Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019 ✝ Sigurjón Svein-björnsson fæddist í Reykjavík 24. nóvember 1957. Hnn lést á heimili sínu 29. september 2019. Foreldrar hans voru Anna Sigurrós Sigurjónsdóttir, f. 18. desember 1934, og Sveinbjörn Kristinn Eiðsson, f. 20. október 1933, d. 7. júní 2008. Systkini Sigurjóns eru: 1) María, f. 1. febrúar 1956. 2) Eiður Þór, f. 28. september 1962. 3) Auð- ur Kolbrá, f. 17. desember 1967. 4) Guðrún, f. 30. september 1971. Sigurjón kvæntist Eddu Björk 2) Ingibjörg Ösp, f. 29. maí 1980, maki Björn Óli Guðmunds- son, f. 4. júní 1980. Börn: a) Sigurjón Elmar, f. 25. júlí 2007, b) Jörundur Elí, f. 14. maí 2010, c) Jón Kormákur, f. 20. febrúar 2013. 3) Andri Már, f. 20. janúar 1987, maki Bryndís Björk Barkardóttir, f. 3. nóvember 1986. Börn: a) Kristian Sölvi, f. 17. mars 2010, b) Styrmir Máni, f. 30. júlí 2014. Sigurjón ólst upp í Reykjavík og í Kópavogi. Hann fluttist til Akureyrar þegar hann var um tvítugt og bjó öll sín fullorðinsár fyrir norðan, lengst af á Berghóli í Hörgársveit. Sigurjón starfaði sem línumaður hjá RARIK frá árinu 1974 til 2004. Síðar rak hann sitt eigið smíða- og verk- takafyrirtæki, Grjóna ehf., með syni sínum. Útför Sigurjóns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 10. októ- ber 2019, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Rögnvaldsdóttur, f. 22. maí 1960, þann 3. september 1980. Foreldrar Eddu Bjarkar voru Rögn- valdur Bergsson, f . 9. desember 1923, d. 3. nóvember 2013, og Ingibjörg Magn- úsdóttir, f. 23. október 1927, d. 29. desember 1983. Börn Eddu Bjarkar og Sigurjóns eru: 1) Anna Dögg, f. 24. júní 1978, maki Þóroddur Hjal- talín, f. 4. ágúst 1977. Börn: a) Ant- on Orri, f. 4. október 2004, b) Arn- ór Bjarki, f. 10. september 2006, c) Aldís Dögg, f. 28. janúar 2012, d) Jakob Fannar, f. 31. maí 2014. Eftir erfið veikindi er góður vinur nú fallinn frá. Sigurjón Sveinbjörnsson var starfsmaður hjá RARIK nær samfellt frá árinu 1974 til ársins 2005. Hann byrjaði sem unglingur í vinnu við bygg- ingu byggðalínunnar en réðst síð- an í vinnuflokk RARIK á Norður- landi eystra, fyrst sem línumaður en síðar sem rafveituvirki. Ég hafði heyrt af Grjóna, en kynntist honum fyrst eftir að ég flutti norð- ur 1993. Þá kynntist ég því hversu ósérhlífinn og úrræðagóður hann var og lét sér fátt fyrir brjósti brenna. Ég kynntist því hvernig hann og félagar hans í vinnu- flokknum voru tilbúnir til að fórna sér fyrir viðgerðir á línukerfinu, eða til að hindra frekara tjón í stórviðrum þegar aðstæður virt- ust einhvern veginn alveg von- lausar. Og gefast aldrei upp. Grjóni var einn af þeim sem vildi vera þar sem atgangurinn var mestur og þurfti alltaf að hafa nóg fyrir stafni, hvort sem var í vinnu eða heima fyrir. Hann var alltaf hress og ófeiminn við að láta skoð- anir sínar í ljós og gerði það hik- laust. En hann hafði líka þann hæfileika að sjá kómískar hliðar á nær öllum málum og að vera ein- staklega góður sögumaður. Hann átti því auðvelt með að gagnrýna hlutina með þeim hætti að flestir höfðu gaman af og gerði það iðu- lega við skellandi hlátur við- staddra. En hann var mikill vinur vina sinna og þær voru ófáar gleði- stundirnar sem við áttum saman hópurinn fyrir norðan þar sem Grjóni hélt uppi fjörinu. Sagna- brunnur hans var ótæmandi, enda urðu sögurnar til af minnsta til- efni. Ég upplifði sjálfur ítrekað að fara með honum í ferðir vegna ým- issa verkefna og taka ekki eftir neinu sérstöku, en hlusta síðan á Grjóna lýsa ferðinni nokkru síðar á þann hátt að allir viðstaddir velt- ust um af hlátri. Það lýsir því best hve einstaklega næmur hann var á umhverfi sitt og sá broslegu hlið- arnar á lífinu. Mikil vinátta skap- aðist milli starfsmanna RARIK fyrir norðan og ekki