Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
ÁkvörðunDonaldsTrumps
Bandaríkjaforseta
um að draga banda-
rískt herlið til baka
frá landamærum Sýrlands og
Tyrklands hefur sætt mikilli
gagnrýni innan Bandaríkjanna
sem utan. Með ákvörðuninni er
tyrkneska hernum í raun gefið
frítt spil til þess að sækja gegn
hersveitum sýrlenskra Kúrda,
en yfirlýst markmið Tyrkja er
að búa til svæði á landamær-
unum, þar sem allt að einni
milljón sýrlenskra flóttamanna
verður komið fyrir.
Ákvörðun Trumps hefur
mælst sérstaklega illa fyrir hjá
flokksbræðrum hans í Repúbl-
íkanaflokknum, enda líta þeir
svo á að í raun sé verið að stinga
Kúrda í Sýrlandi í bakið, eftir að
þeir veittu Bandaríkjaher ómet-
anlega aðstoð til þess að brjóta
Ríki íslams á bak aftur, en þess
má geta að um 11.000 Kúrdar
féllu í þeirri baráttu.
Þá er hætt við því að ákvörð-
unin geti leitt til þess að öfga-
öflum í Sýrlandi vaxi enn á ný
ásmegin, á meðan átök blossa
upp enn og aftur, en meir en
70.000 fylgismenn Ríkis íslams
eru nú í haldi kúrdískra her-
sveita. Losni þeir úr haldi vegna
yfirvofandi aðgerða Tyrkja og
Sýrlandsstjórnar er jafnvel
hætta á að þeir reyni að endur-
reisa „kalífadæmið“ sem
hryðjuverka-
samtökin komu á
fót og reyni að sá
fræjum ótta og hat-
urs í öðrum ríkjum.
Í raun yrði sókn
Tyrkja gegn Kúrdum einungis
nýjasti þátturinn í þeim harm-
leik sem saga Kúrda hefur verið
undanfarin hundrað ár. Því mið-
ur virðist ekki útlit fyrir að nein
breyting verði á hlutskipti
Kúrda um fyrirsjáanlega fram-
tíð, sér í lagi ef það reynist rétt
að Bandaríkjastjórn hyggist
ekki halda yfir þeim verndar-
væng, sem til þessa hefur
tryggt að Erdogan hefur látið
formælingar nægja í stað hern-
aðaraðgerða.
Trump hefur sagt að hann
muni bregðast hart við, gangi
Tyrkir á lagið, og leggja efna-
hag Tyrklands í rúst. Hvort sú
hótun dugi til að halda aftur af
Erdogan er alls óvíst. Hitt er
ljóst, að orðspor Bandaríkjanna
sem trausts bandamanns gæti
beðið verulegan hnekki gangi
Tyrkir á lagið og komist upp
með það.
Þá gæti ákvörðun Trumps
skilið eftir sig tómarúm sem
Rússar, Íranar og stjórnarher
Bashars al-Assads Sýrlands-
forseta munu keppast við að
fylla. Verði sú raunin er hætt
við að sá ávinningur sem Trump
telur sig fá með því að kalla her-
liðið heim frá Sýrlandi verði
ákaflega skammlífur.
Orðspor Bandaríkj-
anna er í hættu ef
illa fer fyrir Kúrdum}
Fórnað fyrir lítið?
Skoski þjóðar-flokkurinn er
stærsti flokkur
Skotlands og Skot-
land er ekki sama
vígið fyrir Verka-
mannaflokkinn og áður var.
Svo ekki sé talað um Íhalds-
flokkinn, sem þurrkaðist nán-
ast út þar, þótt hann hafi örlítið
rétt úr kút.
Skoski þjóðarflokkurinn er
einsmálsflokkur þótt leiðtogar
hans myndu sjálfsagt ekki við
það kannast. Hann vill að Skot-
land verði sjálfstætt. Flokkur-
inn knúði í gegn þjóðaratkvæði
um sjálfstæðið. Annað megin-
stefið í baráttu flokksins þá,
fyrir utan stóru sjálfstæðis-
spurninguna, var að Skotar
yrðu að muna að þetta yrði eina
tækifærið sem þeir myndu fá
til að ákveða sjálfstæði, þótt
hugsanlega væri hægt að knýja
á um annað tækifæri eftir hálfa
öld eða meir. Og sjálfstæðis-
sinnar voru ekki mjög langt frá
sigri en það vantaði þó nokkur
prósent upp á. Ári síðar tók
flokkurinn að krefjast nýrrar
atkvæðagreiðslu! Það hlýtur
einsmálsflokkur að gera. En
það er eitt dálítið skondið við
þennan flokk.
Hann barðist gegn
því að Bretland
færi úr ESB. Það
var samþykkt.
Hvern dag síðan
hefur flokkurinn gert allt sem
hann má á breska þinginu til að
eyðileggja þá ákvörðun.
