Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
NET
LAGERSALA
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
ALLT AÐ
80%
AFSLÁTTUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Skattur dregur ekki úr urðun
Sorpa segir að nýr urðunarskattur muni lenda á íbúum og fyrirtækjum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sorpa leggst alfarið gegn hugmynd-
um um að leggja á urðunarskatt.
Telur Sorpa augljóst að tilgangur
hugmynda um þennan skatt sé ekki
verndun umhverfisins eða aukning í
endurvinnslu eða endurnotkun. Til-
gangurinn virðist ekki heldur vera
að minnka úrgang því urðunarskatt-
ur sé lélegt stjórntæki til þess.
Í umsögn Sorpu um frumvarp um
breytingar á ýmsum lögum vegna
fjárlaga næsta árs er undirbúningur
málsins gagnrýndur harðlega.
Skattinn er fyrirhugað að leggja á
um áramót og segir Sorpa að lítill
tími gefist til undirbúnings eða við-
bragða og talið að jafnvel mætti kalla
framkvæmdina eignaupptöku.
Þrefalt hærra gjald en í Evrópu
Rakið er hvernig staðið er að mál-
um í Evrópu. Urðunarskattur er
ekki lagður á í öllum ríkjum Evrópu.
Reiknast Sorpu til að meðaltal urð-
unarskatts þar sem hann er lagður á
sé 4,93 krónur á kíló en 4,38 krónur
ef allra hæsti skatturinn er undan-
skilinn. Hér er áformað að urðunar-
skattur verði 15 krónur á kíló. „Verði
sá skattur lagður á þýðir það 62%
hækkun á urðunargjaldi hjá Sorpu.
Því gjaldi verður ekki mætt öðruvísi
en með hækkun gjaldskrár sem þá
bæði íbúar og fyrirtæki þurfa að
greiða,“ segir í umsögninni.
Bein útgjaldaaukning íbúa á
starfssvæði Sorpu vegna urðunar-
skatts er talin verða 795 milljónir kr.
á ári. Ekki sé hægt að tengja gjaldið
við það sem hver íbúi lætur til urð-
unar og þess vegna verði að inn-
heimta gjaldið sem aukagjald á
hvern íbúa, óháð magni til urðunar.
Að auki þurfi atvinnulífið að greiða
um 1,6 milljarða króna og sá kostn-
aður muni með einhverju móti greið-
ast úr veskjum íbúa.
Fullyrðing stenst ekki
Sorpa vísar í skýrslu frá Um-
hverfisstofnun Evrópu og fullyrðir
að ekkert samband sé hægt að finna
á milli upphæðar urðunarskatts og
endurvinnslu. Sú fullyrðing sem
fram kemur í greinargerð með frum-
varpinu að álagning urðunarskatts
leiði til meiri endurvinnslu standist
ekki skoðun. Ekki sé heldur hægt að
færa sönnur fyrir því að hlutfall urð-
unar sé lægra í þeim löndum sem
urðunarskattur hefur verið lagður á.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Á síðustu tveimur árum hafa um 12
þúsund skattgreiðendur, á hvoru ári,
ofnýtt persónuafslátt sinn, að meðal-
tali um 156 þúsund krónur á ári. Þeir
voru því í skuld við innheimtumann
ríkissjóðs við álagningu gjalda á
árinu eftir, með tilheyrandi óþæg-
indum og kostnaði.
Kemur þetta fram í umsögn ríkis-
skattstjóra um frumvarp um breyt-
ingar á lögum um tekjuskatt og lög-
um um staðgreiðslu gjalda þar sem
meðal annars er gert ráð fyrir fjölg-
un skattþrepa úr tveimur í þrjú.
Rifjað er upp að töluverð reynsla
sé fyrir því að skattþrep einstaklinga
séu fleiri en eitt, svo sem var lengst
af. Þó verði að hafa í huga að tölu-
verð hætta sé að því að persónu-
afsláttur sé ranglega nýttur þegar
skattþrepin eru fleiri, ekki síst hjá
þeim sem starfa hjá fleiri en einum
launagreiðanda eða eru að breyta
um vinnustaði innan staðgreiðslu-
ársins.
