Morgunblaðið - 10.10.2019, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu.
Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu
tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur.
Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er
hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og
mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir
hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum,
köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGARMIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg
Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg
Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá
að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg
með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir
hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna-
yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum,
mikið er af söfnum og menningarviðburðir í
borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji
tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd-
aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
WROCLAW
TALLINN EISTLANDI
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Budapest, Prag
Gdansk, Krakow,
Varsjá, Bratislava
Vínarborg og
Brugge
Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu
og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga-
rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á
ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar,
byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að
varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni
beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best
varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur
henni verið bætt við á heimslista UNESCO.
Yfirskrift 56 síðna blaðauka um
norðurslóðir sem dreift verður með
Morgunblaðinu á morgun er Björg-
um heiminum eða Save the World,
en eins og undanfarin ár kemur
blaðið bæði út á íslensku og ensku.
Þar er vísað í ákall ungu kynslóð-
arinnar sem víða um heiminn hefur
krafist markvissra aðgerða í lofts-
lagsmálum. Sjá má forsíðu blaðsins
hér til hliðar.
„Áður en við náum að móta eitt-
hvað í sameiningu og búa til skila-
boð handa yngri kynslóðunum
munu þær þegar hafa áttað sig.
Meðan við sitjum hér hafa þær stað-
ið upp og yfirgefið svæðið. Það er
svo dásamlegt við ungu kynslóðina
að hún er ekkert að bíða eftir okkur.
Þau eru fullfær um að vega málið og
meta og vinna það áfram upp á eigin
spýtur vegna þess að það er ótrúleg
værð yfir okkur sem eldri erum,“
segir Ólafur Elíasson myndlistar-
maður í viðtali í blaðaukanum.
Og Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra tekur í svipaðan streng í
viðtali: „Það er auðvitað unga fólkið
sem hefur haldið úti loftslags-
verkföllum að undanförnu og knýr
þessa umræðu áfram af mikilli al-
vöru. Beint eftir þetta viðtal við
ykkur er ég einmitt að fara að hitta
forsvarsmenn loftslagsverkfallsins.
Í tengslum við loftslagsfundinn úti í
New York var líka haldið sérstakt
ungmennaþing sem er ósköp eðli-
legt; krafan um aðgerðir kemur
ekki síst frá fólki framtíðarinnar.
Unga fólkið virðist til dæmis eiga
auðvelt með að temja sér breyttar
ferðavenjur og það vekur manni
von. Það er ábyrgð okkar sem nú
sitjum við stjórnvölinn að grípa til
aðgerða, bregðast við vandanum og
tryggja unga fólkinu bjarta fram-
tíð.“
Auk Ólafs og Katrínar er rætt við
Anton V. Vasiliev, sendiherra Rússa
á Íslandi, Trausta Jónsson veður-
fræðing og Christiönu Figueres,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
rammasamnings SÞ um loftslags-
breytingar, í blaðinu og loftslagsmál
eru sem fyrr ofarlega á baugi enda
hafa vísindamenn ítrekað vakið at-
hygli á því að hlýnun sé hvergi hrað-
ari en hér á norðurslóðum.
Fjórir áratugir
á norðurslóðum
Rauði þráðurinn í blaðaukanum
er sem fyrr ljósmyndir og sögur
Ragnars Axelssonar, sem í tæp 40
ár hefur fylgst grannt með lífinu á
norðurslóðum og orðið vitni að mikl-
um breytingum, bæði á náttúru og
mannlífi. Ísbjörninn á myndinni hér
að ofan kom hann auga á þegar
hann sigldi um Scoresbysund á
Grænlandi í síðasta mánuði. Ís-
björninn hafðist við á lítilli eyju og
var í senn svangur og magur. Ísjak-
ar fljóta um fjörðinn, lítið um æti
fyrir hann og erfitt að veiða sel við
þessar aðstæður. Ísbjörninn var ró-
legur um stund en síðan stakk hann
sér til sunds og synti í land.
„Þessar breytingar á norður-
slóðum eru svo örar að það er mikil-
vægara en nokkru sinni fyrr að
skrásetja þær í máli og myndum
fyrir allan heiminn að sjá og kynna
sér. Blað eins og þetta er auðvitað
bara dropi í hafið en því fleiri bækur
sem verða til þeim mun betra. Þær
fræða og opna augu fólks sem hefur
litla sem enga tilfinningu fyrir
þessu fjölbreytta og óvenjulega lífi
á norðurslóðum sem getur verið erf-
itt og heillandi í senn,“ segir
Ragnar.
Enda þótt margt beri að varast
leggur Ragnar áherslu á að fólk
haldi ró sinni og horfi til þeirra fjöl-
mörgu tækifæra sem fram undan
séu á norðurslóðum.
Í því sambandi vísar hann til orða
Ólafs Elíassonar í blaðaukanum:
„En við verðum [] að finna leið til að
tala um framtíðina á þeim nótum að
morgundagurinn verði betri en
gærdagurinn. Til að geta gripið til
aðgerða verðum við að sjá fyrir okk-
ur bjarta framtíð og rífa okkur upp
úr hræðsluorðræðunni sem hefur
þveröfug áhrif þegar við þurfum að
treysta hvert öðru.“
Unga fólkið knýr umræðuna áfram
Blaðauki á íslensku og ensku um norðurslóðir fylgir Morgunblaðinu á morgun í tilefni Arctic Circle
Magur Ísbjörninn í Scoresbysundi kominn á land eftir að hafa hafst við á lítilli eyju. Hann var í senn svangur og magur. Ísjakar fljóta um fjörðinn, lítið um æti fyrir hann og erfitt að veiða sel.
Morgunblaðið/RAX
Morgunblaðið/Björn Arnar Ólafsson
Norðurslóðablað Sérblaðið á lokaspretti í gær hjá Ragnari Axelssyni, eða
RAX, Orra Páli Ormarssyni og George Kristófer Young umbrotsmanni.
Arctic Circle
Um tvö þúsund þátttakendur
frá 50-60 löndum sækja þing
Arctic Circle sem hefst í Hörpu í
dag. Við setninguna taka m.a. til
máls forsætisráðherrar Íslands,
Finnlands og Grænlands, krón-
prinsessa Svíþjóðar, orkumála-
ráðherra Bandaríkjanna, ríkis-
stjóri helsta orkusvæðis Rúss-
lands, utanríkisráðherrar Fær-
eyja og Danmerkur o.fl.
Ný heimsmynd í mótun verð-
ur rædd í 188 málstofum með
rúmlega 600 ræðumönnum. Í
tilkynningu segir að norður-
slóðir séu í vaxandi mæli vett-
vangur helstu forysturíkja
heimsins.
Forystumenn frá Bandaríkj-
unum, Rússlandi, Kína, Japan,
Kóreu, Frakklandi, Þýskalandi
og víðar að sækja þingið. Auk
þess taka virkan þátt í því ís-
lenskir ráðherrar, vísindamenn,
umhverfissinnar og stjórnendur
fyrirtækja. Þingið er opið ís-
lenskum almenningi og hafa
nokkur hundruð sæti verið tekin
frá í því skyni. Þátttakendur
þurfa að skrá sig á www.Arctic-
Circle.org. gudni@mbl.is
Ný heims-
mynd rædd
ARCTIC CIRCLE
SAVE THE WORLD
BJÖRGUM HEIMINUM