Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 64
64 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Til hamingju með daginn
60 ára Þórunn er
Reykvíkingur, fædd þar
og ólst upp í Vestur-
bænum en býr á Háa-
leitisbraut. Hún er við-
skiptafræðingur frá
Háskóla Íslands með
meistaranám frá Við-
skiptaháskólanum í Árósum. Þórunn er
forstöðumaður reikningshalds hjá Öl-
gerð Egils Skallagrímssonar.
Börn: Inga Valgerður Stefánsdóttir, f.
1988, og Kalman Stefánsson, f. 1992.
Barnabarn er Sara Kristín Crosby, f.
2016.
Foreldrar: Gunnar Gísli Kvaran, f. 1937,
fyrrverandi heildsali, og Inga Kristjana
Halldórsdóttir, f. 1939, meinatæknir. Þau
eru búsett í Reykjavík.
Þórunn Liv
Kvaran
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér er ekki eðlislægt að taka
áhættu svo þú skalt láta það eiga sig. Þú ert
stjórnsemin uppmáluð, hvernig væri að
slaka á og leyfa öðrum að ráða sínum
málum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að snúa þér að þeim verk-
efnum sem þú hefur látið dragast. Ástar-
málin eru eitthvað flókin, ekki flýta þér um
of í nýtt samband.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fólk er tilbúið til að veita þér allan
þann stuðning sem þú þarft því það trúir á
það sem þú ert að gera. Láttu ekki hugfall-
ast því þú hefur alla burði til að leysa erfitt
deilumál.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert góður í að hlusta á aðra og
vera öxlin sem vinir geta grátið við. Láttu
reyna á hæfileika þína á listræna sviðinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sígandi lukka er best og því eru allar
sviptingar til lítils þegar upp er staðið. Stutt
frí er í vændum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Loksins eru samstarfsmenn þínir
farnir að koma fram við þig á þann hátt
sem þú átt skilið. Makinn er allur af vilja
gerður til að leysa málin.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í dag tekur ástin völdin hjá þér. Reyndu
samt að koma einhverju í verk og koma nið-
ur af bleika skýinu í smástund.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú gefst upplagt tækifæri til
þess að svara pósti og öðrum skilaboðum
sem þú hefur ekki komist yfir að svara í vik-
unni. Kauptu eitthvað fallegt fyrir heimilið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Reyndu að halda ró þinni hvað
sem tautar og raular. Einbeitingin er eitt-
hvað út og suður í dag. Stóri dagurinn nálg-
ast, er allt tilbúið?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu til hendinni og losaðu þig
við það sem þú telur þig ekki hafa þörf fyrir.
Ef einhver vill létta undir með þér skaltu
þiggja það með þökkum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér finnst gaman að hlæja og líf-
ið heldur áfram að færa þér bráðfyndin
handrit. Dekraðu við sjálfa/n þig í kvöld.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er um að gera að taka öllum að-
finnslum vel, sumir hafa ýmislegt til síns
máls, aðrir ekki. Þú kynnist fljótlega mann-
eskju sem mun umbylta lífi þínu.
hefur einnig verið tónleikastjóri fyr-
ir Alþjóðlegt orgelsumar í Hall-
grímskirkju auk þess að halda ein-
leikstónleika á orgel. Hún spilar
reglulega í Hallgrímskirkju og hefur
sinn starfsferil. „Ég spilaði fyrstu
messuna 14 ára og hef ekki hætt síð-
an. Ég starfaði sem organisti í Dan-
mörku síðustu árin þar og er núna á
öðrum vetrinum sem organisti og
kórstjóri Hjallakirkju í Kópavogi.
Ég náði einu sumri sem gönguleið-
sögumaður áður en ég var bæði orð-
in ólétt að fyrsta barninu og að
undirbúa flutning til Danmerkur.“
Samhliða organistastarfinu í Dan-
mörku var Lára semballeikari í bar-
okksveitinni BaroqueAros í Árósum
sem er einmitt á leiðinni til Íslands
þar sem Lára spilar með sveitinni á
tónleikum í Hallgrímskirkju 19.
október. Lára var einnig ritstjóri
tveggja tónlistarbæklinga í Horsens.