Tæpir tveir milljarðar á ári
Í umsögninni er nefnt sem dæmi
að á staðgreiðsluárinu 2017 nam of-
nýting persónuafsláttar ríflega 1,8
milljörðum króna samtals hjá 11.816
einstaklingum og á árinu 2018 of-
nýttu 12.322 persónuafslátt að fjár-
hæð 1,9 milljarðar. Bæði árin var
tekjuskattur innheimtur í tveimur
skattþrepum. Meðalfjárhæðin bæði
árin var um 156 þúsund krónur en
langflestir ofnýttu að meðaltali 75 til
ríflega 240 þúsund á ári. Þetta leið-
réttist þegar gert er skattframtal og
skuldin innheimt árið eftir.
Ríkisskattstjóri getur þess að
reynt sé að hafa eftirlit með nýtingu
persónuafsláttar. Hann er nú alfarið
rafrænn enda notkun skattkorta
hætt fyrir nokkrum árum. Nauðsyn-
legt sé að gera betur í eftirliti en það
kosti fjármuni. Besta leiðin væri að
nýta rafrænar aðferðir að öllu leyti
við ákvörðun á persónuafslætti. Slíkt
sé þó ekki í sjónmáli að óbreyttu.
12 þúsund skattgreiðendur
ofnýta persónuafsláttinn
Meiri hætta á ofnýtingu þegar skattþrep eru fleiri
Alls hafa sjö
einstaklingar
greinst með
inflúensu A á
síðustu dögum.
Þar af eru sex
inniliggjandi á
Landspítala en
einn leitaði
þangað á bráða-
móttökuna. Þrír
af þeim voru
með inflúensu A(H3) en undir-
greiningu hjá fjórum er ekki lokið.
Sóttvarnalæknir telur að þrátt
fyrir þessi tilfelli fari flensan ekki
á flug fyrr en um áramótin, eins
og venjulega.
Gripið hefur verið til aðgerða til
að draga úr útbreiðslu veirunnar á
Landspítalanum með eflingu sýk-
ingavarna og einangrun þeirra
sem eru með staðfesta inflúensu
eða klínísk einkenni hennar.
Einnig er bólusetning hafin á
þeim deildum þar sem veiran
greindist.
Stöku tilfelli af inflúensu grein-
ast oft að hausti áður en veiran fer
að breiðast út í samfélaginu, sem
er yfirleitt seinnipartinn í desem-
ber eða janúar. Í tilkynningu sótt-
varnalæknis er tekið fram að þótt
inflúensan greinist núna sé ekki
líklegt að hún fari á flug fyrr en
um áramótin í samræmi við far-
aldsfræði árlegrar inflúensu.
Sjö þegar
greinst
með flensu
Kvef Inflúensan er
byrjuð að greinast.
Búist við meiri út-
breiðslu um áramót
Spáð er tals-
verðri rigningu
um landið norð-
an- og austan-
vert í dag. Úr-
koman mun að
mestu falla sem
snjókoma í fjöll
og getur færð á
fjallvegum
spillst.
Rigning og
slydda verður einnig í þessum
landshlutum á morgun. Um helgina
verður síðan lítils háttar væta í
flestum landshlutum.
Veðurstofan segir að búast megi
við auknu afrennsli og vatnavöxt-
um norðaustantil á landinu í dag og
er fólk á þessu svæði hvatt til að
huga að niðurföllum.
Færð á fjallvegum
getur spillst
Snjór Hætta er á
færð geti spillst.
Útför Haraldar Sveinssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra og stjórnarformanns Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins, var gerð frá Dóm-
kirkjunni í gær. Séra Jón Ásgeir Sigurvinsson
annaðist athöfnina. Kári Þormar var organisti.
Kammerkórinn Schola cantorum söng. Synir
Haraldar, barnabörn og tengdadóttir Soffíu
dóttur hans báru kistu hans úr kirkju. Fremstir
eru Jóhann og Sveinn Haraldssynir, næstir þeim
eru Agnes Jónasdóttir og Marta Eiríksdóttir, þá
Edda og Haraldur Civelek og aftast ganga Daní-
el og Alexander Jóhannssynir.
Útför Haraldar Sveinssonar frá Dómkirkjunni
Morgunblaðið/Hari