Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 0. O K T Ó B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 238. tölublað 107. árgangur
SEGJA SÖGUR
AF KINDUM Í
NÝRRI BÓK
HROLLVEKJ-
ANDI OG
LITRÍKT
TILBÚINN AÐ
LEYSA ARON
EINAR AF
JOKER bbbmn 72 RÚNAR MÁR 67DAGLEGT LÍF 12
„Ísbjörninn er tignarlegur og ekki annað hægt en að fyllast
lotningu fyrir þessari harðgerðu skepnu,“ segir Ragnar
Axelsson ljósmyndari í grein í blaðauka um norðurslóðir,
Björgum heiminum, sem fylgja mun Morgunblaðinu á morgun.
Ragnar kom auga á ísbjörninn á lítilli eyju í Scoresbysundi í
september síðastliðnum. Þetta er í sjöunda sinn sem Morgun-
blaðið gefur út blaðauka á íslensku og ensku um téð svæði í
tengslum við ráðstefnuna Hringborð norðurslóða – Arctic
Circle, sem hefst í Hörpu í dag og stendur til sunnudags. »20
Ekki annað hægt en að fyllast lotningu
Morgunblaðið/RAX
„Mamma mín er enn í
Sýrlandi en ég hef ekki
hitt hana í fjögur ár. Id-
lib er hryllingur og við
getum ekki talað um
ástandið þar því það er
of skelfilegt til að það sé
hægt. Við treystum okk-
ur ekki til þess. Enginn
möguleiki að komast úr því helvíti og mamma
mín er orðin gömul og treystir sér ekki í erfitt og
hættulegt ferðalag,“ segir Khetam Alhamami,
flóttakona frá Sýrlandi. Dóttir hennar slasaðist
alvarlega í árás stjórnarhersins á Aleppo og Khe-
tam þurfti sjálf að gera að sárum hennar þar sem
ekkert sjúkrahús var lengur starfandi. »36-37
Hind Hammede og
Khetam Alhamami.
Engin leið
úr helvíti
Á flótta frá Sýrlandi
Baldur Arnarson
Pétur Hreinsson
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Al-
menna lífeyrissjóðsins, segir sjóðinn vel í stakk
búinn til að takast á við verðsveiflur á húsnæði.
Tilefnið er sú niðurstaða Seðlabankans að
áhætta á íbúðamarkaði hafi aukist. Til dæmis
gæti íbúðaverð lækkað í miðborginni.
Lífeyrissjóðirnir hafa styrkt stöðu sína á
markaði með íbúðalán. Birtist það m.a. í því að
Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur endur-
skoðað útlánaskilyrði. Vöxtur útlána muni að
óbreyttu leiða til ójafnvægis í áhættudreifingu.
Ekki náðist í fulltrúa sjóðsins vegna þessa.
Harpa Jónsdóttir, framkvæmdastjóri LSR,
segir mikla ásókn í íbúðalán hjá sjóðnum.
„Það er ekkert sem bendir til að eftirspurnin
sé að dragast saman,“ segir Harpa.
Meirihlutastöðu bankanna ógnað
Viðmælandi blaðsins í lífeyrissjóðakerfinu
taldi aðspurður að meirihlutastöðu bankanna á
íbúðalánamarkaði væri ógnað. Neytendur leit-
uðu í bestu kjörin. Sú þróun getur aftur haft
áhrif á verðmæti eignarhluta ríkisins í bönkum.
Annar viðmælandi taldi að þótt áhætta sjóð-
anna af íbúðalánum kynni að aukast vegna auk-
innar óvissu hefði hækkandi fasteignaverð síð-
ustu misseri styrkt veðin í eignunum. Heilt yfir
væri þetta ekki mikið áhyggjuefni. Fram kemur
í nýjum Fjármálastöðugleika að rekstrar-
umhverfi fyrirtækja sé að þyngjast og vanskil að
aukast í byggingariðnaði og ferðaþjónustunni.
Sókn lífeyrissjóða í íbúðalán
gæti falið í sér meiri áhættu
Ásókn í lán sjóðanna Seðlabankinn bendir á áhættuþætti í hagkerfinu
MFjármálastöðugleiki »10, 11 og 38