Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Málefni norðurslóða
eru forgangsmál í ís-
lenskri utanríkisstefnu
og má þá áherslu
greina glöggt í
stjórnarsáttmála ríkis-
stjórnarinnar. Hags-
munir Íslands eru mikl-
ir en augu alþjóðasam-
félagsins beinast í
auknum mæli að
norðurslóðum og sumir
ræða um að ákveðið kapphlaup sé
hafið um yfirráð á þessu víðfeðma
svæði. Ísland tók við formennsku í
Norðurskautsráðinu á þessu ári en
ráðið er þungamiðja í okkar alþjóða-
samstarfi á norðurslóðum. Megin-
áherslur ráðsins á umhverfismál og
sjálfbæra þróun gera það að verkum
að vísindi og rannsóknir skipa stóran
sess í störfum ráðsins. Í ljósi þróunar
síðustu missera verður æ brýnna að
stefnumótun stjórnvalda á norð-
urslóðum byggist á vísindalegum
grunni og virkri samvinnu.
Árangursrík samvinna
Ísland og Japan hafa um áratuga
skeið átt frjótt vísindasamstarf á
norðurslóðum og það samband hyggj-
umst við treysta til framtíðar. Ísland
og Japan standa sameiginlega að al-
þjóðlegum ráðherrafundi um vísindi á
norðurslóðum í Tókýó í nóvember
2020. Fundurinn verður sá þriðji í
fundaröð sem hófst árið 2016 í Wash-
ington, D.C. Ráðherrar vísindamála,
hvaðanæva úr heiminum, munu koma
saman til að ræða aðgerðir og stefnu-
mótun í málefnum norðurslóða. Það
er þörf á auknu al-
þjóðlegu samstarfi um
rannsóknir á norður-
slóðum og ráðherrafund-
irnir eru þýðingarmikill
vettvangur fyrir umræðu
um sameiginlegar áskor-
anir okkar. Við þurfum
að þekkja stefnu,
áherslur og innviði sam-
starfsríkja til þess að
þróa árangursríka sam-
vinnu á sviði vísinda og
rannsókna, ekki síst í
samhengi við hlýnun á
norðurslóðum og að mínu mati hvílir
á okkur ákveðin skylda til þess að
vinna saman.
Mikilvægi menntunar og vísinda
Íslenskir vísindamenn og stofnanir
búa yfir dýrmætri reynslu og þekk-
ingu á fjölmörgum sviðum norður-
slóðarannsókna, má þar sem dæmi
nefna jöklarannsóknir, rannsóknir á
samfélagslegum áhrifum loftslags-
breytinga, breytingum á vistkerfi
sjávar og kortlagningu hafsbotnsins.
Þá gegnir menntakerfið lykilhlutverki
í að miðla þekkingu til komandi kyn-
slóða og kveikja áhuga ungs fólks á
málefnum norðurslóða, til að mynda
með aukinni áherslu á raungreina-
kennslu og með því að efla vísinda-
áhuga barna og unglinga á fjöl-
breyttum sviðum.
Gagnsæi og virk þátttaka
Við erum þakklát fyrir það góða
samband sem er milli Íslands og
Japan. Sem eyjaþjóðir deilum við
meðal annars áhyggjum af heilbrigði
og lífsþrótti sjávar. Sameiginlega fleti
má einnig finna í áherslum ríkjanna á
umhverfisvernd og sjálfbærni.
Leiðarljós í samvinnu landanna í
tengslum við ráðherrafundinn og í
áframhaldandi samstarfi okkar er
gagnsæi, hagnýting vísinda og miðl-
un. Lögð verður rík áhersla á virkja
sem flesta í aðdraganda fundarins og
hefst það ferli formlega í dag, í
tengslum við Hringborð norðurslóða.
Við finnum þegar fyrir miklum áhuga
á ráðherrafundinum og trúum því að
hann verði mikilvægur vettvangur
fyrir leiðtoga, bæði á hinu pólitíska
sviði og innan vísindaheimsins, til
þess að ræða aðgerðir og forgangs-
röðun.