síst á milli okkar hjóna og þeirra Grjóna og Eddu sem hefur haldist síðan, þótt samverustundum hafi fækkað eft- ir að við fluttumst suður. Úr fjar- lægð höfum við fylgst með veik- indum hans, en ekki viljað trúa því að nálgaðist leiðarlokin. Enda vildi hann sem minnst gera úr því nokkuð væri að hrjá hann. Núna kveðjum við Grjóna hinstu kveðju með söknuði, en einnig með þökk. Við erum þakk- lát fyrir að hafa átt hann sem vin og þau hjón bæði og þökkum fyrir allar ógleymanlegu stundirnar sem við áttum saman. Grjóna verður sárt saknað úr stórum vinahópi. Elsku Edda, við sendum þér og fjölskyldunni allri okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Sigurjóns Sveinbjörns- sonar. Tryggvi Þór og Guðrún (Gunna). Það var lánið okkar að fá tæki- færi á sínum tíma til að ganga veg- inn með þér og fjölskyldu þinni, kæri vinur. Ætli það séu ekki liðin tæp fjörutíu ár frá fyrsta hittingi og minningin enn eins og gerst hafi í gær. Stutt í hláturinn, hnytt- in tilsvör, temmileg kaldhæðni og eldsnöggur að hugsa, það vafðist ekkert fyrir þér. Við einhvern veg- inn náðum strax bylgjulengdinni. Gatan okkar lá m.a. í gegnum jeppana, ferðalögin og útilegurn- ar. Það yljar og kallar fram hlátur og gleði að rifja upp atvikin og þau eru mörg sem við hefðum bara alls ekki viljað missa af. Snöggu til- svörin og hnyttnin alltaf til staðar, eins og þegar einhverjum gestin- um á dansgólfinu forðum fannst þú eitthvað vera í röngum takti stóð ekki á svari. Þú hafðir bara lært í öðrum dansskóla en viðkom- andi. Það voru svör við öllu og lausnir á öllu, ekki bara í orði held- ur líka í hendi. Það var eiginlega bara ekkert sem þú gast ekki gert eða kunnir ekki skil á. Nema ef vera kynni þegar þú og bakarinn voruð saman í bíl í einni af fyrstu jöklaferðunum þínum, nýkomnir með Loran C-staðsetningartæki og ætluðuð að leiða hópinn um sprungusvæðið í Kverkfjöllum. Þessar sögur og allar hinar eru reglulega rifjaðar upp og hlegið duglega, þetta voru skemmtilegir tímar og hafa sannarlega auðgað tilveru okkar. Þótt samverustund- um hafi fækkað síðari ár þá lifir lengi í gömlum glæðum. Þau eru mörg gullkornin sem frá þér komu og við geymum með okkur. Hjálpsemi þín, greiðvikni og dugnaður, sem við félagarnir eins og aðrir í kringum þig nutum góðs af, var engu lík. Það var ekki ónýtt að komast með jeppann í skúrinn á Berghóli. Þar varstu á heima- velli og við sjálfsagt reiknuðum bara með því að hlutum yrði redd- að, það voru einhvern veginn eng- in verkefni óyfirstíganleg í þínum augum. „Margs er að minnast, margs er að sakna“ eins og segir í ljóði Valdimars Briem. Kæra fjölskylda, við vottum ykkur samúð og jákvæð minning um einstakan mann lifir með okk- ur um ókomna tíð. Takk fyrir samfylgdina, kæri Grjóni. Ingólfur, Smári, Tómas Ingi og fjölskyldur. Sigurjón Sveinbjörnsson ✝ GuðmundurÁsgeirsson fæddist í Reykja- vík 22. maí 1949. Hann lést á líknar- deild Landspít- alans 29. septem- ber 2019. Foreldrar Guð- mundar voru Sigurbjörg Guð- mundsdóttir, f. 25. apríl 1926, d. 24. maí 2014, og Ásgeir Magnús- son, f. 7. nóvember 1918, d. 15. desember 2016. Systkini Guð- mundar eru: Hörður, f. 1951, Lóa, f. 1954, Magnús Ingi, f. 1959, og Ingólfur, f. 1960. Eftirlifandi eiginkona Guð- son, f. 1982, maki Rakel Ósk Guðbjartsdóttir. Fyrri kona Guðmundar er Erla Ragnhildur Guðmundsdóttir og börn þeirra Guðmundur Ingi, f. 1968, og Helga Björt, f. 1979. Barnabörn Guðmundar eru 13. Guðmundur ólst upp í for- eldrahúsum í Bústaðahverfinu í Reykjavík, hann lagði stund á vélvirkjanám í Iðnskólanum í Reykjavík og starfaði æ síðan við þá iðn. Fyrst sem sveinn hjá meistara sínum í fyrir- tækinu Stálver. Hann lauk meistaranámi í vélvirkjun og stofnaði síðan sitt eigið fyrir- tæki, Vélsmiðjuna Nörfa, sem hann