Réttlætingin fyrir þessum
tvískinnungi er sú að vitað sé
að meirihluti Skota hafi verið á
móti. En Bretar voru spurðir
sem heild og aðeins sameigin-
leg niðurstaða hefur gildi þótt
talið væri til hægðarauka í ein-
stökum kjördæmum. Þannig er
ljóst að „Stór-Lundúnir“ lögð-
ust með verulegum meirihluta
gegn útgöngu en aðrir íbúar
Englands kusu langflestir með
útgöngu. En vegna þessarar
framgöngu má spyrja hvort
leiðtogum Skoska þjóðar-
flokksins þætti eðlilegt, fengju
þeir aftur þjóðaratkvæði og
ynnu þá, að þingið í Westmins-
ter gerði allt sem það gæti til
að eyðileggja niðurstöðu um
útgöngu? Sem það gæti auð-
veldlega gert. Það er enginn
vafi á að Skoski þjóðar-
flokkurinn teldi slíka fram-
komu óhugsanlega svívirðu.
Umræðan um út-
göngu Breta úr ESB
hefur margar hliðar}
Tvöfeldni
Í
slendingar 65 ára og eldri eru nú um
51.000 talsins. Eftir 20 ár verða þeir
80.000 og eftir 30 ár rétt tæplega
100.000. Mér mislíkar umræðan um
fjölgun aldraðra eins og þeir séu orðin
hálfgerð plága á samfélaginu. Öldrunarfor-
dómar eru orðnir slíkir að jafnvel einstaklingur
sem leitar fyrir sér á vinnumarkaði fær ekki
viðtal vegna starfsumsóknar sinnar ef kenni-
talan sýnir hann kominn um eða yfir fimmtugt.
Þann 1. okt. sl. bauð ríkissjónvarpið upp á
svokallaðan Borgarafund um málefni eldri
borgara. Ég verð að viðurkenna að mér sárnaði
að fulltrúa Flokks fólksins væri ekki boðið að
taka þátt í umræðunni. Að vísu kom það ekki á
óvart enda flokka ég það fremur til hátíðar-
brigða að RÚV allra landsmanna sjái ástæðu til að vekja
athygli á baráttumálum Flokks fólksins með því að gefa
okkur kost á hljóðnemanum. Gott dæmi var þegar við
unnum málið í Landsrétti í sumar fyrir hönd eldri borg-
ara, þar þótti það ekki nógu stór frétt að ríkið skyldi þurfa
að punga út 6 milljörðum króna vegna ólögmætra skerð-
inga, til að tala við þá sem raunverulega stóðu að málinu.
Vanþakklæti í beinni
Stundum verð ég sár og hreinlega get ekki orða bund-
ist. Formaður Landssambands eldri borgara Þórunn
Sveinbjörnsdóttir sagði blákalt upp í opið geðið á mér og
öllum sem voru að horfa á umræddan þátt að það væri
enginn að tala um fátækt aldraðra. Ég neita að
trúa því að ágætur formaður landssamtak-
anna hafi ekki orðið vör við baráttu Flokks
fólksins gegn fátækt. Sem dæmi hefur Flokk-
ur fólksins fengið skráð 8 þingmannamál á Al-
þingi nú, sem öll snúa að bættum hag og aukn-
um lífsgæðum aldraðra. Þá eru ekki meðtalin
þau mál sem nú eru í skráningarferli hjá
þinginu.
Einnig vil ég nefna að félags- og barna-
málaráðherra er nú að vinna með mál Flokks
fólksins um afnám skerðinga vegna launa-
tekna aldraðra. Mun niðurstaða hans liggja
fyrir á vorþingi og hljótum við að vera jákvæð
og bjartsýn þar sem ráðherrann hefur sjálfur
ítrekað það opinberlega að það væri óskilj-
anlegt kerfi sem væri þannig úr garði gert að það hamlaði
atvinnuþátttöku aldraðra. Þannig hljótum við að mega
vænta þess í vor að þessar skerðingar heyri sögunni til
skömmu síðar.
Ég er stolt af þeirri baráttu sem Flokkur fólksins sýnir
í verki í baráttunni gegn fátækt. Óneitanlega gleddi það
mig mjög ef verkin okkar væru viðurkennd fremur en að
vera þögguð af þeim sem síst skyldi. Það breytir þó engu
um það að við berjumst ótrauð áfram hvort sem RÚV
tekur eftir því eða ekki. Hvort sem formaður Lands-
sambands eldri borgara tekur eftir því eða ekki.
Inga Sæland
Pistill
Aldursfordómar
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Það kom okkur á óvart aðSamkeppniseftirlitið skyldiætla að hætta rannsóknmálsins. Það hafði áður
komist að þeirri niðurstöðu að um
ofurverðlagningu Isavia væri að ræða
en svo er því borið við að nóg sé að
gert af því að Isavia kemur með nýja
verðskrá þar sem gjaldtaka er lækk-
uð lítillega. Ég sé engan mun á því að
rukkað sé 15 sinnum meira en kostar
að veita þjónustuna eða 30 sinnum.
Ég kaupi ekki þessa hagfræði og mér
finnst þetta ekki fullnægjandi máls-
meðferð,“ segir Þórir Garðarsson,
stjórnarformaður Gray Line.
