Morgunblaðið - 10.10.2019, Side 53
MINNINGAR 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Það var í lok 9.
áratugar síðustu
aldar sem nokkrir
samstarfsmenn
ákváðu að leita sér afdreps á
landsbyggðinni fyrir sig og fjöl-
skyldur sínar til útivistar og
samveru. Var víða leitað fanga
og jarðir og eyjar skoðaðar og
boðið í þær sumar. Að lokum
fannst jörð á Síðunni sem allir
voru sáttir við og var hún keypt.
Í þessum hópi var samstarfs-
maður okkar til margra ára,
Ólafur Jón Einarsson lýta-
læknir. Hófst nú ánægjuleg 17
ára samfelld samvinna fjöl-
skyldna og sameignarmanna um
rekstur og uppbyggingu jarðar-
innar og var víða leitað fanga.
Þar var Ólafur og hans fjöl-
skylda með af miklum áhuga og
eljusemi. Á annað hundrað hekt-
arar af landi voru skipulagðir
undir skógrækt. Plöntun hófst
skömmu eftir kaup hennar.
Ólafur og fjölskylda hans voru
mjög áhugasöm um skógrækt-
ina, boðin og búin að planta
hvort sem var að vori eða hausti.
Oft voru allir eigendur saman í
gróðursetningarferðum, potuðu
niður nokkur þúsund plöntum,
nutu samverunnar í fallegu um-
hverfi og oftar en ekki í góðu
veðri. Að stunda skógrækt er
langhlaup. Frumkvöðlarnir
njóta oft ekki ávaxtanna af erfiði
sínu. En það að fylgjast með
litlum plöntum ná að lifa af
fyrsta veturinn og verða að
trjám veitir öllum skógræktend-
um gleði og ánægju. Skógurinn
lifir alla frumkvöðlana af en fal-
legur skógur ber þeim fagurt
vitni sem lögðu á sig vinnu við að
koma slíkum sælureitum upp.
Skógurinn í Skál á Síðu sem
stækkar og dafnar mun bera
Ólafi Einarssyni fagurt vitni um
ókomna tíð.
Austur á Síðu eru mörg vatns-
föll. Sum þeirra runnu um land
Skálar enda jörðin landmikil. Að
fjallabaki er Hellisá við Leiðólfs-
fell. Falleg dragá, vatnsmikil en
fisklítil. Við sameignarmennirnir
réðumst í stórfelldar laxaslepp-
ingar í Hellisá. Var keypt veg-
legt veiðihús og það flutt austur
að ánni.
Fyrsta árið var sleppt um 50
löxum sem fengust úr hafbeit í
Kollafirði.
Reynslan var góð og næstu
fjögur árin var þarna talsverður
rekstur. Þvera þurfti ána svo
laxar slyppu ekki niður.
Fengnir voru laxar úr Lárósi
og þeir fluttir með stórum sér-
útbúnum flutningabílum austur
á heiðar, oft 200-300 laxar í senn.
Mikil vinna kom á alla eigendur
við að þjónusta þessa starfsemi.
Oft fórum við Ólafur saman að
sópa af fyrirhleðslugrindum,
taka þátt í sleppingum, redda
stífluðum vatnsleiðslum eða
nappa veiðiþjófa.
Oft var farið úr bænum eða
um miða nótt frá Skál. Aldrei
heyrði ég Ólaf kvarta yfir þess-
ari aukavinnu sem oft var lýj-
andi en þó gefandi.
Við félagarnir stunduðum
fuglaveiðar á haustin. Gæsaveið-
ar í kvöldflugi í Blöðkunni, upp
við Gránuvatn eða við Hellisá.
Rjúpnaveiði var einnig gjöful á
haustin.
Að leiðarlokum þökkum við
Ólafi fyrir samfylgdina bæði í
starfi og leik og sendum fjöl-
skyldu hans samúðarkveðjur við
fráfall hans.
Gísli, Halldór, Eiríkur.
Ólafur Jón
Einarsson
✝ Ólafur Jón Ein-arsson fæddist
10. september
1950. Hann lést 29.
september 2019.
Útför Ólafs Jóns
fór fram 9. október
2019.
Kær vinur, Ólaf-
ur Jón Einarsson,
er fallinn frá langt
fyrir aldur fram að-
eins 69 ára.
Við ólumst upp á
sama svæðinu í
Keflavík sem var
eiginlega lítið þorp í
þá daga. Við urðum
fljótt vinir og það
var ýmislegt brallað
á unglingsárunum.
Óli naut einstaks atlætis í for-
eldrahúsum. Sérlega minnis-
stætt er þegar við nokkrir fé-
lagar stunduðum taflmennsku
heima hjá Óla, þá fengum við
alltaf dýrindis trakteringar frá
Liss móður hans.
Síðar héldum við ásamt fleir-
um til náms í Menntaskólanum á
Laugarvatni. Heimavistin varð
okkar heimili næstu árin. Við Óli
deildum oftast herbergi á þess-
um tíma. Heimsmálin og pólitík-
in áttu hug flestra í skólanum á
þessum árum. Þetta voru bylt-
ingartímar, flestir voru með með
sítt hár, í lopapeysum og öllu var
mótmælt. Meira að segja mötu-
neytinu var mótmælt. Fæðið
þótti ekki nógu gott. Hættum við
Óli því viðskiptum um tíma,
keyptum okkur prímus og eld-
uðum okkur dýrindis máltíðir á
stéttinni fyrir utan heimavistina.
Þetta voru skemmtilegir
tímar. Námið reyndist Óla auð-
velt enda greindur og vel skipu-
lagður í því sem hann tók sér
fyrir hendur.
Á Laugarvatni myndaðist
traustur vinskapur milli nem-
enda. Margir hafa haldið hópinn
fram á þennan dag, m.a. með
„Elluklúbbnum“, saumaklúbb
með allmörgum bekkjarfélögum
og mökum þeirra. Klúbburinn á
margar gleðilegar samveru-
stundir og ferðalög að baki. Óli
er sá þriðji í þessum 18 manna
hópi sem kveður þennan heim.
Lífið hélt áfram, við lukum
læknanámi og héldum síðar sín í
hverja áttina. Þótt sambandið
væri minna, stundum árum sam-
an, var þráðurinn alltaf sterkur.
Þegar við hittumst var eins og
tíminn hefði staðið í stað. Óli
hafði einstaklega góða nærveru,
var ljúfur og nærgætinn í allri
framkomu, einlægur og hlýr.
Eftir heimkomu frá sérnámi
unnum við um tíma saman, bæði
á Landspítala og í Domus
Medica. Óli var lýtaskurðlæknir,
mjög fær og vel menntaður á
sínu sviði, bæði í Svíþjóð og Dan-
mörku. Klofinn gómur og skarð í
vör hjá börnum eru flókin verk-
efni innan lýtaskurðlækninga.
Óli sérmenntaði sig sérstaklega
á þessu sviði, naut mikillar virð-
ingar og sinnti börnum með
þessi vandamál með miklum
sóma árum saman.
Fyrir hálfu öðru ári greindist
Óli með illvígan sjúkdóm. Hann
tók veikindum sínum af miklu
æðruleysi.
Hann endurskipulagði líf sitt,
ferðaðist, spilaði golf og tók þátt
í lífinu fram á síðasta dag umvaf-
inn börnum sínum og barna-
börnum. Þrátt fyrir að sjúkdóm-
urinn hefði augljóslega mikil
áhrif á hans daglegu líðan, lét
hann alltaf vel af sér og kvartaði
aldrei. Það má segja að hann
hafi verið einstök hetja í sínum
erfiðu veikindum.
Óli var tvíkvæntur og eignað-
ist 3 dætur, sem búnar eru mikl-
um mannkostum. Þær hafa sinnt
föður sínum af mikilli umhyggju
og ást í veikindum hans síðustu
misserin.
Kæri vinur, ég kveð þig með
sorg í hjarta og þakka þér fyrir
samfylgdina.
Sendi dætrum Ólafs og fjöl-
skyldum þeirra mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Oddur Fjalldal.
Enn er höggvið skarð í hóp
ungmenna sem hittust á Um-
ferðarmiðstöðinni í Reykjavík
haustið 1966, full tilhlökkunar og
spennu á leið til náms við
Menntaskólann á Laugarvatni.
Óli Einars, eins og við köll-
uðum hann, var þar í allstórum
hópi væntanlegra nemenda, einn
af Keflvíkingunum og næstu
fjögur árin á heimavistinni
treystust vinaböndin, sem hafa
varað síðan. Óli var greindur og
góður námsmaður, mjög ná-
kvæmur í allri framsetningu og
tamdi sér góð og vönduð vinnu-
brögð, sem áttu eftir að fylgja
honum í námi við Læknadeild
HÍ og í ævistarfinu.
Óli var skemmtilegur félagi,
alltaf hlýr í viðmóti, „ligeglad“
og var oftast mitt í hringiðunni.
Kunni sig alltaf og fór ekki yfir
strikið enda einkenndi snyrti-
mennska, jafnaðargeð, nær-
gætni og góð framkoma hann
alltaf. Okkur fannst þetta hafa
með dönsku erfðaþættina að
gera.
Hópurinn tvístraðist eftir
námsárin hér heima og fór Óli til
náms í skurðlækningum og lýta-
lækningum í Svíþjóð og síðar í
frekari sérhæfingu í Danmörku.
Þegar Óli kom heim úr námi hóf
hann störf á Lýtalækningadeild
Landspítalans og stofnaði einnig
eigin læknastofu í Domus
Medica.
Minningar um góðan dreng
sækja á hugann þegar við kveðj-
um vin okkar. Óli Einars var
einn af strákum Elluklúbbsins
sem er saumaklúbbur stelpn-
anna í okkar árgangi í ML. Við
makarnir höfum alltaf fengið að
fljóta með í uppákomur, ferðalög
og siglingar. Á hverju ári hefur
verið kátt á hjalla á októberfest
sem reyndar er haldin janúar
vegna áhuga þátttakenda á
ferðalögum, veiði og golfi. Í ferð-
um okkar tók Óli alltaf fram tafl-
ið og tefldi af krafti við félaga úr
makahópnum. Óli var mikill
veiðimaður og sinnti skotveiðum
af ástríðu, en á seinni árum varð
golf helsta tómstundagaman Óla
Einars.
Síðasta hluta starfsævinnar
starfaði hann sem lýtalæknir í
Kaupmannahöfn. Þar eins og
hér á landi naut hann virðingar
fyrir störf sín. Hann var kominn
heim og var að setjast í helgan
stein þegar vágesturinn gerði
vart við sig og var síðasta ár Óla
erfitt. Hann barðist af krafti og
æðruleysi við sjúkdóminn og lét
sig ekki vanta ef eitthvað stóð til.
Í alvöruleysi skólaáranna
sungum við um moldina, sem
mun eignast okkur. Nú hefur
hún heimt úr okkar hópi enn
einn vin sem við minnumst með
söknuði og þökkum fyrir að hafa
fengið að vera samferða.
Dætrum Ólafs, systrum hans
og fjölskyldunni allri sendum við
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Gizur, Gunnar, Oddur, Ólaf-
ur K., Rúnar og Sigmundur.
Góður drengur er genginn á
braut. Mér er ljúft að minnast
hans hér.
Leiðir okkar lágu saman í
læknisfræði við HÍ 1970. Hann
stúdent frá Laugavatni, en ég úr
Verslunarskólanum, sem þótti
frekar galin leið að þessu námi.
Maður finnur fljótt með hverj-
um maður vill eiga samleið í líf-
inu. Eitthvað í fari viðkomandi,
samkennd, hispursleysi og heið-
arleiki tengdi Ólaf við mig. Hann
var alltaf innan seilingar með
góð ráð, þótt leiðir í sérnámi hafi
farið sín í hvora áttina. Báðir þó
tengdir Köben, en á mismunandi
tímum. Síðan samstarf hér
heima. Ekki spilltu samveru-
stundir fyrir á Barðaströnd í bú-
stöðum okkar þar og veiði saman
í Móru. Óli aflakló.
Traustur vinskapur slitnaði
aldrei. Hann leyfði mér að fylgj-
ast náið með erfiðum veikindum
sínum. Skynsemin og æðruleysið
var alltaf ríkjandi.
Við áttum góða vinastund fyr-
ir þremur vikum í bústað mínum
í Hestlandi við Kiðjaberg. Sól,
logn og 16 gráður. Spiluðum níu
holur á Kiðjabergi. Hann betri.
Hittum góða gamla vini við golf-
skálann eftir leik með einum
bjór (stórum).
Nutum samveru í bústaðnum
um kvöldið og að morgni. Grill-
aður humar með Chablis 2015
frá Óla. Samræður um lífið og
tilveruna toppuðu þetta. Þarna
kom best í ljós hve gefandi hann
var alltaf og æðruleysi hans ein-
kennandi. Dýrmætt Carpe Diem
dæmi þarna.
