Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Opið:
Mán. til fimmtudaga kl. 9 -18
Föstudaga kl. 9 - 17
Laugardagar kl. 11-15
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
GASELDAVÉLAR
HÁGÆðA
Við höfummörg járn í eldinum þegar það kemur að úrvali á gaseldavélum því við vitum
að ekki elda allir kokkar eins. Hvort sem þú ert ástríðukokkur eða ekki, þá höfum við
réttu græjurnar fyrir þig. Ofnarnir okkar eru með fjölda stillinga sem henta
ástríðukokkum sem og áhugafólki ummatargerð. ELBA - 106 PX
ELBA - 126 EX
3ja ára ábyrgð
ELBA Í YFiR
60 ÁR
Styrmir Gunnarsson bendir ádapurlegar staðreyndir:
Einn af þing-mönnum
brezka Íhalds-
flokksins, Owen
Paterson, lýsir af-
leiðingum sameig-
inlegrar fiskveiði-
stefnu ESB fyrir
brezkan sjávar-
útveg í grein í Daily Telegraph
á þessa leið:
Árið 1995 lönduðu 9.200brezk fiskiskip 912 þúsund
tonnum af fiski í brezkum höfn-
um.
Árið 2016 hafði þeim fækkað í
6.191, sem lönduðu 701 þúsund
tonnum.
Áður voru Bretar útflytjendurá fiski. Nú flytja þeir inn
730 þúsund tonn, segir Owen.
Hann segir jafnframt að hinsameiginlega fiskveiði-
stefna hafi leitt til ófarnaðar
fyrir fiskistofna, umhverfi, efna-
hag Breta og haft neikvæðar fé-
lagslegar afleiðingar.
Og enn vilja Samfylking ogViðreisn ganga í ESB!“
En það vilja fleiri og þar ámeðal þeir sem síst skyldu.
Þeir gáfu frá sér hagsmuni
landbúnaðarins þvert á gefin
loforð. Þá gáfu þeir frá sér úr-
slitaráð yfir orkumálunum þvert
á gefin loforð og gegn stjórnar-
skrá.
Næst munu þeir gefa frá sérsjávarútveginn. Annað
væri ekki rökrétt.
Styrmir
Gunnarsson
Lagðir í hann niður
rennibrautina
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrsta íslenska málið fyrir yfirdeild
Mannréttindadómstóls Evrópu í
Strassborg var flutt í gær. Er um að
ræða mál lögmannanna Gests Jóns-
sonar og Ragnars Halldórs Hall
gegn íslenska ríkinu. Geir Gestsson,
lögmaður þeirra, segir það vera heið-
ur fyrir sig að koma fyrir yfirdeild-
ina með mál, fyrstur Íslendinga.
Niðurstöðu í málinu er að vænta eftir
um 6-12 mánuði.
„Það er heiður að fá að flytja mál
fyrir yfirdeild Mannréttindadóm-
stólsins, fyrstur Íslendinga,“ segir
Geir og bætir við að málflutningur-
inn hafi gengið vel og að báðir lög-
menn hafi komist vel frá sínu, hann
sjálfur og Fanney Rós Þorsteins-
dóttir frá ríkislögmanni sem heldur
uppi vörnum fyrir íslenska ríkið.
Málið tengist hinu svokallaða Al-
Thani-máli Kaupþingsmanna, en
þeir Gestur og Ragnar voru sektaðir
af ríkinu fyrir að segja sig frá málinu
á sínum tíma. Þeir voru skipaðir
verjendur Sigurðar Einarssonar og
Ólafs Ólafssonar, en áður en málið
var tekið til aðalmeðferðar rituðu
þeir bréf til héraðsdómara þar sem
þeir lýstu því yfir að þeir myndu ekki
sinna frekari verjendastörfum í mál-
inu. Þeirri beiðni var hafnað.
Heiður að flytja málið fyrir MDE
Mál Gests og Ragnars fyrsta íslenska
málið fyrir yfirdeild MDE í Strassborg
Morgunblaðið/Ómar
Dómur MDE er nú með mál Gests
Jónssonar og Ragnars H. Hall.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Sjúkratryggingar Íslands áttuðu
sig á að það var ekki vinnandi vegur
að gera þetta á þeim stutta tíma sem
gefinn var. Þetta er gríðarlega um-
fangsmikið verkefni og algjör um-
skipti á öllu starfsumhverfi heillar
stéttar. Þannig breytingum verður
ekki komið á með skömmum fyrir-
vara,“ segir Unnur Pétursdóttir,
formaður Félags sjúkraþjálfara
(FS), í samtali við Morgunblaðið.
Vísar hún í máli sínu til þess að
Sjúkratryggingar Íslands hafa
ákveðið að framlengja útboðsfrest
vegna sjúkraþjálfunar til 15. janúar
næstkomandi. Var útboðsfresturinn
til 17. október.
Unnur segir sjúkraþjálfara hafa
verulegar áhyggjur af nokkrum
þáttum er snúa að útboðinu. Eru
þetta atriði á borð við nýliðun í stétt-
inni, aðgengi að sjúkraþjálfun og
gæði þjónustunnar.
„Í útboðsgögnum er ekki tekið til-
lit til gæða umfram lágmarkskröfur.
Við höfum áhyggjur af því að slíkt
muni minnka hvata til að sækja sér
endurmenntun og þá sérstaklega
framhaldsmenntun. Til þessa hafa
íslenskir sjúkraþjálfarar verið mjög
duglegir að sækja þessa menntun en
hún kostar milljónir. Ef hvati fyrir
slíku er enginn, þá erum við ansi
hrædd um að það muni koma niður á
faglegri þróun,“ segir hún.
Nokkur titringur hefur verið inn-
an stéttar sjúkraþjálfara og skjól-
stæðinga þeirra vegna útboðs á
þjónustu sjúkraþjálfara. „Óvissan
hefur einnig verið mikil enda mjög
mörgum spurningum enn ósvarað,“
segir Unnur að lokum.
Ekki komið á með
skömmum fyrirvara
Framlengja frest
vegna útboðs á
sjúkraþjálfun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bakverkur Titringur hefur verið
vegna útboðs á sjúkraþjónustu.