Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 37
37www.virk.is
VELFERÐARKERFIÐ
Aukið sjálfstraust og
lífshamingja
Í símakönnun (n=53) sögðu um 90%
þátttakenda endurhæfinguna hafa skilað
sér frekar eða mjög miklum árangri og
10% sögðu starfsendurhæfinguna hafa
skilað sér frekar litlum árangri. Í könnun-
inni voru þátttakendur jafnframt spurðir
út í helstu ávinninga af endurhæfingunni.
Í ljós kom að flestir nefndu ávinning
fólginn í auknu sjálfstrausti eða tæp 85%
þátttakenda. Ríflega helmingur svaraði
að meðal helstu ávinninga væri að
starfsendurhæfingin hafi stuðlað að námi,
betri heilsu eða líðan og að þátttakan hafi
skilað sér í aukinni þátttöku í félagslífi.
Tæplega helmingur þátttakenda nefndi
aukið sjálfstæði sem einn af helstu
ávinningum af starfsendurhæfingunni.
Tveir einstaklingar eða 4% sögðu
starfsendurhæfinguna ekki hafa skilað
sér neinum af nefndum þáttum
(sjá mynd 4).
Þátttakendur í símakönnun voru einnig
beðnir að meta það á skalanum 1 til
10 hversu ánægðir eða óánægðir þeir
væru með líf sitt almennt. Hópurinn
sem hefur klárað endurhæfingu reyndist
að jafnaði ánægðari með líf sitt en hinir
sem ekki hafa lokið. Meðaltal þess
hóps var 7,03 á meðan meðaltal þeirra
sem enn eru í endurhæfingu var 6,78.
Miðgildið hjá hópnum sem hefur klárað
var 7,5 á meðan það var 6,5 hjá þeim
sem eru enn að, sem sýnir að almenn
lífsánægja virðist aukast við og í kjölfar
starfsendurhæfingar. Athyglisvert er í
þessu sambandi að niðurstaða úr sömu
spurningu var 6,2 í rannsókn á Lífskjörum
og högum öryrkja (Guðrún Hannesdóttir,
2010).
Umræða
Niðurstöður ólíkra mælinga í rann-
sókninni vísa allar í sömu átt, þ.e. að
starfsendurhæfing þátttakenda hjá SN
hafi áhrif á heilsufar, virkni í námi og
vinnu, rjúfi eða brjóti félagslega einangrun
og bæti samskipti og aðlögun þátttakenda
og hafi þar með áhrif á afstæða/upplifaða
fátækt þeirra. Starfsendurhæfingin
bætir hins vegar ekki fjárhagslega stöðu
þátttakenda eða eykur tekjur þeirra, þó
svo þeim gangi nokkru betur að stýra
fjármálum sínum og líti almennt bjartari
augum á fjárhagslega stöðu sína til
framtíðar.
Þátttakendur sjálfir meta stöðu sína betri
í lok starfsendurhæfingarinnar en öryrkjar
almennt og bendir það sömuleiðis til
jákvæðra áhrifa starfsendurhæfingar.
Það er sömuleiðis hærra hlutfall notenda
hjá SN sem telja starfsendurhæfinguna
hafa skilað sér frekar eða mjög miklum
árangri, eða 90% hjá SN en 58%
hjá þeim öryrkjum sem sótt hafa
starfsendurhæfingu samkvæmt rannsókn
Guðrúnar Hannesdóttur (2010).
Mun hærra hlutfall þátttakenda SN en
öryrkja hefur aðeins grunnmenntun,
79% hjá SN en 64% öryrkja almennt
(Guðrún Hannesdóttir, 2010). Uppistaða
Mynd 4. Svör þátttakenda í SN um hvaða árangri starfsendurhæfingin hafi helst skilað þeim
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Au
kn
u s
jál
fst
ra
us
ti
St
uð
lað
að
ná
mi
Be
tri
he
ils
u o
g/e
ða
lí
ða
n
Au
kin
ni
þá
ttt
ök
u í
fé
lag
slí
fi
Au
kn
u s
jál
fst
æð
i
Al
me
nn
t a
uk
nu
m
líf
sg
æð
um
St
uð
lað
i a
ð v
inn
u
Öð
ru
En
gu
85%
57% 55%
51% 49%
26%
23%
8%
4%