Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Síða 11
11 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
EINSTAKLINGAR, SEM eru 67 ára og eldri, eru fjölmennur
hópur sem á eftir stækka enn meira á komandi árum sam-
kvæmt mannfjöldaspám Hagstofunnar. Hann er þó langt
frá því að vera einsleitur og þeim sem honum tilheyra jafn
ólíkir og þeir eru margir enda fer hver og einn í gegnum
lífið á sínum forsendum og skapar sér sína lífssögu
(Sigurveig H. Sigurðardóttir, 2006). Með hækkandi aldri
aukast líkur á að fólk fái heilabilunarsjúkdóm af einhverri
gerð. Heilabilun er hrörnunarsjúkdómur í heila sem
veldur vitrænni skerðingu sem getur einkennst af minnis-
skerðingu (Alzheimer’s Association, 2016). Á byrjunarstigi
sjúkdómsins skerðist færni í flóknari athöfnum lífsins,
eins og umsýsla um fjármál og að rata á ókunnugum
stöðum. Á síðari stigum sjúkdómsins minnkar færni í öllum
frumathöfnum daglegs lífs, eins og að snyrta sig, matast og
klæðast. Geðræn einkenni eru í flestum tilfellum fylgifiskur
heilabilunar og er talið að um 90% fólks fái þau einhvern
tímann í sjúkdómsferlinu. Fyrstu geðrænu einkennin,
sem oft koma fram eru þunglyndi, kvíði, ranghugmyndir,
ofskynjanir og svefntruflanir. Eftir því sem sjúkdómurinn
ágerist fer iðulega að bera á hegðunartruflunum, svo sem
rápi og ráfi, óróleika, óp og köll, áreitni, reiði, árásargirni
og ósæmilegri hegðun (Cerejeira o.fl., 2012; Sólveig
Hrönn Gunnarsdóttir, 2016). Þar sem tjáningarhæfni og
almennur málskilningur hjá þessum hópi aldraðra skerðist
oft mikið er mikilvægt fyrir umönnunaraðila að vera vel
undir það búnir að sinna þeim og þar er aðalatriðið að
þekkja forsögu einstaklingsins og hans persónueinkenni.
Þegar sjúkdómurinn ágerist þarf einstaklingurinn aðstoð
umönnunaraðila til að halda í það sem er honum kunnug-
legt svo honum finnist hann öruggur (Edvardson o.fl.,
2008). Jafnframt er mikilvægt að litið sé til manneskjunnar
sjálfrar í allri umönnuninni, tilfinninga hennar og forsögu
en ekki bara sjúkdómsgreiningarinnar sem slíkrar eða eins
og það er orðað í hinu kunna ljóði: „Komið nær og lítið á
mig,“ eftir hjúkrunarfræðinginn Phyllis McCormack sem
fjallar um umönnunina út frá sjónarhóli aldraðrar konu
(Bornat, 2005).
Hvað er heilabilun?
Heilabilun er yfirhugtak yfir ástand sem getur haft ólíkan
uppruna og orsakir en einkennist af afturför á vitrænni
getu. Hér á eftir verður fjallað um fjóra helstu sjúkdóma
sem falla undir hugtakið heilabilun en þeir eru Alzheimers-
sjúkdómur, æðavitglöp, Lewy-sjúkdómur og framheilabilun.
Sameiginlegt einkenni allra þessara sjúkdóma er skerðing á
minni og öðrum vitrænum sviðum, fólk á erfitt með að læra
og muna nýja hluti en gamlar minningar tapast ekki fyrr en
á seinni stigum sjúkdómsins (Tabloski, 2014). Heilabilun
getur einnig verið af blandaðri gerð (Tabloski, 2014). Til
að einstaklingurinn fái sem besta hjúkrun er mikilvægt að
umönnunaraðilar þekki einkenni og meingerð mismunandi
sjúkdómsgreininga heilabilunar því framgangur sjúkdóms
og breytingar á vitrænni getu eru svolítið mismunandi eftir
því hvaða sjúkdómur á í hlut. Meðalævilengd fólks eftir að
vart verður við fyrstu einkenni eru 5-9 ár og fer það einkum
eftir aldri, kyni og sjúkdómsbyrði viðkomandi (Alzheimer’s
Association, 2016). Heilbilun er algengari meðla kvenna en
karla, á Íslandi er áætlað að rúmlega 1600 konur og ríflega
1200 karlar séu með greininguna heilabilun af einhverju
tagi og í allri Evrópu eru þetta um 6 milljón manns
(Alzheimer Europe, 2006).
Alzheimers-sjúkdómurinn
Alzheimers-sjúkdómurinn er algengasta orsök
heilabilunar eða um 60-80% af öllum greiningum. Ekki
er vitað fyrir víst hvað veldur honum en talið er að um
samspil erfða, lífsstíls og umhverfisþátta sé að ræða
(Alzheimer’s Association, 2016). Sjúkdómurinn er nefndur
eftir lækninum Alois Alzheimer sem lýsti honum fyrst árið
1906 hjá 55 ára konu. Meingerð sjúkdómsins er alhliða
tap taugafrumna og taugamóta, heilarýrnun og hrörnun
í frumubyggingu sem sést við smásjárskoðun. Þekktustu
meinafræðilegu einkennin eru skemmdar taugafrumur og
samflæktir taugaþræðir (Tabloski, 2014). Í upphafi sjúk-
dómsins á fólk erfitt með að muna nöfn og nýlega atburði
en eftir því sem á líður koma fram fleiri einkenni eins og
„KOMIÐ NÆR OG LÍTIÐ Á MIG“:
HJÚKRUN FÓLKS MEÐ HEILABILUN OG
HEGÐUNARTRUFLANIR
Kristbjörg Sóley Hauksdóttir