Hún kennir við Tónskóla Þjóðkirkj-
unnar og tekur að sér ýmis tónlist-
artengd verkefni. „Þar má nefna
prófarkalestur á væntanlegri nýrri
sálmabók. Stórskemmtilegt að gera
athugasemdir við annarra manna
verk og fá borgað fyrir það.“ Lára
L
ára Bryndís Eggerts-
dóttir er fædd 10. októ-
ber 1979 í Reykjavík en
hún ólst upp í Fögru-
brekku í Kópavogi. „Ég
var öll sumur á æskuheimili móður
minnar á Brún í Reykjadal hjá Elínu
„ömmu á Brún“ og Teiti „afa á
Brún“ og Erlingi móðurbróður mín-
um sem síðar tók alfarið við búinu
ásamt konu sinni Sigurlaugu „Sillu
frænku“. Hinum megin við þjóðveg-
inn er svo heimili Ara móðurbróður
míns og Elínar hans konu og börnin
þeirra þrjú, systkini mín, sumar-
dvalarkrakkar héðan og þaðan, fleiri
skyldmenni til lengri eða skemmri
tíma, vinnumenn innlendir og er-
lendir ásamt fjölda gestkomandi
sköpuðu ómetanlegt samfélag sem
var gott að alast upp í.
Það er hverju barni hollt að læra
að vinna almennilega, þ.e. mjólka
kýr, veiða og verka silung, elda kjöt-
súpu, steikja kleinur, skafa flór, raka
dreifar, hræra skyr, aðskilja og
strokka mjólk þegar mjólkað var
umfram kvóta, keyra traktor, losa
hey, príla upp í súrheysturna og
kvistglugga á hlöðum og hoppa nið-
ur, og svo auðvitað þarf að læra að
maður verður aldrei almennilega
sterkur án þess að blóta svolítið.“
Lára gekk í Digranesskóla í
Kópavogi, „sem er núverandi Álf-
hólsskóli þar sem börnin mín eru
núna í 2., 4. og 6. bekk“ og eina önn í
Alton Convent í S-Englandi haustið í
10. bekk. „Þar dvaldi ég hjá vinafólki
pabba, gekk í skóla með dætrum
þeirra og lærði hellings ensku og
góða siði í enskum stúlknaskóla með
skólabúningi og öllu.“ Lára fór síðan
í MR á náttúrufræðibraut og varð
stúdent 1999. Hún lauk 8. stigi á pí-
anó 1998, lauk kantorsprófi frá Tón-
skóla þjóðkirkjunnar 2001, einleiks-
áfanga frá sama skóla 2002, burt-
fararprófi í söng frá Söngskólanum í
Reykjavík 2004, prófi í gönguleið-
sögn frá Leiðsögumannaskóla Ís-
lands 2007, B.Mus. í kirkjutónlist frá
Tónlistarháskólanum í Árósum 2010
og Cand. Mus. 2014. „Svo tók ég líka
einn vetur í læknisfræði en það var
hliðarspor.“
Lára hefur verið organisti allan
spilað út um allt í Danmörku og
víðar á Norðurlöndum.
Í framhaldi af kandídatsverkefni
sínu frá Tónlistarháskólanum í Ár-
ósum gaf Lára út geisladisk árið
2014 sem nefnist Ég heyrði þytinn
frá vængjum þeirra. Á disknum er
orgeltónlist sem Lára pantaði frá
sjö íslenskum tónskáldum.
Lára var fulltrúi Íslands á Nor-
rænu kirkjutónlistarmóti 2016, og
hefur setið í ýmsum nefndum og
samtökum tengdum kirkjutónlist
bæði í Danmörku og á Íslandi. Hún
var fjölmörg ár í Gradualekór Lang-
holtskirkju, Kór Langholtskirkju og
Kammerkór Langholtskirkju undir
stjórn Jóns Stefánssonar, söng einn-
ig í Kór Menntaskólans í Reykjavík
undir stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar og Schola Cantorum undir
stjórn Harðar Áskelssonar.
Lára hefur hlotið styrk úr Minn-
ingarsjóði Jean-Pierre Jacquillat
2002, 2. verðlaun í einleikarakeppni
„Prinsens Musikkorps“ í Danmörku
2013 og styrk Tónlistarsjóðs Rótarý
á Íslandi 2014.
