Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Side 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Side 14
14 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA „Komið nær og lítið á mig“: Hjúkrun fólks með heilabilun og hegðunartruflanir bandarískur félagsfræðingur sem hefur áratugareynslu af vinnu með einstaklingum með heilabilun (Stacpoole o.fl., 2015). Með þessari nýju aðferð verður þjónustan heildrænni og einstaklingsmiðaðri. Namastestefnan hefur verið innleidd á fjölda hjúkrunarheimila í Bandaríkjum, Bretlandi, Kanada og Ástralíu auk þess sem nokkur líknarheimili hafa hana að leiðarljósi. Rannsóknir á árangri af Namastestefnunni hafa sýnt aukna ánægju hjá starfsfólki, íbúum og aðstandendum einstaklinga með heilabilun. Auk þess hefur notkun svefn- og geðlyfja minnkað, byltum og húðvandamálum fækkað og verkja- meðferð orðið markvissari. Samkvæmt Namastestefnunni er meðferð sniðin að því að auka lífsgæði fólks með langt gengna heilabilun. Íbúarnir eyða deginum í þar til gerðu herbergi í návist starfsfólks sem hefur tíma og hefur rólega nærveru, í stað þess að liggi í rúminu, sitji í hjólastól eða ráfi um. Persónumiðuð meðferð, sem stuðlar að vellíðan, felur meðal annars í sér handa- og fótaþvott með nuddi, andlitsþvott, rakstur og húðhirðu. Unnið er með skynfæri einstaklinga og þeir örvaðir á ákveðinn hátt. Það skilar sér í betri líðan, meiri ró og minni þörf á lyfjum. Þess er gætt að íbúarnir hafi alltaf greiðan aðgang að mat og drykk en reynslan hefur sýnt að fólk drekkur betur í þessu umhverfi og matarlyst eykst (Stacpoole o. fl., 2015). Hjúkrunarheimilið Skógarbær innleiddi Namastestefnuna á einni deild í mars 2016 með mjög góðum árangri en vísbendingar eru um að dregið hafi úr óróleika á deildinni, byltum fækkað og geð- og svefnlyfjanotkun minnkað (Valdís Björk Guðmundsdóttir, munnleg heimild, 6. september 2016). Sýn Tom Kitwood á heilabilun Eins og Tom Kitwood (2007) fjallar um í bók sinni Ný sýn á heilabilun þarf fólk með heilabilun helst af öllu á kærleik að halda. Starfsmaðurinn þarf að veita skilyrðis- lausan kærleik og vera örlátur og sáttfús. Viðurkenningar þarf að veita af heilum hug án þess að vænta endurgjalds eða umbunar (Kitwood, 2007). Kærleikur er eitthvað sem allir þurfa og flestir geta auðsýnt eða öðlast en manneskja með heilabilun er mun berskjaldaðri og oftast nánast ófær um að eiga frumkvæði að því að uppfylla þessar þarfir. Þótt það fari eftir hverjum og einum, persónuleika viðkomandi og lífssögu í hve miklum mæli fólk þarfnast kærleikans þá er það nánast undantekningalaust að þörfin eykst samhliða vitrænni skerðingu (Kitwood, 2007). Aðrar helstu þarfir aldraðra, og þá sérstaklega þeirra sem eru með vitræna skerðingu, eru að öðlast huggun, ná tengslum við aðra, eignast hlutdeild í samfélagi manna og viðhalda virkni og sjálfsmynd. Að veita huggun felur í sér að veita þá öryggistilfinningu sem skapast af því að vera nákominn annarri manneskju, að skynja nærveru hennar og fá að sefa sorgir sínar og angist. Þegar manneskja fær heilabilunarsjúkdóm má búast við því að þörf hennar fyrir huggun verði mikil þar sem hún þarf að takast á við margs konar missi, t.d. ástvinamissi, minnkandi getu í öllum athöfnum og smátt og smátt endalok þess lífs sem hún áður þekkti. Með tímanum hættir viðkomandi að þekkja sjálfan sig í spegli og sína nánustu. Þar sem viðkomandi upplifir sig einan og yfirgefinn hefur hann ríka þörf fyrir skilyrðislausa kærleiksríka nærveru (Kitwood, 2007). Til að geta gegnt hlutverki sínu sem manneskja þarf viðkomandi að hafa félagstengsl sem mynda eins konar öryggisnet. Manneskja með heilabilun hefur sterkari þörf fyrir slíkt en flestir því að hún býr sífellt við aðstæður sem virðast undarlegar. Manneskjan hefur þróast sem félagsvera og er þörfin fyrir að tilheyra hópnum mjög rík hjá þeim sem eru með heilabilun. Til að einstaklingur með heilabilun fái viðurkenningu og hafi skýra stöðu innan hópsins er mikilvægt að þessi þörf sé uppfyllt, sérstaklega þegar sjúkdómurinn ágerist (Kitwood, 2007). Sjálfsmynd einstaklinga með heilabilun Af ofangreindu má sjá að aðalviðfangsefni þeirra sem annast fólk með heilabilun er að viðhalda sjálfsmynd þeirra og viðurkenna þá sem einstakar persónur með fortíð og væntingar þrátt fyrir stöðuga hnignun á andlegu atgervi. Þegar þörfum einstaklingsins er fullnægt og honum finnst hann vera einhvers metinn og hafi hlutverk er líklegra að sjálfsmynd hans styrkist (Kitwood, 2007). Til þess að þetta sé raunhæft er þekking umönnunaraðila á sjúkdómnum og skjólstæðingnum grundvallaratriði en einnig verður umönnunaraðilinn að viðurkenna eigin tak- markanir og kunna að nýta þann styrk sem hann býr yfir. Margar rannsóknir á minnisheimt hafa sýnt að góð um- önnun eflir taugastarfsemi en slæm umönnun getur brotið manneskjuna niður og jafnvel stofnað henni í hættu og það getur þar af leiðandi haft áhrif á framvindu sjúkdómsins til hins verra (Kitwood, 2007; Svava Aradóttir, 2003). Til að einstaklingi með heilabilun líði sem best er mikilvægt fyrir umönnunaraðilann að hafa umhverfið rólegt, öruggt og fyrirsjáanlegt, tryggja að ekkert komi þar á óvart og forðast aðstæður sem hræða eða valda streitu. Ef einstaklingur verður órólegur eða ör þá er gott að reyna að beina athygli hans eitthvað annað, t.d. með samræðum eða tónlist. Það getur reynst róandi að fara inn á herbergið til að skoða gamlar myndir. Mikilvægt er að nota óhefðbundna meðferð ásamt lyfjameðferð því að lyfin ein og sér taka ekki endilega á rót vandans og hafa jafnvel aukaverkanir (Sadowsky, 2012). Lokaorð Kjarni málsins í faglegri umönnum fólks með heilabilun er dreginn saman í heiti ljóðsins „Komið nær og lítið á mig“ þar sem öldruð kona lýsir aðstæðum sínum á hjúkr- unarheimili og framkomu starfsfólks. Það þarf að gæta að högum manneskjunnar sjálfrar en ekki bara sjúkdóms- greiningu hennar eða líkamlegum þörfum. Um er að ræða faglega umönnun en ekki geymslustað fyrir þá sem ekki geta lengur séð um sig sjálfir. Starfsumhverfið þarf að vera gott og hvetjandi og mikilvægt að ofgera ekki starfsfólki.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.