Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Ginger, Turmeric
& Bromelain
Mögnuð blanda sem byggð er á árþúsunda
gömlum austurlenskum lækningahefðum og
reynist oft vel gegn:
n bólgum í liðum sem og annars staðar í líkamanum
n slæmu blóðflæði
n meltingarvanda
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Engifer- og túrmerikrótin eru náskyldar og eru þessar rætur einna
best þekktar fyrir bólgueyðandi eiginlega sína og að geta aukið
blóðflæði. Þær geta því haft áhrif á ýmiskonar kvilla og svo er
engiferrótin einnig vatnslosandi og getur því dregið úr bjúgsöfnun.
Bromelain er ensím unnið úr ananasplöntunni sem getur verið
gott fyrir meltinguna og margt bendir til þess að það reynist
hjálplegt gegn nefslímubólgu.
Icelandair og tónlistarfyrirtækið
AWAL hafa tekið höndum saman til
að styðja við norræna, þ. á m. ís-
lenska, og breska tónlistarmenn á
Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni
í ár. AWAL er í tilkynningu sagt
hafa umbreytt tónlistargeiranum
frá því það var keypt af Kobalt árið
2011 en Kobalt er einn helsti tón-
listarforleggjari (e. publishing
company) Evrópu og á þess snærum
eru listamenn á borð við Massive
Attack, Sonic Youth, Ellie
Goulding, Paul McCartney o.fl.
AWAL leyfir tónlistarmönnum að
halda eftir stærri eignarhluta í
verkum sínum og starfar fyrirtækið
með listamönnum á borð við Die
Antwoord, Nick Cave and the Bad
Seeds, Thom Yorke og Bruno Mars.
Samstarfið á Airwaves mun snúast
um sérstaka sýningartónleika í
Iðnó 8. nóvember sem bera titilinn
A world artists love. Á þeim koma
fram Millie Turner frá Bretlandi,
Yaeger frá Svíþjóð, íslenska hljóm-
sveitin Warmland og rapptvíeykið
JóiPé og Króli ásamt fleirum,
Warmland (IS), Jóipé x Króli (IS) og
fleiri.
Bresk Millie Turner verður á Airwaves.
Icelandair og AWAL í Airwaves-samstarf
Sirrý Arnardóttir flytur erindi á
höfundakvöldi aðalsafns Bóka-
safns Kópavogs í dag kl. 16.30.
Sirrý er rithöfundur, stjórn-
endaþjálfari og kennari við Há-
skólann á Bifröst og mun segja
frá viðtalsbók sinni Þegar kona
brotnar – og leiðin út í lífið á ný.
Bókin er unnin í samstarfi við
VIRK og sýnir ólíkar ástæður og
birtingarmyndir kulnunar og ör-
mögnunar margra íslenskra
kvenna nútímans og leiðir sem
virkað hafa fyrir þær til að öðlast
starfsgleði og gott líf aftur, eins
og því er lýst í tilkynningu.
Morgunblaðið/Eggert
Erindi Sirrý Arnardóttir segir frá bók sinni.
Sirrý segir frá viðtalsbók sinni
Veröld gefur út bækur úr ýmsum
áttum fyrir jólin, ævisögur, þjóð-
legan fróðleik, fagurbókmenntir og
skondnar smásögur.
Í skáldsögu Ólafs Jóhanns
Ólafssonar, Innflytjandanum, segir
frá því er innflytjandi finnst látinn
úti í Örfirisey á dimmum og köld-
um febrúardegi. Um sömu helgi
verða landsmenn helteknir af
hvarfi ungrar íslenskrar stúlku
sem gufar sporlaust upp í myrkr-
inu, snjónum og ófærðinni. Hildur
Haraldsdóttir sem búið hefur í
New York um árabil kemur til Ís-
lands með jarðneskar leifar vinar
síns til að uppfylla hans hinstu
ósk. Hún hefur þýtt Kóraninn á ís-
lensku og leitar lögreglan ráða hjá
henni í tengslum við lát innflytj-
andans. Sjálf á hún undir högg að
sækja vestan hafs og sogast nú að
auki inn í íslenskt skammdegi.
