Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Stephen Hough, einn virtasti píanó-
leikari samtímans, leikur á tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
kvöld og verður beint streymi frá
þeim á vef hljómsveitarinnar, sin-
fonia.is.
Hough hlaut MacArthur-verð-
launin fyrstur klassískra tónlistar-
manna og hefur hljóðritað yfir 50
geisladiska og hlotið átta Gramo-
phone-verðlaun auk fjölmargra til-
nefninga til Grammy-verðlauna,
skv. tilkynningu. Hann mun nú
leika á Íslandi í þriðja sinn en um
fyrstu tónleika hans hér á landi
sagði gagnrýnandi Morgunblaðsins
að hann væri „einstakur píanóleik-
ari með magnaðan áslátt, gríðar-
lega öflugan en líka unaðslega
mjúkan“.
Hough mun leika píanókonsert
nr. 2 eftir Brahms sem gerir miklar
kröfur til píanóleikarans en er einn-
ig þekktur fyrir fagran hægan kafla
með sellói og píanói. Sjötta sinfónía
Tsjajkovskíjs verður einnig flutt á
tónleikunum. Hljómsveitarstjóri er
hin suðurkóreska Han-Na Chang.
Ljósmynd/Sim Canetty-Clarke
Virtur Píanóleikarinn Stephen Hough.
Hough leikur í kvöld með
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Lunginn af útgáfu Bókaforlagsins
Bjarts fyrir þessi jól er skáld-
skapur, skáldsögur ráðsettra höf-
unda og frumraunir í bland.
Staða pundsins (sjálfsævisaga,
þó ekki mín eigin) heitir skáldsaga
Braga Ólafssonar og segir frá því
er mæðginin Madda og Sigurvin,
hálffertug ekkja og unglingur með
nýtilkominn tónlistaráhuga, halda
til Englands árið 1976 að heim-
sækja gamlan vin látins eigin-
manns Möddu og föður Sigurvins,
mann sem býr á sveitabýli suður
af London, með fólki á sama reki
og hann; uppreisnargjörnu lista-
fólki og stjórnleysingjum.
Guðrún Eva Mínervudóttir
sendir einnig frá sér skáldsögu og
nefnir hana Aðferðir til að lifa af.
Tilviljun leiðir saman ólíka sögu-
menn skáldsögunnar: Borghildi,
sem nýorðin er ekkja, tölvukarlinn
Árna, sem þarf að takast á við of-
fitu og hreyfingarleysi, hina ungu
Hönnu, sem glímir við átröskun,
og Aron Snæ, ellefu ára son ein-
stæðrar móður.
Fyrsta skáldsaga Halldórs Lax-
ness Halldórssonar, Dóra DNA,
heitir Kokkáll. Örn, sem er sætur
og vinnur á auglýsingastofu, býður
kærustunni sinni, Hrafnhildi, í
helgarferð til Chicago að fagna
óvænt batnandi skuldastöðu sinni.
Þar verður á vegi þeirra hinn hör-
undsdökki og stimamjúki Tyrone,
og ekkert verður aftur samt.
Þegar saman við blandast æsku-
vinir Arnar, hin þroskahamlaða
Andrea og þverhausinn Hallur,
verður úr eldfimur kokkteill.
Pedro Gunnlaugur Garcia send-
ir einnig frá sér sína fyrstu skáld-
sögu. Sú heitir Málleysingjarnir
og gerist í tveimur löndum og á
ýmsum tímum, í Rúmeníu og á Ís-
landi. Í Rúmeníu 1989 er Mihail
ellefu ára, einrænn rúmenskur
piltur sem býr við þröngan kost í
Búkarest þegar forsetahjónin eru
tekin af lífi í þjóðfélagsbyltingu. Á
Íslandi 2000 eru unglingarnir
Bergþóra og Finnur samrýnd
systkini þótt ólík séu, hún luraleg
og félagsfælin en hann á hraðri
leið í vaxandi klámfíkn. Heimili
þeirra er í upplausn, foreldrarnir
á barmi skilnaðar en leita leiða til
að láta hlutina ganga upp. Saga
Pedros hlaut Nýræktarstyrk Mið-
stöðvar íslenskra bókmennta árið
2017 með afar lofsamlegri um-
sögn.
Urðarköttur er ný glæpasaga
frá Ármanni Jakobssyni og hefur
að aðalpersónum sama lögreglu-
teymi og kom fyrir í bókinni Út-
lagamorðunum. Í bókinni eru tvær
konur myrtar í Reykjavík og ekki
verður séð að nokkur tengsl séu á
milli þeirra nema í gegnum hinn
dularfulla urðarkött sem skrifar
lögreglunni torræð bréf.
Óskar Guðmundsson sendir
einnig frá sér glæpasögu. Boðorð-
in er þriðja bók hans þeirrar teg-
undar og hefst á köldum vetrar-
morgni árið 1995 þegar Anton, 19
ára piltur, hittir prest fyrir utan
Glerárkirkju á Akureyri. Eftir það
sást hann aldrei aftur. Tveimur
áratugum síðar finnst prestur
myrtur í kirkjunni á Grenivík.
Þegar lögreglan fer að rannsaka
málið kemst hún að því að djákna
hefur verið ráðinn bani inni á
Akureyri.
Tvær bækur fyrir börn og ung-
menni koma út á vegum Bjarts.
