Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 53
53www.virk.is
VIÐTAL
Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri hjá Mosfellsbæ
þessu, það finnur hvatningu og sér að
vinnuveitandanum er ekki sama um það.
Þetta ferli er því mjög gott og best að það
hefjist sem fyrst eftir að starfsmaðurinn
fer í veikindaleyfi. Veikindin geta verið
af ýmsum toga, stoðkerfisvandamál,
andlegir sjúkdómar eða jafnvel óútskýrð
veikindi. Ég þekki líka dæmi um fólk
sem mætir í vinnu en er ekki virkt. Þá
geta utanaðkomandi aðstæður verið
áhrifavaldur. Ég hef fundið meira fyrir
slíku eftir hrun. Stundum leitar fólk sér
sjálft hjálpar án þess að ég komi að því.
Það er því gott, bæði fyrir starfsmenn og
stjórnendur, að vera meðvitaðir um að
úrræðin eru fyrir hendi. Ég er sannfærð
um að VIRK muni bera gæfu til að vera
fyrirtæki sem á eftir að gera mjög góða
hluti í framtíðinni. Ég lærði mannauðs-
fræði í Svíþjóð en þar er starfsendur-
hæfing stór hluti af vinnuverndarstarfi.
Ég sé fyrir mér að settar verði reglur um
það að vinnuveitendum beri að gera
einhvers konar áætlun um endurkomu
til vinnu. Það þarf að virkja aðila eins
og Tryggingastofnun, Vinnueftirlitið,
Vinnumálastofnun, stéttarfélög og
atvinnurekendur inn í þetta ferli. Þetta
gæti skipt sköpum fyrir þjóðfélagið því
kostnaður vegna veikindafjarvista er
gríðarlega hár auk þess sem óhagræðið
sem af því skapast er mikið. Ef vinnu-
veitandi gefst upp á starfsmanni sem
er mikið frá vinnu vegna veikinda og
lætur hann fara þá dettur hann útaf
vinnumarkaðnum og fer á bætur.
Starfsfólk sem er útbrunnið í starfi
eða á erfitt með að mæta í vinnuna af
einhverjum ástæðum, en veigrar sér við
að hætta sökum þess að atvinnutækifæri
eru fá, getur líka fengið hjálp. Það er
hægt að snúa slíku ferli yfir í eitthvað
uppbyggilegt. Starfsmaður sem býr
yfir ákveðinni þekkingu og hæfni er
dýrmætur og það er dýrt að þjálfa nýjan.
Starfsendurhæfing er því jákvæð á allan
hátt.“
Sálgæsla er mikilvæg
„Rannsókn sem var gerð í MS-námi í
mannauðsstjórnun við HÍ hefur sýnt
að viðfangsefni mannauðsstjóra hafa
breyst eftir hrun. Sálgæsla er til dæmis
mun meiri hluti af starfinu nú en áður.
Mörgum líður illa og því er áríðandi að
hafa einhver úrræði. Grípa þarf fljótt
inn í slíkar aðstæður. Að mínu mati
eru það mannréttindi að fólk sé hvatt
til endurkomu til vinnu eftir veikindi,“
segir Sigríður og bætir við: „Það er til
mikils að vinna að til sé heildræn stefna
á þessu sviði. Ég hef mikla trú á því að
VIRK, Starfsendurhæfingarsjóður eigi
eftir að eflast og þróast. Okkar samstarf
hefur verið farsælt en vinnuveitendur
og starfsmenn eru misjafnlega upplýstir
um þessa þjónustu. Þess vegna er mjög
mikilvægt að þetta sé vel kynnt þannig að
allir geti nýtt sér tækifærin sem bjóðast.“
„Starfsmaður sem býr
yfir ákveðinni þekkingu
og hæfni er dýrmætur
og það er dýrt að þjálfa
nýjan. Starfsendurhæfing
er því jákvæð á allan
hátt.“