Morgunblaðið - 10.10.2019, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Tvenn samtök íbúa hafa sent borg-
aryfirvöldum ítarlegar greinar-
gerðir og harðorð mótmæli vegna
áforma um byggingar á sjómanna-
skólareit. Hvor tveggja samtökin,
Vinir Vatnshólsins og Vinir Saltfisk-
móans, tala um sýndarmennsku af
hálfu borgarinnar varðandi samráð
við íbúa. Aðal- og deiliskipulags-
breytingar fyrir reitinn hafa verið í
kynningu undanfarið og rennur um-
sagnarfrestur út á morgun.
Svipað og byggð á Klambra-
túni
Vinir Vatnshólsins eru íbúar í ná-
grenninu sem undanfarna mánuði
hafa barist fyrir verndun útivistar-
svæða á sjómannaskólareitnum.
Hópurinn segir borgaryfirvöld
hunsa borgarsögulegar minjar og
hefur undanfarið staðið fyrir undir-
skriftasöfnun. Íbúarnir líta á hólinn
og umhverfi hans sem dýrmæta úti-
vistarperlu.
Í athugasemdum hópsins kemur
fram að reyndin verði að skyggt
verði á ásýnd Sjómannaskólans,
Saltfiskmóinn verði umkringdur
byggð og byggingum hærri en
Vatnshóllinn verði troðið upp við
hann. Vakin er athygli á skerðingu
afar takmarkaðra grænna svæða í
Háteigshverfi. „Með sömu rökum og
Reykjavíkurborg beitir í málinu
mætti allt eins réttlæta byggð á
Klambratúni og í Laugardalnum.“
Lýst er áhyggjum af óvönduðum
stjórnarháttum Reykjavíkurborgar
í tengslum við skipulagstillögurnar.
Mikill asi hafi einkennt vinnslu
þeirra og samráðsferlið haft yfir-
bragð sýndarmennsku. Loforð um
íbúðir hafi verið gefin tilteknum
hagsmunasamtökum áður en sam-
ráð var haft við íbúa. Lítið tillit hafi
verið tekið til athugasemda þrátt
fyrir flóðbylgju mótmæla vorið
2018.
Falli frá byggingaráformum
Íbúafélagið Vinir Saltfiskmóans
hefur í meira en eitt ár vakið athygli
á merkum minjum á sjómannaskóla-
reitnum, ekki síst að þrengt verði að
stakkstæðinu þar sem fyrir tæpri
öld var saltfiskur breiddur til þerris.
„Við vörum eindregið við því að
þétting byggðar sé gerð á kostnað
almannagæða, útivistarsvæða,
menningarminja og friðlýstra bygg-
inga. Við skorum á borgaryfirvöld
að falla frá byggingaráformum sín-
um á sjómannaskólareitnum í nú-
verandi mynd og vinna málið í betri
sátt og samráði við íbúa,“ segir í
athugasemdum Vina Saltfiskmóans.
Núna sé tími til að stíga til baka og
taka yfirvegaðar ákvarðanir.
„Gríðarlegt byggingamagn með
tilheyrandi skuggavarpi mun ekki
aðeins rýra verðgildi þeirra eigna
sem fyrir eru heldur einnig rýra
gildi stakkstæðisins í Saltfisk-
móanum og Vatnshólsins sem úti-
vistarsvæðis,“ segir í greinargerð.
Ástæða sé til að hafa verulegar
áhyggjur af umferðaröryggi í hverf-
inu. Vandi Háteigsskóla vegna þétt-
ingar í Háteigshverfi sé enn óleyst-
ur. Fórna eigi mikilvægu grænu
útivistarsvæði, byggja fyrir sjón-
línur friðlýstrar byggingar og tefla
einstökum menningarminjum í
hættu á meðan einkaaðilar gætu
hagnast um hundruð milljóna króna.
