Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
94% ökumanna finnst þeir öruggari með EyeSight tækni
Þú fyllist hugarró þegar þú veist að bíllinn þinn skerst í leik og aðstoðar þig við að koma í veg fyrir árekstur. Varar þig við
þegar aðvífandi ökutæki er á blinda punktinum. Og gerir þér kleift að leggja bílnum áreynslulaust í þröngt stæði með aðstoð
myndavélar sem sýnir nálægð við gangstéttarbrún. EyeSight er staðalbúnaður í öllum Subaru Forester.
www.subaru.is
Komdu til okkar og reynsluaktu nýjum Subaru Forester
Subaru Forester
Gerður til að kanna
ætlaður til að ferðast
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
6
1
4
9
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarin misseri hafa verið gerð-
ar miklar endurbætur á Dettifoss-
vegi. Ekki veitti af því þetta var
niðurgrafinn og illfær vegur og oft
ófær að vetrarlagi.
Lokaáfangi Dettifossvegar var
boðinn út í vor og ætlunin er að hon-
um verði lokið 2021.
Á Dettifossvegi skal leggja burð-
arlag og klæðingu á um 7,2 kíló-
metra kafla ofan Vesturdals og
byggja nýjan 4,2 km langan veg neð-
an Vesturdals. Byggja skal frá
Dettifossvegi 2,7 km langan veg nið-
ur í Hólmatungur, 1,6 km langan veg
niður í Vesturdal og 1,5 km langan
veg upp á Langavatnshöfða. Auk
þess skal gera nokkra áningarstaði.
Tilboð í Dettifossveg voru opnuð
12. júní. Aðeins tvö tilboð bárust í
verkið og ákveðið var að semja við G.
Hjálmarsson hf. á Akureyri sem átti
lægra tilboðið upp á 901,6 milljónir
króna. Ákvörðunin var kærð af ÞS
verktökum ehf. á Egilsstöðum, sem
buðu 987,4 milljónir. Niðurstaða
kærunefndar útboðsmála var að
heimila samning við G. Hjálmarsson
hf. og var samningur undirritaður
25. júlí. Áætlaður verktakakostn-
aður var 850,2 milljónir.
Framkvæmdir fóru af stað fyrri
hlutann í ágúst og er nú unnið af full-
um krafti við kaflann Vesturdalur-
Ásheiði og einnig er verið að byrja á
veginum niður í Vesturdal. Unnið
verður svo lengi sem veður leyfir, að
því er fram kemur á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
Haukur Jónsson, deildarstjóri
umsjónardeildar á norðursvæði
Vegagerðarinnar, segir fram-
kvæmdir ganga nokkuð vel og verk-
taki hafi verið að auka afköstin með
því að bæta við tækjum. Einnig er
hann kominn með undirverktaka til
að vinna í veginum niður í Vesturdal,
sem sé heppilegt því svæðinu þar var
lokað ferðamönnum á þessum tíma.
Ljósmynd/Vegagerðin
Vegavinna Það verður mikill munur fyrir vegfarendur þegar búið verður
að byggja Dettifossveg upp og leggja bundið slitlag á hann allan.
Unnið er á fullu
við Dettifossveg
Fjörustígurinn, fjögurra kílómetra langur göngu- og hjóla-
stígur sem liggur á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar, var
formlega tekinn í notkun í gær. Meðal viðstaddra voru Ey-
þór Laxdal Arnalds sem var í forystu bæjarstjórnar þegar
vinna við gerð stígsins hófst og Tómas Ellert Tómasson,
bæjarfulltrúi Miðflokksins í Sveitarfélaginu Árborg.
Samkvæmt upplýsingum Tómasar Ellerts var lögð mikil
áhersla á gerð göngustígs á milli Eyrarbakka og Stokks-
eyrar við sameiningu fjögurra sveitarfélaga undir nafni Ár-
borgar árið 1998. Eyrarbakki og Stokkseyri voru meðal
sveitarfélaganna sem mynduðu Árborg auk Selfoss og
Sandvíkurhrepps.
Geta notið útsýnisins
Framkvæmdir hófust á árinu 2012 og er nú lokið. Stígur-
inn er malbikaður þessa fjóra kílómetra á milli þorpanna.
Stígurinn er ætlaður gangandi og hjólandi umferð og er
samkvæmt upplýsingum Tómasar mikil bót á samgöngum á
milli þorpanna ásamt því að vera góður útivistarkostur því
hægt er að njóta náttúrunnar og góðs útsýnis við ströndina.
Fjörustígurinn í notkun
Ljósmynd/Gunnar Páll Pálsson
Ný leið Börn og fleiri heimamenn fögnuðu áfanganum með Tómasi Ellert Tómassyni bæjarfulltrúa, Gísla Halldóri
Halldórssyni bæjarstjóra og Eyþóri Laxdal Arnalds, fyrrverandi bæjarfulltrúa í Árborg.
Göngu- og hjólastígur á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar