Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 58
Carolina Herrera býður upp á
nýjan ilm, BAD BOY, fyrir
herramenn sem þora að ilma
þannig að eftir þeim er tekið.
Ilmurinn er bæði hlýr og
tælandi. Sambland af fersku
grænu bergamot og hvítum
og svörtum pipar sem
vinnur vel á móti sætu nót-
unum í tonkabauninni.
Þeir karlmenn sem þora
að sýna bæði karlmennsk-
una og einnig sínar við-
kvæmu hliðar mega ekki
láta þennan ilm framhjá
sér fara.
Grunntónn ilmsins er
amber í bland við sage og
sítrusvið sem þykir ein-
staklega töfrandi.
„BAD BOY“ er nýr ilmur úr
smiðju Carolina Herrera.
Leikarinn Ed
Skrein er andlit
„BAD BOY“
ilmsins.
Herralegur með aðstoð Herrera
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Marta María
mm@mbl.is
Hvers vegna ertu að halda námskeið fyrir
stjúpmæður og pör í stjúpfjölskyldum?
„Flestar stjúpfjölskyldur og margar stjúp-
mæður upplifa svipaða hluti sem eru oft mjög
fyrirsjáanlegir en fæstir
þekkja. Með því að læra
um stjúptengsl má
koma í veg fyrir algeng-
ar uppákomur og vanlíð-
an sem getur fylgt þeim.
Ég hef rekið mig á að
þegar fólk þekkir ekki
til þá er tilhneiging til
að fólk „kenni hvað öðru
um“ sem eykur enn
frekar á vandræðin.
Flestum finnst sjálfsagt
að fara á foreldra-
námskeið fyrir verðandi
foreldra eða sækja nokkur hundaþjálf-
unarnámskeið til að takast á við nýjar áskor-
anir á uppbyggilegan hátt. Það sama á við um
stjúptengsl,“ segir Valgerður.
Hvað er það sem stjúpmæður eru oft að
gera vitlaust?
„Að setja ekki á sig súrefnisgrímuna og
reyna of mikið að þóknast öðrum á sinn eigin
kostnað. Konur eru oft hræddar við að „vera
leiðinlegar“, reyna að þóknast öllum og rugla
því saman við að setja heilbrigð mörk til dæm-
is gagnvart maka sínum og taka of mikið að
sér gagnvart börnunum í fyrstu. Jafnvel þótt
enginn hafi beðið þær um það, sumar halda
jafnvel að þær eigi að vera einskonar mæður á
heimilinu án þess að hafa „umboð“ til þess frá
stjúpbörnum sínum eða maka. Nú svo getur
makinn og stjúpforeldrið verið sammála en
stjúpbörnin láta óspart vita að „hún er ekki
mamma mín“. Það eru til ýmsar útgáfur á
þessu.
Það er líka möguleiki á að öllum líki mjög
vel við hana sem stjúpu og það sem hún stend-
ur fyrir á heimilinu en hún sjálf er að koðna
niður innan frá. Birtist það meðal annars í því
að allir vinkonuhittingar, saumaklúbbar eða
aukavinna er sett á þann tíma sem stjúpbörn-
in eru á heimilinu,“ segir Valgerður.
Valgerður bendir á að það fylgi þessu verk-
efni mikil óvissa.
„Sérstaklega þegar fólk hefur litla sem
enga hugmynd um hvernig dýnamík stjúpfjöl-
skyldna er. Allt of margar konur spyrja hvort
þær megi hafa svona og hinsegin tilfinningar
gagnvart hlutverkinu í stað þess að virða sínar
tilfinningar og skoða hvað megi gera til að
þeim líði betur. Þessi óvissa og löngun til að
öllum líki við hana veldur því m.a. að aðrir
skilgreina hlutverk stjúpunnar en ekki hún
sjálf. Við ræðum þessa hluti og fleira meðal
annars á örnámskeiðinu þann 28. október.
Þann 22. október verður í boði fyrir þær kon-
ur 6 vikna námskeið sem kallast Stjúpuhitt-
ingur.“
Hvers vegna verða samskipti stjúpmæðra
og stjúpbarna oft svona stirð?
„Það vantar oftast upp á tengslamyndunina
milli stjúpmæðra og barna í slíkum tilvikum.