Í athugasemdum Vina Saltfisk-
móans segir einnig að augljóst sé á
öllu skipulagsferlinu sem hófst vorið
2018 „að samráð við íbúa hverfisins
er í reynd ekkert heldur aðeins
sýndarmennska, enda hafa málefna-
legar ábendingar íbúa algjörlega
verið hunsaðar fram til þessa“.
Vísvitandi blekkingar?
Vinum Saltfiskmóans verður tíð-
rætt um byggingamagn á reitnum
og skuggavarp, sem skerði útivistar-
svæði, en með svölum og kvistum
stækki húsin. Hópurinn segir aug-
ljóst að byggingarnar sem ætlunin
er að reisa norðan og vestan við Sjó-
mannaskólann séu mun umfangs-
meiri en dæmi um húsagerðir í aug-
lýstri deiliskipulagsbreytingu fyrir
sjómannaskólareit gefi til kynna.
„Það er ekki ásættanlegt að borgin
beiti slíkum brögðum í sjónrænni
framsetningu til að reyna að láta
byggingamassann sýnast minni en
hann í reynd verður,“ segir í
athugasemdum Saltfiskmóans. Var-
að er við því að helgunarreitir við
menningarminjar verði ekki virtir.
Í athugasemdum Vina Saltfisk-
móans kemur fram að í fyrirliggj-
andi deiliskipulagsbreytingu segi að
svæðið á Vatnshólnum falli „undir
hverfisvernd, 15 metra helgunar-
reitur út frá byggingum afmarkar
svæðið“. En þegar rýnt sé í mynd-
efni deiliskipulagsbreytingarinnar
sjáist að aðeins er í reynd miðað við
10 metra helgunarreit. „Er hér um
handvömm að ræða eða er vísvitandi
verið að reyna að beita blekkingum?
Hvort heldur sem er eru þetta óboð-
leg vinnubrögð af hálfu borgar-
innar,“ segir í athugasemdunum.
Sýndarmennska í stað samráðs
Íbúasamtökin Vinir Saltfiskmóans og Vinir Vatnshólsins senda borginni harðorðar athugasemdir
vegna áforma um byggingarframkvæmdir á sjómannaskólareitnum Segja vinnubrögðin óboðleg
Myndir/Vinir Saltfiskmóans
Fyrir og eftir Sjómannaskólinn séður frá Bergþórugötu. Nýbyggingarnar munu byrgja sýn að vestur- og norður-
hlið skólans, samkvæmt teikningum sem fylgja athugasemdum Vina Saltfiskmóans. Vinir Vatnshólsins tala um að
virkisgarður muni rísa sem sé ekki í samræmi við þá götumynd sem fyrir er við Vatnsholt og Háteigsveg.
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Sjómannaskólareiturinn Vatnshóllinn, Sjómannaskólinn og stakkstæðið vestur af skólanum tengjast m.a. atvinnu-
sögu og lífsháttum þjóðarinnar. Ný íbúðarbyggð mun þrengja að og er í óþökk stórs hóps íbúa á svæðinu í kring.
Merkileg saga
» Sjómannaskólahúsið var
formlega tekið í notkun 1945,
en það skyldi hýsa helstu
menntastofnanir sjómanna.
Sigurður Guðmundsson og Ei-
ríkur Einarsson teiknuðu húsið
og gaf Bæjarstjórn Reykjavíkur
lóð efst á Rauðarárholti. Menn-
ingarsögulegt gildi er metið
hátt og var húsið friðað 2008.
Friðunin nær til ytra borðs.
» Vatnsveitan lét reisa vatns-
geymi á Rauðarárholti 1916 til
að bæta úr vatnsskorti og
tryggja nægan þrýsting. 1930
var annar geymir reistur aust-
an við þann eldri.
» Saltfiskmóinn eða fisk-
reiturinn norðvestan Sjó-
mannaskólans var gerður 1933
og er eitt síðasta heillega
manngerða stakkstæðið sem
eftir er í Reykjavík.
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma