Morgunblaðið - 10.10.2019, Qupperneq 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Með Firmavörn+ geta stjórnendur fylgst með og
stýrt öryggiskerfi, myndeftirliti og snjallbúnaði
fyrirtækisinsmeð appi í símanum hvar og hvenær
sem er. Stjórnstöð Securitas er á vaktinni allan
sólarhringinn, alla daga ársins.
www.firmavorn.is
HVAR SEM ÞÚ ERT
Spurð hvernig það sé að vinna
með þremur öðrum drottningum
segir Agatha: „Maður hefði haldið
að það væri aðeins meira um drama.
Þetta eru nokkur stór egó en þegar
við komum saman þá var aðallega
hlegið. Við höfum hlegið alveg rosa-
lega mikið í öllu ferlinu og ekkert
drama. Það er ekki sjálfsagt.“
Hópurinn kallar sýninguna
dragrevíu, það er þá nýyrði yfir sýn-
ingu sem þessa þar sem er að finna
dans, leik, búktal, söng og fleira.
„Við vorum að vesenast með að finna
nafn á þetta, hvað það heiti þegar
maður tekur öll þessi listform og
setur í sama pott. Þá verður maður
að finna nýtt nafn á það svo við
ákváðum að kalla þetta dragrevíu,“
segir Agatha.
Persónur sýningarinnar eru allar
dragdrottningar með stóra og
áhugaverða persónuleika. „Það er
fyrst og fremst Agatha P. Hún er
svona demigyðja en hún þarf svolítið
að vinna í að tóna niður ofurkynvit-
und sína. Hún sækir í brunn Marilyn
Monroe og reynir að gera allt svolít-
ið sexí,“ segir Agatha.
„Svo erum við með hina stórkost-
legu og þaulreyndu dragdrottningu
Íslands, Gógó Starr, sem er eigin-
lega orðin þjóðþekkt fjallkona og
dragmóðir,“ segir Agatha og bendir
á að Gógó sé ein frægasta íslenska
dragdrottningin en hún brá sér til að
mynda í fjallkonuhlutverk í fyrra og
vann einnig titilinn „Dragdrottning
Íslands“ árið 2015.
Sú þriðja er Fay Knús. „Það má
segja að hún sé „comedy queen“, al-
gjör gríndrottning. Hún er uppi-
standari sem kemur fram tvisvar í
viku á Kiki. Svo er Vera Schtilld sem
er að stíga sín fyrstu spor í töfra-
heimi dragsins svo þetta verður
hennar frumraun sem dragdrottn-
ing.“
Dragdrottningin hirðfífl
Agatha P. hefur látið að sér kveða
á fleiri stöðum en sviðinu einu.
„Agatha P. er orðin alvarleg
fréttakona á Hringbraut. Hún lætur
sig stóru málin varða,“ segir Agatha.
Hún er túlkuð af Ásgeiri Helga
Magnússyni, Cameron Corbett túlk-
ar Faye Knús og Sigurður H. Starr
Guðjónsson túlkar Gógó Starr en að
baki Veru Schtilld er söngkonan
Sigga Eyrún.
Ásgeir Helgi og Cameron eru for-
sprakkar hópsins en þeir hafa starf-
að saman um árabil innan raða Ís-
lenska dansflokksins auk þess að
koma víða við í íslenskum sviðs-
listum.
Spurð hvað sé svo heillandi við
dragið segir Agatha: „Það er ein-
hvern veginn þetta að fá að búa til
svona rosalega erkitýpu og ég held
að innan dragsins leyfist þér meira
en almennt.
Dragdrottningin er einhvers kon-
ar nútímahirðfífl í þeim skilningi að
hún fær að benda á allt og má segja
mjög margt. Hún kemst upp með
það að segja og benda á hluti og
segja að keisarinn sé nakinn. Við
leggjum þó ekki upp með að ganga
fram af fólki og ég held að þetta sé
aðallega grín, glens og mikið gam-
an.“
Íslensk dragsena í blóma
Dragsenan hefur undanfarið vaxið
gífurlega hratt á heimsvísu, til dæm-
is með tilkomu sjónvarpsþátta eins
og amerísku raunveruleikaþáttanna
RuPaul’s Drag Race sem fjalla um
dragdrottningar. Þeir hafa notið gíf-
urlega mikilla vinsælda hérlendis
sem erlendis.
Agatha segir að íslenska senan
hafi einnig tekið vaxtarkipp. „Núna
er komin fram rosalega góð sena og
fólk er farið að spá í hvað eigi að
gera næst. Hver næstu skref séu og
hvernig við viljum taka dragið
lengra, hvernig við getum blandað
dragið með öðru. Hvenær fyrsta ís-
lenska dragdrottningin fer og tekur
þátt í RuPaul’s Drag Race. Það er
spennandi að sjá hvað gerist næst.“
Ævisaga valkyrju sögð í dragrevíu
Brynhildur Buðladóttir fær raddir fjögurra dragdrottninga að láni Ævisaga Brynhildar túlkuð
með söng, ballett og búktali Þaulvanar drottningar leiksviðs og næturlífs skreyttar eðalsteinum
Fjöllistahópur Endurnýttar væntingar stendur
að sýningunni. Frá vinstri Faye Knús, Vera
Schtilld, Agatha P. og Gógó Starr.
VIÐTAL
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Fjórar dragdrottningar segja sögu
valkyrjunnar Brynhildar Buðladótt-
ur á nýjan hátt í sýningunni Endur-
minningar valkyrju sem frumsýnd
verður í Tjarnarbíói kl. 20 í kvöld.
„Öllu verður heldur betur tjaldað
til. Við ætlum að gera sögunni af
Brynhildi, valkyrjunni sem ruglaði
reytum saman við Sigurð Fáfnis-
bana, skil í mögnuðum dansi og
miklum hamagangi. Það verður
söngleikur, það verður ballett, allt
saman, búktal og brúður,“ segir
Agatha P., ein dragdrottninganna
sem túlka söguna af Brynhildi.
Brynhildur er ein þekktasta
skáldmeyja mannheima sem jafn-
framt var valkyrja. Sigurður Fáfnis-
bani lofaði að giftast Brynhildi en
var blekktur til að gleyma henni og
giftast Guðrúnu Gjúkadóttur í
staðinn.
„Við leikum allar Brynhildi og hún
fær að segja söguna frá sínu sjón-
arhorni. Saga hennar hefur hingað
til bara verið sögð út frá þeim herra-
mönnum sem skrifuðu eddukvæði á
þrettándu öld. Það hafa yfirleitt ver-
ið karlar sem hafa ritað sögu Bryn-
hildar en nú ætlar hún að rita hana
sjálf. Þetta er svolítið eins og ævi-
saga Brynhildar sem er stílfærð af
okkur,“ segir Agatha.
Tala tæpitungulaust
Ásamt Agöthu koma fram Gógó
Starr, Faye Knús og Vera Schtilld.
Saman mynda þær fjöllistahópinn
Endurnýttar væntingar en þetta er
fyrsta sýning hópsins þó drag-
drottningarnar séu þaulvanar
drottningar leiksviðs og næturlífs.
Persónuleikar allra drottninganna
eru fyrirferðarmiklir eins og per-
sónuleikar drottninga eru gjarnan.
Dragdrottningar Endurnýttra
væntinga eiga það sameiginlegt að
tala tæpitungulaust og skreyta sig
með eðalsteinum og rúbínum frá
hvirfli til ilja.