Friðbergur forseti, eftir Árna
Árnason, segir frá því er Frið-
bergur forseti hefur náð völdum á
Íslandi á vafasömum forsendum,
búinn að reka sendiherra Banda-
ríkjanna úr húsnæði sínu við
Engjateig og hefur sjálfur komið
sér þar fyrir. Systkinin Sóley og
Ari og skólafélagar þeirra eru
ekki sérlega upptekin af þessu en
þegar vinum þeirra, Iman og
Nabil, hefur verið vísað úr landi
bara fyrir það eitt að vera útlend-
ingar er þeim nóg boðið.
Í bókinni Skuggahliðin jólanna
rekja þau Eva María Jónsdóttir
og Rósa Þorsteinsdóttir rætur nú-
tíma jólahalds og þær verur í ís-
lenskri þjóðtrú sem fóru á kreik
til forna þegar myrkrið er mest:
tröll, huldufólk, skessur, drauga,
jólakött og jólasveina sem höfðu
ekki alltaf gott í hyggju. Í bókinni
er safn kvæða og sagna sem finn-
ast hljóðritaðar í Stofnun Árna
Magnússonar eftir nafngreindu
fólki á liðinni öld. Teikningar í
bókinni eru eftir Óskar Jónasson.
Í greinasafni Huldars Breið-
fjörð, Sólarhringli, skoðar hann
samband Íslendingsins við heim-
kynni sín. Hvernig er best að
skafa af bílnum? Hvenær er óhætt
að setja sumarblómin út? Er lífið
kannski betra á Kanaríeyjum?
Hversdagurinn, fornsögurnar,
forsælubæir, reikular árstíðir og
suðið á eyjunni bláu. Allt er þetta
samfléttað daglegu lífi og minn-
ingum Huldars.
Einnig gefur Bjartur út ljóða-
bók Eyrúnar Óskar Jónsdóttur,
sem heitir Mamma, má ég segja
þér?, og Glóðir, ljóðasafn Sigurðar
Hansen.
Væntanlegt er og heildarsafn
kvæða Jóns Helgasonar: Úr land-
suðri og fleiri kvæði, með formála
eftir Bergsvein Birgisson.
arnim@mbl.is
Skáldsögur í bland
Obbinn af útgáfu Bjarts fyrir þessi jól er skáldsögur fyrir
fólk á ýmsum aldri eftir nýliða og þrautreynda höfunda
Guðrún Eva
Mínervudóttir
Halldór Laxness
Halldórsson
Pedro Gunnlaugur
Garcia
Bragi
Ólafsson
Eins og fólk er flest erönnur bók unga, írskahöfundarins Sally Rooney. Rétt eins og í
fyrstu bók hennar, Okkar á milli,
fá lesendur ótrúlega innsýn í
margbreytileika mannlegra sam-
skipta. Báðar bækur hennar hafa
notið mikilla vinsælda í heimaland-
inu, Bretlandi, og víðar og ekki að
ástæðulausu.
Það er eitthvað nýtt og for-
vitnilegt við það hvernig Rooney
fer að því að
sýna fram á
hversu tilfinn-
ingalega varn-
arlaus mann-
skepnan getur
verið. Í Eins og
fólk er flest
fylgjast lesendur
fyrst með ung-
lingunum Con-
nell og Maríönnu og svo með unga,
næstum því fullorðna fólkinu Con-
nell og Maríönnu. Þvert á það sem
titill bókarinnar gefur til kynna þá
upplifa hvorki Maríanna né Con-
nell sig eins og fólk er flest. Þeim
finnst þau raunar ein í heiminum
og að enginn skilji þau. Það mætti
þó segja að þetta væri reyndar
misskilningur flestra því sammann-
leg reynsla af tilfinningum eins og
einmanaleika, ást og vonleysi er
víðtækari en margir gera sér grein
fyrir.
Eins og áður segir finnst Con-
nell og Maríönnu báðum eins og
enginn skilji þau. Það er allt þar til
þau kynnast hvort öðru. Það er
langt á milli sæta þeirra á vin-
sældalista skólans og eins og flest-
ir unglingar, sem halda að allt snú-
ist um þau og að allir séu að hugsa
um hvað þau eru að gera, í stað
þess að vera bara að hugsa um sig
sjálf, þá halda þau að um forboðna
ást sé að ræða og fela hana fyrir
öllum, eða það halda þau að
minnsta kosti.
Að menntaskóla loknum reyna
Maríanna og Connell endurtekið að
slíta sig í sundur en í mánaðanna
og áranna rás liggja leiðir þeirra
saman hvað eftir annað. Sjónar-
hornið flakkar á milli þeirra og
þannig fá lesendur innsýn í það
hvað þau eru í raun bæði ráðalaus
gagnvart þessari ógnarsterku
tengingu sem er þeirra á milli.
Sagan er í raun ljúfsár saga
tveggja manneskja sem eiga órjúf-
anlega og ógnarsterka tengingu og
vita ekki hvort eða hvernig þær
eiga að takast á við hana. Rooney á
auðsjáanlega framtíðina fyrir sér í
skrifum og á vonandi eftir að halda
áfram að kafa djúpt ofan í mann-
legt eðli með það að markmiði að
sýna lesendum að þeir eru þrátt
fyrir allt bara eins og fólk er flest.
Rooney Á framtíðina fyrir sér.
Sammannleg
reynsla
Skáldsaga
Eins og fólk er flest bbbbn
Eftir Sally Rooney
Benedikt bókaútgáfa. 262 bls. kilja.
ÞORGERÐUR ANNA
GUNNARSDÓTTIR
BÆKUR