Helstu áhugamál Láru fyrir utan
tónlist eru fjöll og hjól. „Þar til ég
flutti til Danmerkur árið 2008 var ég
endalaust uppi á fjöllum, aðallega á
Íslandi en gekk líka á Kilimanjaro
árið 2002 með manninum mínum, en
fjallastússi var eiginlega sjálfhætt
þegar barneignir og flata Danmörk
tóku við. Ég var líka síhjólandi og
æfði hjólreiðar í nokkur ár, náði
nokkrum góðum keppnisárum,
þ. á m. Íslandsmeistaratitli áður en
þessar sömu barneignir og Dan-
mörk tóku við, en afrekaði þó að
vinna Bláalónsþrautina árið 2009
eftir fyrsta barnið. Síðan ekki sög-
una meir nema innanbæjarhjólreið-
ar í Horsens með krakka og/eða inn-
kaupin í hjólavagni þar til við
keyptum bíl.“
Fjölskylda
Eiginmaður Láru er Ágúst Ingi
Ágústsson, f. 15.7. 1974, yfirlæknir
og sviðsstjóri Leitarstöðvar
Krabbameinsfélags Íslands. For-
eldrar Ágústs eru Hallveig Guðný
Kolsöe, kennari í Reykjavík, og
Ágúst Ágústsson, húsasmíða-
Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti – 40 ára
Fjör í bílnum Fjölskyldan á leið í skemmtilega ferð.
Leikur bæði á orgel og sembal
Í Hallgrímskirkju Lára á æfingu.
Guðrún Helgadóttir, sem býr á Hrafnistu í
Reykjavík, fagnar 100 ára afmæli í dag. Hún er
fædd 10. október 1919 á Láganúpi á Rauða-
sandi í Vestur-Barðastrandarsýslu, dóttir Ás-
björns Helga Árnasonar, bónda í Kollsvík, og
Sigrúnar Össurardóttur, en móðir Sigrúnar varð
94 ára. Guðrún var elst sex systkina.
Guðrún var innan við tvítugt þegar hún flutti til
Reykjavíkur. Með fyrri manni sínum, Guðmundi
Elentínusi Guðmundssyni sjómanni, á hún dótt-
ur en Guðmundur fórst á Halamiðum fjórum
mánuðum áður en hún fæddist. Með seinni manni sínum, Helga Guðmundssyni
skipstjóra, á hún fimm börn. Fimm ættliðir eru á lífi. Guðrún er við góða heilsu og
mun halda upp á tímamótum með börnum sínum og tengdabörnum.
100 ára
50 ára Pétur ólst upp
á Hraunum í Fljótum
hjá móðurömmu og
-afa og býr á Akureyri.
Hann er tækjamaður
hjá Norðurorku.
Maki: Jónína Halldórs-
dóttir, f. 1968, heima-
vinnandi.
Börn: Sandra Rut Pétursdótir, f. 1991, og
Guðrún Björk Pétursdóttir, f. 2002. Barna-
barn er Gabríela Mjöll Stefánsdóttir, f.
2013.
Foreldrar: Guðfinnur Georg Sigurvinsson,
f. 1945, d. 2017, sjómaður á Suðurnesjum,
og Guðrún Björk Pétursdóttir, f. 1950,
bóndi í Gásum í Hörgárbyggð og kennari í
Þelamerkurskóla. Stjúpfaðir er Friðrik Gylfi
Traustason, f. 1949, bóndi í Gásum.
Pétur Sigurvin
Georgsson● Betri melting, meiri orka!
● Inniheldur ATPro (ATP (orkuefni líkamans),
Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase)
● 100% vegan hylki. Án fylliefna, bindiefna eða
annarra flæðiefna
Fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum stórmarkaða
Ég verð oft uppþembd og fæmagaónot eftir
máltíðir. Ég tek eitt hylki áður en ég borða
og finn ekki fyrir óþægindum lengur. Ég tek
líka 1 hylki fyrir morgunmat og hefur það
sett reglu á klósettferðir hjá mér.
Barbara Kresfelder.
Hefur gert kraftaverk
Digest Gold
Ensím geta dregið úr margskonar meltingar-
vandamálum s.s. uppþembu, meltingaróreglu,
loftmyndun og ýmsum einkennum fæðuóþols.
Ein öflugustu
meltingarensím
á markaðnum í dag