Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 41
lands frá því að stríðið í Sýrlandi
hófst árið 2011.
Tyrkland á aðild að Atlantshafs-
bandalaginu. Framkvæmdastjóri
þess, Jens Stoltenberg, sagði að
Tyrkir hefðu lögmætra öryggishags-
muna að gæta en hvatti þá til að forð-
ast aðgerðir sem ykju á blóðsúthell-
ingarnar í Sýrlandi, mögnuðu
spennuna og gætu valdið neyðar-
ástandi meðal íbúanna. Hann varaði
einnig við því að átök milli Tyrkja og
Kúrda gætu stefnt baráttunni gegn
Ríki íslams í hættu.
Leiðtogar margra ríkja heims létu
í ljós áhyggjur af hernaði Tyrkja og
boðað var til fundar um málið í ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag.
Stjórnvöld í Frakklandi, Þýskalandi
og Bretlandi unnu að sameiginlegri
yfirlýsingu þar sem hernaðurinn
verður fordæmdur.
Þúsundir íslamista gætu
sloppið úr fangelsum
» Kúrdar segja að herlið þeirra
haldi um 12.000 liðsmönnum
hryðjuverkasamtakanna Ríkis
íslams í sjö fangelsum. Um
4.000 þeirra eru frá öðrum
löndum en Sýrlandi.
» Kúrdar segja að árásir
Tyrkjahers geti orðið til þess
að hermenn þeirra sem hafa
annast öryggisgæslu í fangels-
unum þurfi að fara þaðan til að
verjast hernaði Tyrkja.
» Um 11.000 hermenn Kúrda
biðu bana í átökum við liðs-
menn Ríkis íslams.
FRÉTTIR 41Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
595 1000 . heimsferdir.isBókaðuþína ferð á
Marokkó
24. OKTÓBER Í 9 NÆTUR
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
Landdulúðarogævintýra
Oasis Hotel & Spa
Frá kr.99.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður
aaa
Sofitel Royal Bay
Frá kr. 169.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Innifalið: Flug, Gisting, Morgunverður
aaaaa
Stökktu!
Frá kr. 79.995
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Innifalið: Flug, Gisting, Ekkert fæði
aa
flug & gisting
Skoðaðu fleiri gistingar og sérferðir á heimsferdir.is
Flug frá kr.
69.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri
Að minnsta kosti tveir menn biðu
bana og tveir særðust alvarlega í
skotárásum í kebab-verslun og á
götu við samkunduhús gyðinga í
þýsku borginni Halle í gær. Maður
sem grunaður er um árásirnar var
handtekinn þegar hann reyndi að
flýja. Sjónarvottar sögðu að árásar-
maðurinn hefði verið í sérsveitar-
búningi og með nokkur vopn. Götum
var lokað í borginni og íbúum hennar
var ráðlagt að halda sig innandyra.
Innanríkisráðherra Þýskalands
sagði að grunur léki á að árásar-
maðurinn væri þjóðernisöfgamaður
og gyðingahatari.
Talsmaður lögreglunnar í Halle
sagði að annar þeirra sem létu lífið
hefði verið í kebab-verslun. Hermt
er að kona hafi beðið bana á götu við
samkunduhús og grafreit gyðinga í
borginni.
Max Privorotzki, leiðtogi gyðinga í
Halle, sagði að árásarmaðurinn hefði
reynt að komast inn í samkundu-
húsið. Um 70-80 manns voru í húsinu
í tilefni af yom kippur, friðþæging-
ardegi gyðinga, sem var í gær.
Minnst tveir létu
lífið í skotárásum
AFP
Skotárás Árásarmaður hleypir af byssu á götu í borginni Halle í gær.
Michel Barnier, aðalsamningamaður
Evrópusambandsins, sagði í gær að
það gæti ekki fallist á tillögur Boris
Johnsons, forsætisráðherra Bretlands,
um nýjan brexit-samning. Gert er ráð
fyrir því að Barnier ræði málið á
morgun við Stephen Barclay, brexit-
ráðherra bresku stjórnarinnar, og
hann sagði að samningamenn ESB
væru tilbúnir til viðræðna við Breta
nótt sem nýtan dag í aðdraganda leið-
togafundar ESB-ríkjanna á fimmtu-
dag og föstudag í næstu viku. Hann
sagði þó að tillögur Johnsons gætu
ekki verið grundvöllur brexit-
samnings þar sem þær græfu undan
samningnum frá árinu 1998 um frið á
Norður-Írlandi og veiktu innri markað
Evrópusambandsins. Tillögur John-
sons um tilhögun tollgæslu vegna við-
skipta milli Írlands og Norður-Írlands
byggðust á óraunhæfum lausnum,
væru „reistar á tilgátum“ og „tækni
sem hefur ekki enn verið þróuð“.
Jean-Claude Juncker, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, kvaðst ekki úti-
loka að samkomulag næðist á næstu
dögum en sagði að lítill árangur hefði
náðst í viðræðunum.
Johnson ræðir í dag við Leo Varad-
kar, forsætisráðherra Írlands, og
kveðst vera „varfærnislega bjartsýnn“
á að samkomulag náist.
AFP
Brexit-þref Michel Barnier flutti
ræðu á Evrópuþinginu í gær.
Gagnrýnir
tillögur
Johnsons
Sagðar reistar á
óraunhæfum lausnum