Hitti hann á líknardeildinni
tveimur dögum fyrir andlátið.
Hann var alveg sáttur, búinn að
skila sínu að eigin sögn. Við
rúmið voru dætur hans þrjár,
sem hann var mjög stoltur af.
Kveð kæran vin minn Óla
Einars með þökk fyrir allt í tæp
fimmtíu ár. Vinátta og kveðja
var innsigluð með góðu löngu
faðmlagi.
Æðruleysi hans skilur dætur
hans eftir sterkari. Samúð mín
er öll hjá þeim.
Kjartan Magnússon.
Nú er hann vinur minn Ólafur
Einarsson lýtalæknir allur.
Hann lifði með reisn og dó með
reisn. Það var fyrir um það bil
einu og hálfu ári að við fréttum
að Óli hefði greinst með krabba-
mein í brisi sem hafði þá þegar
dreift sér í lifrina og við sem vit-
um hvað klukkan slær vissum að
hér var alvara á ferð og það vissi
Óli líka. Það var aðdáunarvert að
sjá og upplifa hvað Óli tók þessu
áfalli af miklu æðruleysi og
hetjuskap, og var ákveðinn í að
njóta þess sem eftir væri út í
ystu æsar með fjölskyldu og vin-
um og það gerði hann sannar-
lega. Ég hitti Óla oft þennan
tíma eftir að hann veiktist. Við
fórum gjarnan út að borða sam-
an og alltaf var hann glaður að
sjá og með skopskynið í lagi.
Hann sagði mér hvernig gengi í
baráttunni, án þess að kvarta.
Sagði mér frá því hvaða ráðstaf-
anir hann var að gera. Til að
gera stelpunum sínum og fjöl-
skyldu lífið léttara eftir sinn dag,
sem sýndi hvaða mann hann
hafði að geyma. Og svo fór mest-
ur tíminn í að ræða hvað hann
hefði verið að gera sér til
ánægju, lifa lífinu. Hann fór í
golf með félögunum heima og er-
lendis, laxveiði í Borgarfjörðinn
og mest var hann ánægður með
að hafa farið með barnabarn sitt
á rjúpu síðastliðið haust þar sem
hann gat kennt honum öll leynd-
armálin eins og sannur veiði-
maður. Og Óli lét aldrei bugast,
heldur hélt áfram að plana. Það
er stutt síðan hann vildi að við
færum saman að spila golf á
Alicante og dvelja í íbúðinni sem
hann hafði eignast þar. Svo mik-
ill var hugurinn í Óla og bjart-
sýnin. En nú er Óli farinn í aðra
og lengri ferð. Við sem eftir sitj-
um erum þakklát fyrir að hafa
kynnst Óla og fengið að vera
samferða honum. Við Óli bröll-
uðum ýmislegt saman. Unnum
saman í Læknahúsinu í Domus
Medica þar sem ég starfa enn og
ég veit að starfsfólkið þar átti
ánægjulegar stundir með Óla og
hugsar hlýtt til hans. Fyrir
mörgum árum stofnuðum við lít-
ið fyrirtæki í Færeyjum og fór-
um þangað af og til og sinntum
lýtalækningum. Færðum okkur
síðan yfir til Danmerkur til
Kaupmannahafnar þar sem við
unnum saman á Nygart klinik
við Kóngsins nýjatorg, Óli í fullu
starfi en ég í hlutastarfi. Þar
endaði Óli sinn farsæla feril sem
lýtalæknir.
Því miður var Óli nýhættur að
vinna þegar sjúkdóminn bar að
garði, en hann ætlaði að njóta
þess að spila golf og vera með
fjölskyldu og vinum. Við eigum
eftir að sakna Óla. Hann var
sannur vinur, séntilmenni og
góður maður.
Guggu, Örnu, Þórunni, Lísu
og fjölskyldu sendi ég samúðar-
kveðjur.
Guð blessi þig, Óli minn.
Þinn vinur,
Ottó.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir
(Hannes Pétursson)
Vinur minn og kollegi Ólafur
Einarsson hefur nú kvatt lífið
alltof snemma. Hann var nær-
færinn og fær læknir og góð-
menni. Leiðir okkar hafa legið
víða saman og við höfum gengið
og leikið á grænum grundum
ýmissa landa. Síðastliðið ár
hefur hann sýnt hvernig best
verður brugðist við banvænum
sjúkdómi, sinnt fjölskyldu og
vinum og gengið frá sínum
málum. Þetta án reiði eða sjálfs-
vorkunnar.
