Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 41
41www.virk.is
ATVINNULÍF
heimilislæknis, atvinnurekanda og ráð-
gjafa í starfsendurhæfingu.
Rannsóknir og reynsla bæði hérlendis og
erlendis hafa sýnt fram á að til að tryggja
varanlegan árangur í starfsendurhæfingu
þá skiptir öllu máli að:
K1. oma snemma að málum og bjóða
ráðgjöf á sviði starfsendurhæfingar
um leið og fyrirséð er að starfsmenn
verði fjarverandi vegna heilsubrests
í lengri tíma.
Vinna í nánu samstarfi við 2.
atvinnulífið. Gæta þess
að einstaklingar missi ekki
vinnusamband sitt vegna veikinda
eða slysa og stuðla að farsælli
endurkomu til vinnu eftir langtíma
fjarvistir.
Hér á eftir verður sérstaklega fjallað um
þessa þætti í samhengi við skipulag VIRK
og uppbyggingu á þjónustu í samvinnu
við stéttarfélög og atvinnurekendur.
Að koma snemma að málum
Það er mjög mikilvægt að bjóða
einstaklingum markvisst upp á starfs-
endurhæfingarþjónustu snemma í kjöl-
far veikinda eða slyss. Hversu snemma
fer auðvitað eftir aðstæðum viðkomandi
og það er ljóst að á meðan á bráðafasa
stendur og einstaklingur er í virkri
þjónustu innan heilbrigðiskerfisins þá er
starfsendurhæfing oft hvorki viðeigandi
né árangursrík. Umfang þjónustu í
starfsendurhæfingu þarf hins vegar að
aukast eftir því sem einstaklingurinn
öðlast betri heilsu og þá er einnig
mikilvægt að efla strax tengingar við
vinnumarkaðinn til að endurkoma í
vinnu verði árangursrík.
Einstaklingar þurfa að vita af því að
þjónusta á sviði starfsendurhæfingar
stendur þeim til boða í kjölfar veikinda
eða slysa og einnig þarf öll sú þjónusta
sem á sér stað í kjölfar áfalla, bæði
innan heilbrigðiskerfis, félagskerfis, á
vinnustað og hjá framfærsluaðilum og
í starfsendurhæfingu að hafa það að
markmiði að auka starfsgetu viðkomandi
og tryggja þátttöku í atvinnulífi til
framtíðar. Til að þetta sé unnt þarf að
upplýsa einstaklinga um þjónustu á
sviði starfsendurhæfingar en einnig þarf
markvisst að bjóða þeim þjónustuna
sem þurfa á henni að halda.
Markvisst framboð þjónustu
Einstaklingar sem glíma við afleiðingar
líkamlegra eða andlegra sjúkdóma geta
ekki alltaf haft frumkvæði að því að leita
sér aðstoðar á sviði starfsendurhæfingar,
jafnvel þó þeir hafi mikla þörf fyrir
þjónustuna. Þessir einstaklingar glíma
oft við alvarlegar afleiðingar sjúkdóma
sinna og hafa lítið þrek eða rými til
annarra hluta. Það þarf því að bjóða
þessum einstaklingum markvisst upp
á þessa þjónustu. Reynsla okkar hjá
VIRK er sú að þessir einstaklingar
eru mjög þakklátir fyrir að fá boð um
þjónustu og finnst hún mjög gagnleg
jafnvel þó þeir hafi ekki sjálfir haft
frumkvæðið að því að leita eftir henni.
Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri VIRK