Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2016, Blaðsíða 60
60 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Langvinn lungnateppa og aldraðir
2014). Eftir því sem sjúkdómurinn ágerist fara einkenni
eins og þyngsli fyrir brjósti, blámi á vörum og þreyta að
gera vart við sig (American Thoracic Society [ATS], 2015).
Mæði (dyspnea) er algengasta einkenni LLT, það einkenni
veldur hvað mestri vanlíðan og skerðingu á lífsgæðum
einstaklinga. Mæði er huglæg tilfinning og hefur verið
skilgreind sem óþægileg skynjun eða tilfinning um aukna
öndunarþörf eða óeðlilegt erfiði við öndun. Með framgangi
sjúkdóms eykst mæðin og kemst á það stig að erfitt er fyrir
einstaklinginn að sinna daglegum athöfnum.
Kvíði og þunglyndi er algengur fylgifiskur LLT ásamt
sektarkennd og söknuði vegna hluta sem einstaklingur
gat áður gert. Hræðsla við andnauð og köfnunartilfinning
leiðir til líkamlegra takmarkana og félagslegrar einangr-
unar. Sjúklingurinn ræðir þessa líðan sína sjaldnast við
heilbrigðisstarfsólk og túlkar einkenni sín oft sem eðlilegan
hlut af sjúkdómi sínum. Á þetta sér í lagi við aldrað fólk
með LLT. Því finnst að heilbrigðisstarfsólk leggi aðaláherslu
á starfsgetu lungnanna og telur að lítið sé hægt að gera
til að bæta líðan þess og virkni í daglegu lífi (Habraken
o.fl., 2008). Meðferð þessara skjólstæðinga ætti fyrst og
fremst að beinast að þeim einkennum sem þeir sjálfir telja
vera mest hamlandi í daglegu lífi og veldur þeim mestri
skerðingu og vanlíðan.
Meðferðarúrræði
Eins og áður hefur komið fram er langvinn lungnateppa
ólæknandi en hana er hægt að fyrirbyggja og meðhöndla
einkenni. Meðferð LLT felst fyrst og fremst í að bæta líðan
einstaklingsins, hindra versnun sjúkdómsins og koma í veg
fyrir ótímabæran dauða, (Tabloski, 2014). Það næst með
því að draga úr áhættuþáttum á borð við reykingar og aðra
mengunarvalda ásamt því að meðhöndla þau einkenni sem
eru til staðar. Sýnt hefur verið fram á að meðferðarúrræði,
sem lúta að heilbrigðum lífsstíl, reykleysi, hreyfingu, hollri
næringu og réttri lyfjanotkun bæta líf og líðan þeirra sem
eru með LLT (Verbrugge o.fl, 2013). Mikilvægt er að hafa
einstaklinginn sjálfan og fjölskyldu hans með í ráðum
varðandi meðferð. Fræðsla, stuðningur og eftirfylgni er
því veigamikill þáttur í umönnun þessara skjólstæðinga.
Nauðsynlegt er að viðhafa gagnkvæm samskipti þar
sem einstaklingnum og fjölskyldu hans er sinnt á þeirra
forsendum og virðing er borin fyrir upplifun þeirra og
reynsluheimi. Sýnt hefur verið fram á að sérhæfð hjúkr-
unarþjónusta, þar sem áhersla er lögð á samvinnu við
einstaklinginn og samþættingu þjónustu, auka lífsgæði
sjúklinga með LLT og fjölskyldna þeirra. Einkenni kvíða og
þunglyndis minnkuðu, næringarástand batnaði og síðast
en ekki síst dró úr einkennum versnunar og bráðainnlögn-
um á sjúkrahús fækkaði (Ingadottir og Jonsdottir, 2010)
Þeim sem fá fræðslu um sjúkdóm sinn og leiðir til að
takast á við hann finnst þeir hafa betri stjórn á ástandi
sínu (GOLD, 2015). Mikilvægt er að flýta sér hægt í allri
umönnun, gefa sér tíma og nauðsynlegt getur verið að
skipa verkefnum niður í minni einingar.
Að forðast að sjúkdómurinn versni
Versnun (exacerbation) langvinnrar lungnateppu hefur
verið skilgreind sem versnun á öndunarfæraeinkennum sem
kalla á breytingu á lyfjagjöf (GOLD, 2015). Eftir því sem
sjúkdómurinn ágerist aukast líkur á versnun og eru aldraðir
í meiri hættu en þeir sem yngri eru. Versnun leiðir til meiri
skerðingar á lungnastarfsemi og eykur líkur á öndunarbilun.
Versnun getur því orðið lífshættulegt ástand sem getur
leitt til dauða (Liao o.fl., 2015). Mikilvægt er því að þekkja
einkenni versnunar til að bregðast fljótt við og minnka líkur
á varanlegum skaða. Aukin slímframleiðsla og uppgangur
eru oftast fyrstu merki versnunar. Uppgangur breytir um
lit, verður gul- eða grænleitari og jafnvel blóðlitaður. Mæði
og andþyngsli aukast, breyting verður á lífsmörkum og
litarhætti einstaklingsins. Skerðing getur orðið á vitrænni
starfsemi, pirringur og eirðarleysi aukast og það leiðir til
aukinnar hættu á óráði (COPDFoundation, 2012). Veiru- eða
bakteríusýkingar eru algengasta orsök þess að LLT versnar.
Árleg inflúensubólusetning ásamt lungnabólgubólusetningu
á 5 ára fresti er mikilvægur þáttur í forvörnum gegn versn-
un. Góður handþvottur fyrirbyggir smit ásamt því að forðast
þá sem eru veikir eða með kvef eða álíka einkenni (Tabloski,
2014). Rannsóknir hafa sýnt að slæm munnheilsa hefur
áhrif á almenna heilsu. Bakteríur í munni komast auðveld-
lega inn í blóðrás líkamans og hafa áhrif á önnur líffæri,
þar á meðal lungun. Góð munnhreinsun er því mikilvæg
í umönnun og til að forðast versnun. Lyfjanotkun hefur
áhrif á munnheilsu og er sveppasýking í kjölfar notkunar
innúðastera algeng. Til að komast hjá sveppaskýkingu er
mikilvægt að skola munninn vel með vatni eftir að lyf hafa
verið tekin inn. Aðrar aðferðir til að hindra sveppavöxt í
munni eru að nota munnskol, sem inniheldur alkóhól, taka
inn acidophilus-gerla eða borða jógurt (COPDFoundation,
2012).
Öndunaræfingar
Öndunaræfingar draga úr mæði og eru mikilvægur
þáttur í umönnun einstaklinga með LLT. Æfingarnar bæta
öndunina, það hægir á henni, hún verður dýpri og loftflæði
um lungun batnar (Buckholz og von Gunten, 2009). Mælt
er með þindaröndun og mótstöðuöndun (sjá töflu 2).
Notkun hjálpartækja, eins og pep-flautu eða maska, getur
TAFLA 2. Öndunaræfingar (COPDFoundation, 2012).
Þindaröndun Mótstöðuöndun
• Hafa góðan stuðning við
bakið
• Leggja aðra hönd á kvið og
hina á brjóstkassa
• Anda rólega inn um nefið,
finna kvið lyftast
• Brjóstkassi á að lyftast sem
minnst
• Anda rólega frá sér og finna
kvið síga til baka.
• Slaka á axlarvöðvum og hálsi
• Anda rólega inn um nefið,
telja 1, 2, 3
• Setja stút á varir
• Anda rólega frá sér, telja upp
að sex.