Samkeppniseftirlitið tilkynnti
Gray Line með bréfi í júlí að það hefði
ekki í hyggju að aðhafast frekar í máli
fyrirtækisins þar sem kvartað var yf-
ir gjaldtöku Isavia á stæðum og að-
stöðu fyrir rútur við Leifsstöð.
Sem kunnugt er kvartaði Gray
Line yfir gjaldtökunni í ársbyrjun
2018 og í júlí það ár stöðvaði Sam-
keppniseftirlitið gjaldtöku Isavia á
fjarstæðum, þar sem hún fæli í sér
óhóflega verðlagningu og mismunun
milli fyrirtækja í sambærilegum við-
skiptum. Áfrýjunarnefnd sam-
keppnismála staðfesti þá ákvörðun í
október í fyrra og í kjölfarið tók
Isavia upp nýja verðskrá sem fól í sér
lækkanir.
„Þegar hér er komið sögu er það
mat Samkeppniseftirlitsins að rétt sé
að aðhafast ekki frekar vegna þessa
þáttar málsins, á þessu stigi,“ segir í
bréfi þess og miklum önnum er borið
við. Segir að það hafi þurft að ráð-
stafa yfir 40% af tíma sínum í sam-
runamál síðustu tvö ár, samanborið
við 15% árin þar á undan. Vegna lög-
bundinna tímafresta sé óhjákvæmi-
legt að forgangsraða samrunarann-
sóknum fram fyrir aðrar. Eftirlitið
hafi endurmetið stöðu umrædds máls
í samhengi við heimildir sínar og
skyldur til forgangsröðunar. Vísað er
til þriggja atriða sem rökstyðji þá
ákvörðun; að gjaldtakan ólögmæta
hafi aldrei komist til framkvæmda,
athugun eftirlitsins gefi ekki ástæðu
til að ætla að núgildandi gjaldskrá
Isavia fari gegn ll. gr. samkeppnis-
laga og að Isavia hafi með bréfi lýst
yfir að ekki væru fyrirhugaðar breyt-
ingar á gjaldtöku félagsins.
Þórir svaraði bréfi Samkeppnis-
eftirlitsins með bréfi til Páls Gunnars
Pálssonar forstjóra þess sem dagsett
er 21. ágúst síðastliðinn. Þar segir
hann ákvörðun Samkeppniseftir-
litsins „afar misráðna“ og óskar eftir
því að hún verði afturkölluð.
„Það er ákveðin firring fólgin í
því að Samkeppniseftirlitið setur
rannsókn á samruna fyrirtækja í for-
gang, þar á meðal fyrirhugaðan sam-
runa Allrahanda GL ehf og Reykja-
vík Sightseeing Invest ehf, en telur
sig ekki hafa getu til að taka á því sem
neyðir þessi fyrirtæki til að áforma
sameiningu – misnotkun fyrirtækis á
markaðsráðandi stöðu – sem síðan
leiðir til þess að samkeppnisaðilum á
markaði fækkar,“ segir í bréfi Þóris.
Hann telur fráleitt að telja mál-
inu lokið. Gögn sem hann hafi undir
höndum sýni svart á hvítu ofur-
verðlagningu Isavia. „Okkar útreikn-
ingar sýna að það hafi kostað um 70
milljónir króna fyrir Isavia að byggja
þetta bílastæði sem rukkað er fyrir.
Okkur sýnist að Isavia sé að hafa
í kringum 130 milljónir króna á
ári fyrir þetta bílastæði. Þetta
meikar auðvitað ekki neinn
sens og er ekkert annað en
óeðlileg skattlagning. Við vilj-
um borga sanngjarnt og eðli-
legt gjald en að fyrirtækið
geti haft 130 milljónir á ári
fyrir þetta stæði… ég veit
ekki hvort þú gætir
fengið þá upphæð á
Manhattan.“
Telur meðferð máls-
ins ekki fullnægjandi
„Það er óásættanlegt að
einkafyrirtæki þurfi að standa
í svo kostnaðarsömum slag
við ríkisfyrirtæki í markaðs-
ráðandi stöðu sem sparar
hvergi við sig kostnaðinn við
að þvæla málið. Ekki bætir úr
skák sú mikla leyndarhyggja
sem er yfir öllum tölum frá
Isavia,“ segir Þórir. „Þeir um-
svifamiklu útreikningar á
meintum kostnaði af fjar-
stæðunum sem fóru á milli
Isavia og Samkeppniseftirlits-
ins virðast gerðir til að þreyta
Samkeppniseftirlitið og leiða
þetta mál út í tóma þvælu.
Hvernig eigum við að geta
staðið í þessari kostn-
aðarsömu baráttu fyrir
tilveru okkar þegar sjálft
Samkeppniseftirlitið telur
sig svo ekki hafa fjár-
hagslega burði til að
fylgja málum eftir til
að stuðla að heil-
brigðri sam-
keppni?“
Reyna að
þvæla málið
KOSTNAÐARSÖM BARÁTTA
Þórir Garðarsson
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Deilt hefur verið um gjaldtöku fyrir rútustæði við flugstöðina.