rak til ársins 1988. Eftir að fyrirtækjarekstrinum lauk starfaði hann í verktöku hjá ýmsum fyrirtækjum, en starf- aði síðast hjá fyrirtækinu DS lausnir. Útför Guðmundar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 10. október 2019, klukkan 13. mundar er Erna Reynisdóttir, f. 3. nóvember 1949. Foreldrar Ernu voru Bjargey Guð- mundsdóttir, f. 1. mars 1926, d. 28. ágúst 2015, og Reynir Guðmunds- son, f. 14. nóvem- ber 1918, d. 20. janúar 1994. Guðmundur gift- ist eftirlifandi eiginkonu sinni 19. maí 1990, börn hennar eru: 1) Guðmundur Pálsson, f. 1970, maki Sif Björk Hilmarsdóttir, 2) Linda Pálsdóttir, f. 1977, maki Ólafur Helgi Þorgríms- son, og 3) Hermann Örn Páls- Flest okkar í klúbbnum kynntust Guðmundi fyrir rúm- um aldarfjórðungi, þegar mat- arklúbburinn, sem við vorum félagar í, var stofnaður. Við frá- fall hans blasir það við að fund- ir okkar verða til muna dauf- legri. Guðmundur hafði gaman af að skemmta sér og var ávallt hrókur alls fagnaðar. Hann hafði fallega tenórrödd sem því miður var ekki mikið notuð til söngs. En þegar líða tók á fundi okkar og búið var að smyrja raddböndin vel með söngvatni þótti honum fátt skemmtilegra en að taka lagið og var þá með- al annars uppáhaldslag hans, Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur, sungið við raust og röddin ekki spöruð. En það var annað sem ein- kenndi vin okkar ekki síður, en það voru ákveðnar lífs- og stjórnmálaskoðanir og dró hann hvergi af sér í rökræðum. Hann var rökfastur og fylginn sér og varð ekki svo glatt undir í rök- ræðum. En þótt hart væri tek- ist á um málefni líðandi stundar var alltaf stutt í brosið og hlát- urinn. Matarklúbbsfundirnir verða dauflegri nú þegar aðstoðaryf- irkokkurinn mætir ekki lengur. Rökræður um stjórnmál verða svipur hjá sjón, leggjast trúlega bara af að mestu. Það mun vanta tenórtóninn í sönginn, sem verður kraftminni og ris- lægri. Við kveðjum kæran félaga og vin með eftirsjá, en þökkum jafnframt fyrir ótalmargar gleði- og söngstundir í gegnum árin, stundir sem við varðveit- um í ómetanlegum sjóði minn- inga. Við biðjum þann sem öllu ræður að styrkja Ernu, börnin, tengdabörnin og barnabörnin. Far þú í friði kæri vinur. Fyrir hönd Matarklúbbs Turnersamtakanna, Guðmundur Sigþórsson. Fallinn er frá Guðmundur Ásgeirsson vinur minn eftir stutta en hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Kynni okkar Guðmundar hófust þegar hann gekk til liðs við okkur félagana í skátahreyfingunni sem ung- lingur og hafa varað hnökra- laust síðan. Við vorum mjög samrýndir nokkrir félagar í skátahreyfing- unni á þeim árum og höfum haldið félagsskapinn með því að hittast og ferðast saman með eiginkonum og það er margs að minnast eftir öll þessi ár. Við fórum alloft með fjölskyldur okkar í Þjórsárdalinn þar sem við tjölduðum og áttum saman góðar stundir. Ein ferðanna er mér sérlega minnisstæð en þá sátum við öll saman eftir kvöldgrillið í frá- bæru veðri. Þegar flestum þótti svo tími til kominn að ganga til náða ákváðum við Guðmundur að fara í göngutúr. Það var góð ákvörðun hjá okkur, en við gengum á fjöll á móti sólarupp- rásinni og áttum saman góðar stundir. Við skiluðum okkur svo til baka um það leyti sem ferða- félagarnir voru að vakna, sá göngutúr gleymist ekki. Nú á seinni árum hittumst við frekar í heimahúsum eða í sumarhúsum okkar. Við fórum líka í ógleymanlega ferð til Krítar á síðasta ári og alltaf hefur verið glatt á hjalla, rifj- aðar upp gamlar minningar og mikið hlegið. Samskipti okkar Guðmundar jukust til mikilla muna þegar fyrirtæki okkar leigðu saman atvinnuhúsnæði undir rekstur- inn, það voru mikil og góð sam- skipti sem síðar þróuðust út í að Guðmundur gerðist verkstæðisformaður hjá mínu fyrirtæki. Það var mikið lán fyrir mig að fá