Úlfar Þormóðsson sendir frá sér
skáldsögu er hann nefnir Hugvill-
ing. Í bókinni er rithöfundur að
skrifa um trú og vantrú og furð-
urnar í lífi sínu þegar einkennileg
skilaboð birtast á tölvuskjánum
hans og farsíminn fer að haga sér
undarlega. Skilaboðin eiga rætur
sínar að rekja til háttsetts emb-
ættismanns er býr yfir upplýsing-
um um myrkraverk sem verið er
að fremja innan stjórnkerfisins.
Hann vill fá rithöfundinn til að
rannsaka málið og gera það opin-
bert.
Í Þögn Yrsu Sigurðardóttur
hverfur hvítvoðungur, sem fæddur
var af íslenskri staðgöngumóður,
úr barnavagni í Reykjavík. Ellefu
árum síðar deyr stúlka úr misling-
um og faðirinn vill jafna sakir við
þann sem smitaði dótturina. Og
kona finnst látin í yfirgefinni bif-
reið. Lögreglumaðurinn Huldar og
Freyja sálfræðingur takast hér á
við snúið mál þar sem ekkert er
sem sýnist og yfir og allt um kring
er þögn sem enginn vill rjúfa.
Ragnar Jónasson sendir einnig
frá sér glæpasögu fyrir jólin. Sú
heitir Hvítidauði og hefst þar sem
tveir starfsmenn á berklahæli rétt
utan við Akureyri deyja árið 1983
og ljóst að andlát þeirra bar ekki
að með eðlilegum hætti. Ungur af-
brotafræðingur vinnur að lokarit-
gerð um þetta undarlega mál árið
2012 og kemur þá ýmislegt óvænt
í ljós. Samhliða rannsókninni þarf
hann að takast á við erfiðleika í
einkalífi sínu – erfiðleika sem þola
illa dagsins ljós.
Þriðja glæpasaga Veraldar fyrir
jólin er Stelpur sem ljúga eftir
Evu Björgu Ægisdóttur. Einstæð
móðir hverfur af heimili sínu en
skilur eftir miða með skilaboðum á
eldhúsborðinu. Þegar illa farið lík
finnst í Grábrókarhrauni sjö mán-
uðum síðar standa lögreglukonan
Elma og samstarfsmenn hennar
frammi fyrir flókinni morðgátu.
Fimmtán árum fyrr liggur nýbök-
uð móðir á fæðingardeild og hefur
óbeit á barninu sem liggur við hlið
hennar. Eva hlaut spennusagna-
verðlaunin Svartfuglinn fyrir
fyrstu bók sína.
Smásagnasafnið Tími til að
tengja eftir Bjarna Hafþór Helga-
son svarar ýmsum spurningum
sem kvikna fyrir jólin eins og: Ef
litlu jól er réttnefni, hversu lítil
eru þau þá í raun og veru?
Hvernig sigrar maður nágranna í
jólaskreytingum? Hefur Andrés
ekkert annað fram að færa en að
vera utan gátta? Hvernig stendur
á því að Adam Freyr og Mjallhvít
Ósk eignuðust sjö dvergvaxna
syni?
Tvær ævisögur koma út hjá
Veröld fyrir jólin. Í Skuggasól
segir Björg Guðrún Gísladóttir
sögu sína frá því hún var villuráf-
andi í myrkri unglingsáranna með
brotna sjálfsmynd, áföll bernsku-
áranna í farteskinu og vissi ekki
hvert hún átti að halda í lífinu.
Leið Bjargar frá stefnulausri ung-
lingsstelpu yfir í stolta, þroskaða
konu sem er sátt við sjálfa sig og
fortíðina var langt frá því þrauta-
laus. Björg Guðrún Gísladóttir
vakti athygli fyrir minningasögu
sína Hljóðin í nóttinni um upp-
vöxtinn í Höfðaborginni.