Ég sakna hans sem vinar og
félaga og mun minnast hans er
ég heyri góðs manns getið.
Pétur Skarphéðinsson.
Í dag kveðjum við Ólaf
Einarsson, Óla Einars, í hinsta
sinn. Ég kynntist Óla fyrir 20 ár-
um í golfferð lækna til Spánar.
Sem læknir sjálfur vissi ég auð-
vitað af honum fyrir þann tíma
en leiðir okkur lágu ekki saman
fyrr en þarna. Það sem dró mig
að Óla var hversu almennilegur
hann var strax við fyrstu kynni,
hress og heiðarlegur, sannkall-
aður almúgamaður. Hann var
þarna strax orðinn reyndur
læknir og tók að sér erfið sjúkra-
tilfelli og var til dæmis að gera
aðgerðir á ungum börnum með
skarð í vör og gómi. Góð tækni
og hæfileikar hans í samskiptum
við bæði börn og foreldra þeirra
höfðu þá þegar skapað honum
virðingu, bæði á meðal lækna og
skjólstæðinga hans.
Í nýlegu samtali okkar Óla
ræddum við meðal annars um af-
rek hans á sviði læknisfræð-
innar. Ég vissi að margir skjól-
stæðingar hans ganga um
hnarreistir og sjálfsöruggir eftir
handverk Óla, bæði hér á Íslandi
en ekki síst í Danmörku. Óli var
auðvitað stoltur af þessari vinnu
en stoltastur var hann þó með
hlut sinn í aðgerðum á börnum
með klofinn góm.
Samskipti okkar Óla voru í
gegnum golfið. Óli var alltaf
kappsamur í golfleik en ætíð
heiðarlegur og var hann sann-
kallaður heiðursmaður í þeim
leikjum sem við spiluðum. Við
vorum hvorugir eins góðir í golfi
og við vildum vera, stundum var
spilamennskan tómt rusl en svo
komu þessi dásamlegu högg inn
á milli. Í golfinu sá ég hans góðu
mannkosti, áhuga á bæði eigin
leik og annarra, viljann til að
hvetja aðra og samkennd með
þeim (eins og mér) sem ekki
náðu sínum besta leik.
Fyrir 16 mánuðum var ég
staddur úti í sveit, nýbúinn með
golfhring í fádæma góðu veðri,
þegar Óli hringdi í mig. Hann
var þá nýgreindur með fyrirferð
í brisi.
Næstu tvo mánuði rigndi
stöðugt og á sama tíma gekkst
Óli undir erfiðar aðgerðir. Mein-
ið var óskurðtækt og ólæknandi.
Þvílíkt högg. Óli vissi strax hvað
var fram undan. Hann tók þess-
ari vitneskju með fádæma æðru-
leysi, dugnaði og ákvað að tækla
vandamálið á sinn hátt. Hann
var staðráðinn í því að nýta tím-
ann sinn eins vel og hann gæti
og gera það sem hann langaði til
og helst ekkert annað. Sem vin-
ur og kollegi lærði ég mikið af
því að fylgjast með honum af
hliðarlínunni. Hann var dugleg-
ur að fá hjálp við sínum vanda en
eyddi mestum tíma í að lifa lífinu
með sínum nánustu ættingjum
og vinum.
Í síðasta samtali okkar var Óli
yfirvegaður en líka greinilega
sáttur við þá stöðu sem hann var
kominn í. Hann hafði náð að
gera flest það sem hann hafði
ætlað sér (m.a. prófa mótorhjól)
og hann var í góðri sátt við vini
og ættingja. Það var öllum ljóst
að af öllum hans afrekum í lífinu
var stærsta og mikilvægasta af-
rekið það að hafa eignast þrjú
dásamleg börn og síðan barna-
börn. Fjölskyldan var honum
það allra mikilvægasta.
Óli fór síðastliðin tíu ár með
mér og fleirum til Flórída að
spila golf og fyrir hönd allra í
þeim hópi sendi ég innilegar
samúðarkveðjur til fjölskyldu
hans.
Með Óla er drengur góður
genginn en minning hans mun
áfram lifa. Sjálfur hef ég misst
kæran vin en missir fjölskyldu
hans er mestur.
Blessuð sé minning hans.
Kjartan Örvar.
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.