Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 14
Vinkonur Sigga og Vala loka augum og slaka á þegar þeim finnst þess þurfa.
Stelpurnar í Hljómsveitinni Evu, þær
Sigríður Eir Zophoníasardóttir og
Vala Höskuldsdóttir, þekkja af eigin
raun hvernig það er að brenna út,
lenda í kulnun. Þær ætla í dag,
fimmtudag, í tilefni af Alþjóðageð-
heilbrigðisdeginum að vera með
fyrirlestur í tali og tónum undir yfir-
skriftinni: Það er allt í lagi að leggja
sig á daginn. Þær koma fram í
Borgarbókasafninu Sólheimum kl.
17.30.
„Í fyrra lenti Sigga, helmingur
hljómsveitarinnar, í því að brenna út,
kulna. Hún vann yfir sig, gerði of
margt, tók að sér of mikið og endaði í
kulnun, sem hún vissi varla hvað var
á þeim tíma. Við gripum tækifærið og
fórum að rannsaka þetta samfélags-
mein og hvernig það kemur til og
komumst að því að Sigga er ekki ein.
Af hverju erum við svona yfirkeyrð?
Er ekki passlegt að vinna fulla vinnu,
sjá um heimilið, fara í ræktina og
stunda núvitund, kaupa inn og fara
með bílinn í skoðun? Er þetta nokkurt
mál? Afraksturinn er þessi fyrirlestur
í tali og tónum sem við vonum að sé
um leið afslappandi og uppfræðandi
og kannski að þið brosið út í annað,“
segja þær stöllur. Hljómsveitin Eva ku
vera þekkt fyrir töfrandi og líflega
framkomu sem kemur áheyrendum
sífellt á óvart, kitlar hláturtaugar og
snertir hjörtun um leið. Heitt verður á
könnunni í dag og allir velkomnir.
Stelpurnar í hljómsveitinni Evu rannsökuðu kulnun
Sigga og Vala minna á að það er
allt í lagi að leggja sig á daginn
Hljómsveitin Eva Þær Sigga og Vala kitla hláturtaugar og snerta hjörtu.
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Það eru engin ný
sannindi að geð-
heilsan skiptir
meginmáli þegar
kemur að vellíð-
an og hvernig
við þrífumst í
umhverfi okkar.
Flest vitum við
hvernig við eig-
um að hlúa að
geðheilsunni en
það er stundum erfitt að finna
tíma fyrir allt sem gerir okkur
gott.
Miklu máli skiptir að finna sér
athafnir sem næra og draga úr
streitu og álagi. Það eru oft ein-
földu hlutirnir sem kosta ekkert
og eru næst okkur sem færa okk-
ur hugarró og andlega næringu.
En streita, álag, kvíði og þung-
lyndi hafa margar birtingar-
myndir.
Rannsóknir sýna að ríflega
þriðjungur þeirra sem leita til
heilsugæslunnar á fyrst og fremst
við geðheilsuvanda að stríða.
Vert er að muna að mörg líkam-
leg einkenni geta stafað af and-
legri vanlíðan eða streitu ein-
göngu. Má þar nefna hjartsláttar-
truflanir, höfuðverk, meltingar-
ónot og aðra algenga verki. Er þá
gjarnan talað um sállíkamleg ein-
kenni, sem eru býsna algeng.
Hvert á að leita?
En þegar við þurfum að leita til
heilbrigðisþjónustunnar vegna
andlegrar vanlíðanar er kannski
ekki augljóst hvar hjálp er að fá.
Þá er gott að leita til heilsugæsl-
unnar sem greinir og veitir viðeig-
andi þjónustu eða vísar áfram ef
þörf er á.
Hér eru útskýrð í stórum drátt-
um hin ólíku þjónustustig og hvert
leita megi innan heilsugæslunnar.
Þjónustustigin þrjú
Heilbrigðisþjónustan á Íslandi
er oft skilgreind með eftirfarandi
hætti:
1. stigs þjónusta: Heilsuvernd,
fyrsta greining og meðferð heilsu-
farsvanda, almenn þjónusta.
2. stigs þjónusta: Sérhæfðari
þjónusta án innlagnar á sjúkrahús.
3. stigs þjónusta: Meðferð og að-
hlynning á sjúkrahúsum.