Við þurfum að einblína meira á maður á mann
samskipti og kynnast hvert öðru áður en við
förum að beita okkur. Oft og tíðum vantar líka
upp á samvinnu parsins t.d. um reglur á heim-
ilinu. Stjúpmæðrum/feðrum finnst foreldrið
ekki vera að fylgja eftir reglum heimilisins og
fer þá „beint í börnin“ sem taka því illa. En
stundum samþykkir foreldrið einhverja reglu
sem það er í raun ekki tilbúið að fylgja eftir, í
stað þess að ræða það við stjúpforeldrið og
móta reglur sem henta öllum. Skortur á sam-
starfi bæði á milli stjúpforeldra og foreldra á
heimili og á milli heimila bitnar því mjög oft á
börnunum. Jafnvel finnst börnum að stjúpfor-
eldrið stjórni foreldri þeirra og stjúpforeldr-
inu að börnin stýri foreldrinu þegar þau eru á
heimilinu.“
Ef þú ættir að gefa stjúpmóður eitt ráð,
hvað væri það?
„Lærðu um stjúptengsl og hlúðu vel að
sjálfri þér.“
Svo ertu líka með paranámskeiðið. Hvað
græða pör á því að fara á svona námskeið?
„Það sem flestir segja að þeir hafi grætt
mest á er að hitta önnur pör í svipuðum spor-
um. Jafnframt með því að læra um helstu
áskoranir stjúpfjölskyldna er eins og að fá
gott landakort til að fara eftir.
En skorti mörk, samstarf og skilning á
stöðu bæði foreldra og stjúpforeldra sem og
barna er hætta á að pirringur og árekstrar
verði tíðir. Næsta paranámskeið byrjar 18.
október og síðan annað þann 8. nóvember.“
Finnst þér stjúptengsl verða flóknari með
tilkomu samfélagsmiðla?
„Það er stundum viðkvæmt mál þegar
stjúpforeldrar birta myndir af sér með stjúp-
börnum sínum á Facebook eða öðrum miðlum
en alls ekki í öllum tilvikum. Foreldrum
barnanna á hinu heimilinu getur fundist að sér
vegið sem foreldri en við þurfum sjaldnast að
óttast að börn skipti foreldrum sínum út fyrir
stjúpforeldra.
Í öðrum tilvikum birtist mynd af foreldri
með stjúpbörnum sínum, og fer það fyrir
brjóstið á börnunum á hinu heimilinu sem
ekki eru með. Stundum hafa ungmenni lokað á
stjúpforeldra sína á samfélagsmiðlum án út-
skýringa af þeirri einföldu ástæðu að slíkar
myndir geta sært. Tilfinningin að vera „út-
undan“ er sterk.
Samfélagsmiðlar geta líka auðveldað fólki
að fá yfirsýn yfir líf barna sinna og stjúp-
barna, sem gjarna glatast við það að eiga börn
sem tilheyra tveimur heimilum,“ segir Val-
gerður.
Hægt er að fá nánari upplýsingar á stjup-
tengsl@stjuptengsl.is.
Stjúpmæður reyna oft of mikið að þóknast öðrum
AFP
Hið heilaga hjónaband Valgerður segir að það sé jafnsjálfsagt að fara á námskeið í stjúp-
tengslum eins og að fara á hundanámskeið þegar þú eignast hund í fyrsta skipti.
Valgerður
Halldórsdóttir
Valgerður Halldórsdóttir, fé-
lags- og fjölskylduráðgjafi, rek-
ur fyrirtækið stjuptengsl.is. Nú
er hún að fara að halda nám-
skeið fyrir stjúpmæður og líka
fyrir pör í stjúpfjölskyldum.
Hún segir að samfélagsmiðlar
hafi áhrif á samskipti stjúpfor-
eldra við stjúpbörn og það geti
verið auðvelt fyrir börn að upp-
lifa að þau séu „útundan“ þeg-
ar verið er að pósta látlaust
þegar börnin eru ekki með í för.
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Ég vil...
Þétta slappa húð á andliti og hálsi
Grynka hrukkur og línur
Auka kollagenframleiðslu
LASERLYFTING
Náttúruleg
andlitslyfting