Morgunblaðið - 10.10.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
YFIRHÖFNIN FÆST Í
LAXDAL
TRAUST Í 80 ÁR
Fylgdu okkur á facebook
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Str.
38-58
Nýjar vörur streyma inn!
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
MOSMOSH PARTÝ
*afsláttur gildir út laugardag 12.10
20% afsláttur
Í dag fimmtudag!
Opið til kl 20
Glaðningur fylgir
öllum kaupum
Léttar veitingar!
Nanni
Jakki
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Kr. 10.990
Str. S-XXL
Hægir á íbúðamarkaði
Raunhækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og velta á markaði*
Heildarútlán lífeyrissjóða til húsnæðiskaupa og fjöldi nýrra útlána
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, janúar 2000 til ágúst 2019
160
140
120
100
80
Raunhækkun íbúðaverðs
Velta á fasteignamarkaði
Heildarútlán, milljarðar kr.
Fjöldi nýrra útlána
’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19
20%
15%
10%
5%
0%
500
400
300
200
100
0
60
45
30
15
0
1.000
800
600
400
200
0
2015 2016 2017 2018 2019
2015 2016 2017 2018 2019
Raunhækkun
Heildarútlán ma.kr.
Vísitala, janúar 2011 = 100
Velta, ma.kr.
Fjöldi nýrra útlána
*Velta á fasteignamarkaði
á föstu verðlagi í ágúst 2019.
Heimild: Seðlabanki Íslands
M.v. vísitölu byggingarkostnaðar
M.v. launavísitölu
M.v. vísitölu leiguverðs
Heimild: Seðlabanki Íslands
Heimild: Seðlabanki Íslands, Almenni lífeyrissjóðurinn
Allt um sjávarútveg
Almenni lífeyrissjóðurinn er
meðal lífeyrissjóða sem bjóða
íbúðalán.
Gunnar Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri sjóðsins, segir
veðsetningu á lánum til sjóð-
félaga hafa
verið hóflega.
Sjóðurinn sé
því vel í stakk
búinn til að
takast á við
sveiflur í hús-
næðisverði.
„Það varð
eðlisbreyting
á sjóðfélaga-
lánum lífeyrissjóða á árinu
2013. Sjóðirnir hafa breyst frá
því að vera annar lánveitandi
yfir í að vera lánveitandi númer
eitt. Hjá okkur eru þessi lán
sterk og eiga að þola töluverða
verðsveiflu á markaði.
Veðsetning er hófleg en sjóð-
urinn brást við og lækkaði há-
marksveðsetningu árið 2016 og
herti lánsskilyrði.“
Hækkaði umfram laun
Samkvæmt greiningu Gunn-
ars hefur fasteignaverð á Ís-
landi hækkað mikið í saman-
burði við laun og byggingar-
kostnað síðustu ár.
Fasteignaverð hefur hækkað
umtalsvert meira síðustu ár.
Greiningin nær til fasteigna-
verðs á höfuðborgarsvæðinu en
þróunin er að sögn Gunnars
svipuð fyrir landið allt.
„Á móti kemur að vextir hafa
lækkað mikið sem léttir
greiðslubyrðina. Þeir sem eru
að spá í íbúðarkaup ættu að
fara varlega og gæta þess að
skuldsetja sig ekki um of,“ segir
Gunnar um stöðuna á markaði.
Á grafinu hér til hliðar má
jafnframt sjá tölur yfir þróun út-
lána lífeyrissjóðanna. Hafa þau
hér um bil tvöfaldast frá árs-
byrjun 2017. Lánin eru að mestu
leyti með veði í fasteign. Af því
leiðir að áhætta á íbúðamarkaði
gæti smitast yfir í eignasöfn
lífeyrissjóðanna á næstu árum.
Fari varlega í
skuldsetningu
ALMENNI LÍFEYRIS-
SJÓÐURINN VEL BÚINN
UNDIR SVEIFLUR
Gunnar
Baldvinsson
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt-
endastofu, segir aukið framboð
mismunandi íbúðalána kalla á
aukið eftirlit. Alls eru nú 17 lán-
veitendur og bjóða flestir verð-
tryggð og óverðtryggð lán með
breytilegum og föstum vöxtum.
„Við höfum bent á þetta í um-
sögnum. Ég lít á stöðluð lánsskjöl
sem fjármálavörur. Það eru ólíkar
gerðir af vörum og sumt er gallað
og sumt ógallað. Það er eins með
lánssamninga. Við sáum það í
hruninu að það voru margar gall-
aðar vörur á markaði sem voru
svo dæmdar ólögmætar. Síðan
eru sett lög um fasteignaveðlán
og neytendalán og í umsögnum
okkar við þau frumvörp höfum við
bent á að það þyrfti að styrkja
eftirlit og setja meiri fjárveitingar
til eftirlitsins því þetta eru ný
verkefni og krefjandi. Því var
svarað þannig að það var ekki
veitt frekari fjárveiting.
Við höfum kallað eftir því varð-
andi neytendalán og fasteigna-
veðlán að fá aukinn kraft til að
geta gert ákveðna hluti að eigin
frumkvæði. Eins og staðan er í
dag erum við með alltof mikil
verkefni og höfum litla möguleika
til að fara í miklar frumkvæðis-
athuganir vegna þess að þetta er
tímafrekt. Við höfum stjórnsýslu-
lög sem skipa okkur að vinna mál-
in vandlega. Það gerist ekki einn,
tveir og þrír. Það gerist með
mörgum bréfum og rannsóknum
og svo framvegis,“ segir Tryggvi.
Lánin geta verið gölluð