Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 65

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Side 65
65www.virk.is ATVINNULÍF Með því að lagfæra vinnuumhverfið og bjóða starfsmönnum stuðning er hægt að stytta tímann sem veikindin standa yfir, draga úr þunga þeirra og flýta fyrir bata. Geðraskanir eru einn af leiðandi orsakaþáttum fyrir fjarvistum frá vinnu. Geðræn vandamál á vinnustað hafa alvarleg áhrif, ekki bara fyrir einstaklinginn heldur einnig fyrir framleiðni og samkeppnishæfni fyrirtækja og þar með efnahag og þjóðfélagið í heild (Knifton, Watson, Besten, Grundemann og Dijkman, 2009). Geðheilsa Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) skil- greinir góða geðheilsu á þann veg að einstaklingnum líði vel, hann átti sig á eigin getu og möguleikum, ráði við allt venjulegt álag daglegs lífs, stundi vinnu sína sjálfum sér og öðrum til gagns og leggi sitt af mörkum til samfélagsins (WHO, 2011). Geðraskanir eru raskanir á geðheilbrigði. Þær eru algengar og hafa fylgt mann- kyninu frá örófi alda (Geðhjálp, 2011). Mikils misskilnings gætir varðandi geðraskanir. Margir telja að þær hafi einungis áhrif á lítinn hóp samfélagsins. Raunin er sú að um 25% fólks mun einhverntíma á lífsleiðinni finna fyrir geðröskun. Einnig halda margir að ekki sé hægt að lækna geðraskanir og að einstaklingar með geðröskun geti ekki verið úti á vinnumarkaðinum. Úrræði fyrir einstaklinga með geðrask- anir eru mörg árangursrík og meirihluti þeirra stundar vinnu. Áætlað er að 450 milljónir manna um allan heim þjáist af einhverri geðröskun (WHO, 2001). Góð geðheilsa er hverjum manni mikilvæg. Í þeim efnahagslegu þreng- ingum sem þjóðin gengur nú í gegnum, má ætla að geðheilsa vinnandi fólks sé ofarlega í huga atvinnurekenda. Heilsufarsvandamál geta komið fram við álag og því ástæða til að huga að geðrækt. Góð geðheilsa skiptir meginmáli í mannlífi hvers þjóðfélags. Einstaklingum, sem glíma við geðræn vandmál, er hættara við langtímafjarvistum frá vinnu (Knifton, Watson, Besten, Grundemann og Dijkman, 2009). Þeir sem eiga við andlega vanlíðan að stríða, eiga frekar á hættu en aðrir að fá líkamlega sjúkdóma, eins og hjartabilun, hjartaslag, sykursýki, öndunarerfiðleika og krabbamein (Kristinn Tómasson, 2006). Ástæðan er rakin til minni virkni ónæmiskerfisins, slæmrar hei lsutengdrar hegðunar, lélegrar meðferðarheldni og félagslegra hindrana (Disability Rights Commission, 2006). Alþjóðaheilbrigðisstofnunin áætlar að árið 2020 verði þunglyndi næst algengasta orsök örorku í heiminum (Knifton, Watson, Besten, Grundemann og Dijkman, 2009). Á Íslandi hefur örorka vegna geðraskana aukist. Geðsjúkdómar eru nú algengasti sjúkdómaflokkurinn sem leiðir til örorku meðal karla og sá næstalgengasti meðal kvenna (Sigurður Thorlacius, Sigurjón B. Stefánsson og Stefán Ólafsson, 2007). Þjóðfélagið í dag Þær breytingar sem hafa orðið í íslensku samfélagi undanfarið snerta einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir, fjármálakerfi og efnahagslíf. Það er þekkt að úrvinnsla áfalls verður flóknari þegar um er að ræða erfiðleika af manna völdum, ekki síst ef enginn tekur ábyrgð. Sjálfsmynd og félagsstaða versnar, áhrifaleysi á lausnir ríkir og ekki er fyrirsjáanlegur endir á áföllunum. Þegar hætta eða óvissa heldur áfram sendir heilinn stöðugt út skipanir um að vera á verði með því að auka framleiðslu á taugaboðefnum tengdum hættu og á streituhormónum og viðvarandi steituástand getur skapast. Algeng einkenni streitu á vinnustað eru vanlíðan, skert vinnugeta eða minni einbeiting, tómlæti, pirringur, kvíði, reiði og tíðari veikindafjarvistir (Velferðarráðuneytið, 2009). Athuganir á tengslum streitu, vinnu og heilsu meðal íslenskra kvenna benda til þess að vinnustreita hafi aukist meðal yngri kvenna en ekki meðal kvenna í eldri hópum. Rannsóknir sýna einnig að þunglyndi er algengara meðal kvenna en karla (Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 2000).

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.