Samvinna við alla aðila, jafnt innan
sem utan norðurslóða, mun skipta
miklu fyrir hagsæld og öryggi á
svæðinu. Með auknum siglingum og
starfsemi gæti áhersla á sjálfbæra
þróun orðið mikilvægur liður í að
draga úr spennu á svæðinu, t.d. vegna
aukinna hernaðarumsvifa. Í ljósi þess
hve viðkvæmt og margbrotið svæði
norðurslóðir eru, hvort sem litið er til
umhverfis, öryggismála, efnahags-
legra eða félagslegra þátta, er brýnt
að stefnumótun fyrir svæðið í heild
sinni einkennist áfram af stöðugleika,
sjálfbærni og samvinnu.
Samvinna er svarið
Eftir Lilju
Alfreðsdóttur »Menntakerfið gegnir
lykilhlutverki í að
miðla þekkingu til kom-
andi kynslóða og kveikja
áhuga ungs fólks á mál-
efnum norðurslóða.
Lilja Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og
menningarmálaráðherra.
Þörf er á sam-
göngubótum um
land allt og það er
trú mín að með
betri og fjölbreytt-
ari samgöngum
verði samfélagið
sterkara. Aukið ör-
yggi á vegum skiptir
höfuðmáli en sömu-
leiðis framkvæmdir
sem stytta ferðatíma
og leiðir á milli
byggðarlaga sem aftur eflir at-
vinnusvæðin.
Við stöndum frammi fyrir því
að á næsta aldarfjórðungi er
brýnt að sinna 200 vegatengdum
verkefnum um land allt og er
kostnaður áætlaður yfir 400
milljarðar. Upphæðirnar eru
ævintýralegar háar, sem kallar
á nýja hugsun í fjármögnun
framkvæmda. Umferðin er víða
mikil og hefur aukist í takt við
fjölgun ferðamanna. Unnið er að
úrbótum en betur má ef duga
skal. Breytt forgangsröðun á
samgönguframkvæmdum mun
sjást í endurskoðaðri samgöngu-
áætlun í nóvember þar sem um-
ferðaröryggi er haft að leið-
arljósi. Á næstu sjö árum mun
framkvæmdum sem metnar eru
að fjárhæð í heild um 130 millj-
arða króna verða flýtt fyrir utan
höfuðborgarsvæðið.
Aðskilnaður akstursstefnu
Í samgönguáætlun er lagt til
að á tímabili hennar verði lokið
við að aðskilja akstursstefnur á
umferðarþyngstu vegunum sem
eru út frá höfuðborgarsvæðinu,
þ.e. Reykjanesbrautin að Flug-
stöð, Suðurlandsvegur austur
fyrir Hellu og Vesturlandsvegur
að Borgarnesi. Framkvæmdum
á umferðarþyngstu köflunum
verður lokið á fyrsta tímabili.
Stytting og minni bið
Ávinningurinn af flýtingu
framkvæmda er efnahags- og
samfélagslegur. Brú yfir Horna-
fjarðarfljót styttir suðurleiðina
til Hafnar um tæpa 12 km og
losar um þrjár einbreiðar brýr.
Láglendisvegur um Mýrdal/
jarðgöng um Reynisfjall bætir
öryggi fjölmargra farþega sem
fara þar um og ný brú yfir Ölf-
usá dregur úr umferðarteppu
sem myndast gjarnan við Sel-
foss. Sömuleiðis mun tvöföldun
Hvalfjarðarganga og ný Sunda-
braut bæta flæði umferðar. Þá
mun vegur yfir Öxi stytta hring-
veginn um 70 km.
Með sérstöku gjaldi fyrir
staðbundin mannvirki eftir að
framkvæmdum lýkur, t.d. 20-30
ár, líkt og Hvalfjarðarganga-
módelið gekk út á, geta sam-
göngumannvirki orðið að veru-
leika fyrr en ella. Forsenda þess
er að val sé um aðra leið. Að því
loknu fellur gjaldtakan niður.
Breytt forgangsröðun
og aukið fjármagn
Við val á flýtiframkvæmdum
voru skoðuð verkefni sem til-
heyra grunnneti samgangna
með hliðsjón af umferðaröryggi,
umferðarþunga og þjóðfélags-
legum sparnaði af fækkun um-
ferðarslysa. Árlegur samfélags-
legur kostnaður af umferðar-
slysum er metinn um 40 til 60
ma.kr. og er þá ómælt tilfinn-
ingalegt tjón í viðbót sem fólk
upplifir í tengslum við slys.