Þjónustustigin vinna saman að
velferð einstaklingsins þar sem
metið er hvaða meðferðar er þörf
hverju sinni.
1. stigs þjónusta:
Heilsugæslan
Heilsugæslan ætti að jafnaði að
vera fyrsti viðkomustaðurinn í
upphafi hvers heilsuvanda.
Upplýsingar um þjónustu
heilsugæslustöðvanna má auðveld-
lega fá:
Í þjónustuvefsjá á Heilsu-
vera.is
Á vef Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins. heilsugaeslan.is
Með símtali við heilsugæslu-
stöðina þína.
Í vaktsímanum 1700 sem er
opinn allan sólarhringinn.
Með viðtali við hjúkrunar-
fræðing samdægurs, sem
metur vanda og veitir
fræðslu.
Á síðdegisvakt stöðvarinnar.
Í bókuðum tíma hjá þínum
heimilislækni.
Fagfólk heilsugæslunnar hefur
þekkingu og reynslu til að greina
andlega vanlíðan og meðhöndla al-
gengustu geðraskanir, eins og
kvíða og þunglyndi. Sálfræðiþjón-
usta er í boði á öllum heilsugæslu-
stöðvum.
Heimilislæknar og annað fagfólk
á heilsugæslustöðvum getur vísað
einstaklingum til starfandi sál-
fræðinga á heilsugæslustöðvum,
svo og í önnur viðeigandi meðferð-
arúrræði, eins og til sérfræðinga á
stofum eða geðheilsuteymi HH.
2. stigs þjónusta:
Sérhæfðari þjónusta án
innlagnar á sjúkrahús
Heilsugæslan nær að mæta
þörfum meirihluta einstaklinga
með geðraskanir. Þar sem frekari
aðstoðar er þörf kemur til þjón-
ustu geðheilsuteyma.
Geðheilsuteymi HH eru nýjung
og sinna 2. stigs þjónustu. Ekki er
hægt að leita beint til þeirra án til-
vísunar, sem getur komið frá fag-
fólki, bæði frá 1. og 3. stigs heil-
brigðisþjónustu. Einnig getur
fagfólk félagsþjónustu sent tilvís-
anir.
Þegar geðheilsan bregst býður
heilsugæslan þannig upp á fjöl-
mörg úrræði. Velkomin í heilsu-
gæsluna – hér fyrir þig!
Geðheilsa: Heilbrigð
sál í hraustum líkama
Heilsuráð
Hrönn Harðardóttir, geðhjúkrunar-
fræðingur og teymisstjóri í Geðheilsu-
teymi HH vestur í Reykjavík
ThinkStock
Geðheilsa Hún skiptir miklu máli í lífinu og því þarf að huga að henni. Í dag er alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn.
Þjónustustig í heilbrigðisþjónustunni
Heilsuvernd, fyrsta
greining og
meðferð heilsu-
farsvanda,
almenn þjónusta
Sérhæfðari
þjónusta án
innlagnar á
sjúkrahús
1. stigs þjónusta 2. stigs þjónusta
Meðferð og
aðhlynning
á sjúkra-
húsum
3. stigs þjónusta
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Hrönn
Harðardóttir
KORRIDOR steypudýr
fleiri tegundir til
Verð frá 6.990,-
Kringlunni |
ROSENDAHL GRAND CRU
Krukka 0.5L fleiri stærðir
Verð 2.490,-
KARTELL BOURGIE
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 39.900,-
RITZENHOFF
ASPERGO
Verð 4.900,- 6 stk. í pakka
HOLMEGAARD
Kertalukt grey
Verð frá 9.990,- stk.
COMPONIBILI
Hirslur 3ja hæða
Verð frá18.900,-
SPECKTRUM ROARING
Vasi - fleiri litir
Verð 4.890,-
SPECKTRUM SHADOW
Kertastjaki - fleiri litir
Verð frá 7.290,- stk.STELTON
Ferðamál fleiri litir
Verð 0,4L 5.990,- Verð 0,2L 4.590,-
Kringlunni | Sími 588 0640
20%
afsláttur
af gjafavöru á
Kringlukasti
10.-14.
október
KARTELL BATTERY
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 21.900,-
KAY BOJESEN
Söngfugl –fleiri litir
Verð frá10.990,-
SPECKTRUM SQUARE
Kertastjaki - fleiri litir
Verð frá 7.290,- stk.