Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Page 72
72 www.virk.is
A
TV
IN
N
U
LÍ
F
ATVINNULÍF
Fjarvistastjórnun
og endurkoma til vinnu – skref fyrir skref
Inngangur
Veikindafjarvistir tengjast heilsu og líðan
einstaklinga og þeim starfskröfum sem
gerðar eru á mismunandi vinnustöðum
og í ólíkum störfum. Áhrif má hafa á tíðni
og lengd fjarvista með góðu skipulagi
á vinnustað, öruggu og heilsusamlegu
vinnuumhverfi, meðvitaðri stjórnun fjar-
vista og stuðningi við endurkomu til
vinnu eftir veikindi og slys. Algengt er
að stefna og eða ferli í fjarvistastjórnun
falli undir heilsustefnu, starfsmanna- eða
mannauðsstefnu fyrirtækja.
Fjarvistastjórnun og stuðningur við
endurkomu til vinnu eftir veikindi og
slys á að vera hluti af stefnu fyrirtækja
og hefur meðal annars þann tilgang að
styrkja ráðningarsamband einstaklinga.
Í fjarvistastjórnun eru notaðir skilgreindir
vinnuferlar um tilkynningar, skráningu og
viðbrögð við veikindafjarvistum, fræðslu
og upplýsingagjöf til starfsmanna og
stjórnenda, umbætur á vinnuaðstöðu og
endurkomu til vinnu eftir veikindi. Mikil-
vægt er að í hverju fyrirtæki og stofnun
sé ákveðinn aðili sem ber ábyrgð á að
innleiða og fylgja eftir fjarvistastefnunni
og greiningarvinnu varðandi fjarvistir.
Fylgjast þarf með veikindafjarvistum
á kerfisbundinn hátt, hafa reglulega
samband við veika starfsmenn og
auðvelda þeim að koma aftur til starfa
þegar heilsa þeirra leyfir. Mikilvægt er
að ræða við starfsmenn sem eru oft eða
lengi fjarverandi með það í huga að finna
lausnir á vandamálum sem hugsanlega
eru til staðar. Hluti af ferlinu er að greina
á milli tegunda fjarvista, finna orsakir
og kanna hvort hægt sé að hafa áhrif
á ástæður sem liggja að baki. Hlutverk
stjórnandans er m.a. að sýna eðlilega
umhyggju og aðstoða starfsmanninn við
að finna lausnir.
Allar upplýsingar um veikindi og fjarvistir
einstakra starfsmanna eru persónulegar
upplýsingar sem meðhöndla skal sem
slíkar og eyða við starfslok.
Markmið
Tilgangur með fjarvistastefnu er margþættur og
og felst í að:
Standa vörð um heilsu starfsmanna •
og tryggja að aðstæður í vinnu og
vinnuumhverfi séu heilsusamlegar.
Stuðla að farsælli endurkomu til •
vinnu eftir veikindi eða slys.
Mótaðir séu skýrir og þekktir •
ferlar um viðbrögð við fjarvistum
starfsmanna til að tryggja samræmi
og viðeigandi viðbrögð.
Vera leiðbeinandi og móta •
lausnarmiðað viðhorf starfsmanna
og stjórnenda til viðbragða vegna
fjarvista og endurkomu til vinnu eftir
veikindi og slys.
Tryggja það að vinnustaðurinn •
komi til móts við einstaklinga með
skerta starfsgetu, ef þeir geta unnið
þrátt fyrir minniháttar veikindi eða
langvarandi einkenni.
Vinnuumhverfi og menning
á vinnustað
Eitt það mikilvægasta sem vinnustaðir
geta gert til að hafa áhrif á fjarvistir
vegna veikinda er að móta stefnu sem
byggir á greiningu og umfangi fjarvista
og gefa skýrar leiðbeiningar um hvernig
á að fyrirbyggja og bregðast við fjarvistum
starfsmanna. Slík stefna þarf að gilda um
alla í fyrirtækinu svo hún verði trúverðug
og árangursrík.
Menning innan vinnustaðarins getur
verið með þeim hætti að hún ýti undir
auknar fjarvistir starfsmanna og leiði
til hindrana við endurkomu til vinnu,
hvort sem þær eru til skamms tíma eða
langvinnar. Skýrir verkferlar og ákveðin
stefna getur hins vegar haft hér jákvæð
áhrif og góð fjarvistarstjórnun er leið til
að bæta vinnufyrirkomulag og aðstæður
á vinnustað.
Ekki er hægt að koma í veg fyrir allar
fjarvistir, en það er hægt að draga úr
þeim með vali á aðferðum sem taka
tillit til aðstæðna tengdum störfum og
menningu á vinnustað. Taka þarf tillit til
fjölþættra ástæðna veikindafjarvista þegar
verið er að leita leiða til að ná árangri við
að aðstoða fólk í veikindum.
Með fjarvistastefnu og skráningu fjarvista,
ásamt almennri umræðu um fjarvistir
og þekkingu starfsmanna á verkferlum
fjarvistastjórnunar í viðkomandi fyrirtæki,
aukast líkur á að hægt sé að draga úr tíðni
og lengd fjarvista. Menning fyrirtækis,