Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 33
33www.virk.is
VELFERÐARKERFIÐ
síðasta áratug en enn í dag virðist skortur á
samhæfingu og heildaryfirsýn. Starfandi er
nefnd á vegum Velferðarráðuneytisins um
samþættingu milli aðila vinnumarkaðar-
ins og hins opinbera á málefnum starfs-
endurhæfingar, (Velferðarráðuneytið, 2011;
Guðrún Hannesdóttir, Sigurður Thorlacius og
Stefán Ólafsson, 2010; Guðrún Hannesdóttir,
2009). Starfsendurhæfingarsjóður var
stofnaður af aðilum vinnumarkaðarins árið
2008.
Aðferð og framkvæmd
Í rannsókninni var notuð blönduð aðferð.
Með því er vísað til þess að notast er við
megindlega og eigindlega aðferð bæði
við gagnaöflun og greiningu og túlkun á
niðurstöðunum. Í þessari rannsókn var
beitt margprófun til að auka áreiðanleika
niðurstaðnanna (Creswell og Clark, 2007).
Með hliðsjón af rannsóknarspurningunni
„Hefur starfsendurhæfing áhrif á
fátækt, félagslega einangrun og virkni
þátttakenda?“ var ákveðið að afla gagna
með breytilegum hætti. Í rannsókninni
var unnið með tölulegar upplýsingar
um alla þá einstaklinga sem höfðu
verið í SN á tímabilinu janúar 2006 til
maí 2010. Allir þátttakendur höfðu fyllt
út ASEBA skimunarlista við upphaf
starfsendurhæfingar. Af þeim sem höfðu
lokið starfsendurhæfingu höfðu 100
þátttakendur einnig fyllt út lista við lok
endurhæfingar. Greining var unnin úr
gögnum frá SN um 48 þátttakendur, 53
svöruðu símakönnun þar sem notast var
við spurningar úr rannsókn Guðrúnar
Hannesdóttur (2010) um lífskjör og
hagi öryrkja og viðtöl voru tekin við sjö
þátttakendur. Þá hættu 44 án þess að
ljúka endurhæfingunni og var staða þess
hóps einnig athuguð. Hvert gagnasafn
var greint sérstaklega og niðurstöður
síðan túlkaðar í heild. Einstaklingar í
úrtaki SN, símakönnun og viðtölum voru
valdir með tilviljun byggðu á númeruðum
lista heildarhópsins (N=241).
Kynjahlutfallið í heildarhópnum (N=241)
var þannig að karlar voru 29% og konur
71%. Yngsti þátttakandi var 18 ára og
elsti 57 ára og meðalaldur tæp 33 ár. Í
tölfræðilegri úrvinnslu var heildarhópnum
skipt í samræmi við aldurshópa ASEBA
matslistanna; 18-35 ára og 36-59 ára.
Hlutfallsleg skipting aldurshópana var
þannig að 62% tilheyrðu yngri hóp og
38% eldri hóp. Rúm 52% þátttakenda
voru í sambúð með maka og 57% voru
foreldrar með börn. Aðrir bjuggu einir,
með foreldrum eða öðrum. Meirihluti
einstaklinga í heildarúrtakinu, alls 79%,
hafði aðeins lokið grunnskólaprófi.
Í rannsókninni er unnið með töluleg og
ópersónugreinanleg gögn frá Starfs-
endurhæfingu Norðurlands (ASEBA
mælingar og úrtak SN). Rannsóknin
var tilkynnt til Pernsónuverndar
(S4882/2010) og í símakönnun og
viðtalsrannsókn var byggt á samþykki
þátttakenda sjálfra.
Samanburður milli
gagnasafna
Samanburður var gerður á dreifingu
og meðaltali á kvarða heildarerfiðleika
(total problem scale) eftir úrtakshópum.
Eins og sjá má á töflu 1 reyndust
meðaltöl hópanna mjög svipuð, að því
undanskildu að hópurinn sem hætti í
starfsendurhæfingu reyndist búa við
meiri erfiðleika en aðrir.
Þegar meðaltal brottfallshóps var borið
saman við heildarmeðaltal þeirra sem
eftir stóðu kom í ljós að það var marktækt
hærra en meðaltal þeirra sem hafa
klárað eða eru enn í endurhæfingu.
Slíkur munur kom ekki fram ef aðrir
úrtakshópar voru einangraðir og bornir
saman við þá sem eftir stóðu (t-próf
óháðra úrtaka og dreifigreining). Þetta
þýðir að væri hópnum sem hætti í
endurhæfingu sleppt reyndust umfang
og dreifing heildarerfiðleika hvers
úrtakshóps dæmigerðir fyrir þýðið þ.e.
alla aðra þátttakendur hjá SN á tímabilinu
frá 2006 til 2010. Þessi samsvörun á
milli úrtakshópanna á einnig við um
bakgrunnsbreyturnar kyn, aldur og
menntun. Því má ætla að niðurstöður úr
einstökum mælingum á úrtakshópunum
séu lýsandi fyrir heildarhópinn.
Helstu niðurstöður
Niðurstöður ASEBA mælingar á heildar-
hópnum (N=241) við upphaf starfsendur-
Tafla 1. Lýsandi tölfræði fyrir kvarða heildarerfiðleika (total problem scale) við upphaf endurhæfingar meðal úrtakshópa
ASEBA upphafsmæling 50 60,69 37 79 9,17
ASEBA upphafs- og lokamæling 100 61,49 36 82 9,75
Símakönnun 53 60,15 40 80 8,90
Úrtak S.N. 48 62,81 39 80 8,29
Viðtöl 7 60,80 48 80 9,25
Hættu í endurhæfingu 44 64,32** 44 90 9,18
Heildarhópur 241* 61,49 36 90 9,40
*Skörun er á milli úrtakshópanna í ASEBA upphafs- og lokamælingu, símakönnun, úrtak SN og viðtölum. Fjöldi í mælingu heildarhópsins er því minni en
samanlagður fjöldi einstakra úrtaka. ** sig<,05
Fjöldi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi StaðalfrávikVeikindafjarvistir árið 2007 (%)