einn af mínum bestu vin- um til að standa í og stjórna þeirri erfiðu vinnu sem hann gerði af sínum einstaka dugnaði og ósérhlífni. Guðmundur aflaði sér alls staðar virðingar og vin- semdar með sinni prúðmann- legu en samt rökföstu fram- komu, jafnt hjá viðskiptavinum og samstarfsmönnum, traustur og góður drengur. Í annað skipti á rúmu ári missum við „Félagarnir“ sem haldið höfum saman allt frá því í skátahreyfingunni í gamla daga, góðan vin úr okkar hópi en Trausti Hallsteinsson lést á síðasta ári, það er því stórt skarð fyrir skildi hjá okkur en auðvitað er missirinn mestur og sárastur hjá fjölskyldum þeirra. Við Björk sendum Ernu og börnum þeirra hjóna okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minning um góðan dreng lifir. Eiður Haraldsson. Góður vinur hefur kvatt okkur „Félagana“ – samfylgd- inni lokið i bili. Sorgin hefur vitjað okkar en eftir sitja minningar um góðan félaga og vin. Kynni okkar og vinátta hófust í skátastarfi fyrir hart- nær 60 árum. Ferðalög og ská- taútilegur mótuðu og hertu vináttuna og á unglingsárun- um stofnuðum við nokkrir fé- lagar skátaflokk sem við köll- uðum „Félagana“. Við félagarnir höfum haldið hópinn allar götur síðan. Nú hefur verið höggvið skarð í raðir okkar þar sem tveir af okkur hafa fallið frá með stuttu milli- bili. Þegar við félagarnir stofn- uðum fjölskyldur héldum við áfram að ferðast og eru fjöl- skylduferðirnar inn í Þjórsár- dal og í Borgarfjörðinn minn- isstæðar. Ótrúlegt hvað bílarnir máttu þola á þjóðveg- um landsins á þessum árum, en víða var farið og alltaf jafn gaman, börnin rifja það upp annað slagið. Alltaf var stutt í glensið og gleðina hjá Mumma, eins og hann var oftast kall- aður. Ekki þurfti mikið til að Mummi tæki lagið, enda söng- maður góður, sem kom sér vel þegar átti að syngja minni kvenna á þorrablótum okkar félaganna. Heimsóknir til Ernu og Mumma voru alltaf jafn ánægjulegar hvort sem var heima eða í bústaðinn. Þessar heimsóknir urðu tíðari hin seinni ár – innlit í glæsilegan sumarbústað Mumma og Ernu var okkur hjónum alltaf til gleði. Oft var rætt um það að við félagarnir færum utan saman. Það var svo í september í fyrra að hópurinn fór í sólina til Krítar, sérlega skemmtileg ferð sem átti að endurtaka eft- ir tvö ár. Við hjónin viljum þakka Mumma fyrir samfylgdina og vináttuna í gegnum árin og vottum Ernu og fjölskyldu og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Kristján Örn og Þórunn. Guðmundur Ásgeirsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, RAGNA FRIÐRIKSDÓTTIR, lést sunnudaginn 6. október. Útför hennar fer fram mánudaginn 14. október klukkan 11 frá Digraneskirkju. Fjölskyldan Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, GUÐRÍÐUR HELGA MAGNÚSDÓTTIR, Túngötu 36, Reykjavík, lést þriðjudaginn 8. október. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 16. október klukkan 13. Þórir Ragnarsson Sigurður Thoroddsen Ingibjörg Þórisdóttir Guðmundur Möller Ragnar Þórisson Jósef Magnússon Jakob H. Magnússon Valgerður Jóhannsdóttir og barnabörn Okkar ástkæra ERLA ÁRMANNSDÓTTIR frá Tindum lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold 3. október. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 18. október klukkan 13. Innilegar þakkir til starfsfólks Ísafoldar fyrir góða umönnun. Fyrir hönd annarra ástvina, Randver Ármannsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR SIGURÐSSON vélvirkjameistari, Herjólfsgötu 32, áður Köldukinn 26, Hafnarfirði, andaðist á líknardeild Landspítalans 7. október. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 18. október klukkan 13. Erla Elísabet Jónatansdóttir Jónatan, Jenný, Erla Björg Hrafnhildur, Kristín og Drífa Garðarsbörn tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.