Þannig mætti hugsa sér að ef
hægt væri að fækka umferðar-
slysum um 10% gætu sparast 4
til 6 milljarðar árlega sem nýta
mætti til vegagerðar. Ávinn-
ingurinn er ótvíræður.
Forgangsröðunin birtist í að
stóraukið fjármagn hefur verið
sett í vegakerfið
og birtist í
fjármálaáætlun.
Um 5,5 milljarða
króna hækkun er
núna á milli ára,
2019-2021 ásamt
ríflega 10 millj-
arða hækkun síð-
ustu tveggja ára,
2018 og 2019. Til
að mæta aukinni
umferð renna 27
milljarðar til ým-
issa verkefna, sem
er aukning um 16,8% á milli ára.
Þetta eru háar fjárhæðir sem
gera okkur kleift að taka risa-
stökk inn í framtíðina og renna
styrkari stoðum undir sam-
keppnishæft atvinnulíf og góð
efnahagsleg lífskjör.
Samvinnuverkefni
flýta fyrir
En betur má ef duga skal.
Fjármagn til vegaframkvæmda
ræðst á hverjum tíma af svig-
rúmi í fjármálastefnu. Nauðsyn-
legt fjármagn umfram svigrúm
verður því best tryggt með sam-
vinnu á milli opinberra aðila og
einkaaðila. Sérstakt félag, líkt
og Hvalfjarðargangamódelið,
héldi utan um bæði hvaðan
tekjur koma og hvert þær fara.
Þannig yrði tryggt að innheimt
veggjöld renni með gagnsæjum
hætti til þeirra framkvæmda
sem þeim er ætlað að fara.
Ábyrgð utanaðkomandi aðila
nær til fjármögnunar á mann-
virkinu, í heild eða að hluta þar
til gjaldtöku lýkur. Í lok samn-
ingstíma tekur Vegagerðin við
eigninni. Við höfum einfaldlega
ekki tíma til að bíða með sum
verkefni, stærsta verkefnið er
að auka öryggið í umferðinni.
Jarðgangaáætlun
Jarðgangagerð er dýr og með
umfangsmestu opinberu fram-
kvæmdunum hér á landi. Jarð-
göng eru þeim kostum gædd að
þau geta umbylt heilum svæðum
og eflt atvinnulíf á fámennum
svæðum sem hafa búið við fólks-
fækkun og hnignun.
Hvalfjarðargangamódelið er
dæmi um vel heppnaða fram-
kvæmd sem styrkti svæðið sér-
staklega norðan ganganna á
margvíslegan hátt og tekjur af
umferð stóðu straum af fram-
kvæmdinni. Dýrafjarðargöng
klárast á næsta ári og eru Aust-
firðingar næstir í röðinni. Halda
þarf áfram og mikilvægt er að
hafa sýn til lengri tíma. Sérstök
jarðgangaáætlun verður því
hluti af samgönguáætlun. Í
henni verður einnig tilgreint
hvaða jarðgöng falla undir
gjaldtöku, en rekstur og viðhald
jarðganga er almennt dýrara en
rekstur og viðhald vega.
Drög að endurskoðaðri sam-
gönguáætlun liggja fyrir og
verða brátt til umsagnar á vef
ráðuneytisins. Með henni eru
tekin brýn skref til að svara
ákalli um að hraða uppbyggingu
vegakerfisins. Með því er lagður
grunnur að sterkara samfélagi
um allt land.
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
» Við stöndum
frammi fyrir því
að á næsta aldar-
fjórðungi er brýnt að
sinna 200 vegatengd-
um verkefnum um
land allt og er kostn-
aður áætlaður yfir 400
milljarðar.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Höfundur er samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra.
Betri samgöngur,
sterkara samfélag
Haust Í veðurblíðunni í höfuðborginni undanfarna daga hefur fólk getað notað hjólfáka sína óspart líkt og þessi unga mær.
Eggert