sigmundsson heimilislæknir
Jón Sigmundsson, heimilis-
læknir á heilsugæslustöðinni
á Akranesi, hefur nýtt sér
úrræði VIRK, fyrir skjól-
stæðinga sína með góðum
árangri. Hann er afar
ánægður með samstarfið
og telur endurhæfinguna
vera árangursríka.
Gefur fólki tækifæri
og framtíðarsýn