Stöngin út, sem Magnús Guð-
mundsson ritar, rekur ævintýra-
legt líf Halldórs Einarssonar í
Henson sem þjóðþekktur er sem
knattspyrnumaður, íþróttafröm-
uður og frumkvöðull. Hér lítur
hann yfir litríkan feril sem ein-
kennst hefur af miklum sveiflum
og stórkostlegum ævintýrum í við-
skiptum og knattspyrnu, hérlendis
og erlendis. Persónugalleríið er
litríkt. Hér stíga á svið kappar á
borð við George Best, Rod Stew-
art og Hermann Gunnarsson, sem
var aldavinur Halldórs.
Í febrúar árið 1925 gekk mikið
óveður yfir Ísland, það mesta frá
upphafi mælinga. Þök fuku, hlutar
rifnuðu af húsum og hurfu út í
buskann. Fimm manns urðu úti í
fárviðrinu. Áhrif hamfaranna urðu
þó mest á sjó, nánar tiltekið á
Halamiðum úti fyrir Vestfjörðum.
Þar var fjöldi togara að veiðum og
börðust áhafnir þeirra hetjulega
við hamslaust óveðrið. Sum skip-
anna náðu landi, önnur ekki, og
alls drukknuðu 74 sjómenn. Í
Halaveðrinu mikla fjallar Steinar
J. Lúðvíksson um þetta mikla
mannskaðaveður.
Í Hlaupabók Arnars Péturs-
sonar er að finna svör við öllum
þeim spurningum sem koma upp
hjá þeim sem stunda hlaup, byrj-
endum jafnt sem lengra komnum.
Arnar, sem er sjöfaldur Íslands-
meistari í maraþoni, bendir á leið-
ir til að tryggja að hlaupin veiti
ánægju og hlauparinn bæti árang-
ur sinn, auk þess að fara vel með
líkamann.
Að lokum má nefna bókina
Þrettán eftir Friðrik Erlingsson
sem er endurskoðuð útgáfa á
skáldsögunni Góða ferð, Sveinn
Ólafsson sem kom út árið 1998.
arnim@mbl.is
Veröld gefur út bækur af ýmsum toga fyrir jólin
Ragnar
Jónasson
Björg Guðrún
Gísladóttir
Yrsa
Sigurðardóttir
Halldór
Einarsson
Úlfar
Þormóðsson
Ólafur Jóhann
Ólafsson
Steinar J.
Lúðvíksson
Eva Björg
Ægisdóttir
Ævisögur, þjóðlegur fróð-
leikur og morð á morð ofan
A! Gjörningahátíð hefst í dag á
Akureyri og stendur yfir til og
með 13. október. Hún er fjögurra
daga alþjóðleg og árleg gjörn-
ingahátíð og er þetta í fimmta
sinn sem hún er
haldin og frítt
inn á alli við-
burði.
A! er sam-
vinnuverkefni
Listasafnsins á
Akureyri, Menn-
ingarhússins
Hofs, Leik-
félags Akur-
eyrar, LÓKAL
– alþjóðlegrar
leiklistarhátíðar, Gilfélagsins og
Heim – vídeólistahátíðar.
Fjölbreyttir gjörningar og leik-
hústengd verk verða á dagskrá A!
og eru þátttakendur bæði ungir og
upprennandi listamenn sem og
reyndir og virtir gjörningalista-
menn og leikhúsfólk.
Listamennirnir sem eru með að
þessu sinni eru þeir Ásdís Sif
Gunnarsdóttir, Dustin Harvey,
Einkasafnið, Florence Lam, Har-
aldur Jónsson, Íris Stefanía, hljóm-
sveitin Eva, listahópurinn Kaktus,
The Northern Assembly / Nord-
ting, Rodney Dickson, Photo Stud-
io »Schmidt & Li«, Snorri Ás-
mundsson, Sunna Svavarsdóttir,
Tales Frey og Tine Louise Kort-
ermand / María.
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðu Listasafnsins á Akur-
eyri og á facebooksíðu hátíðar-
innar.
Á A! Ásdís Sif Gunnarsdóttir tekur þátt í
gjörningalistahátíðinni A! á Akureyri.
A! Gjörningahátíð
hefst á Akureyri
Haraldur
Jónsson