Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 65
DÆGRADVÖL 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
„ÞAÐ ER Í FÍNU LAGI AÐ KASTA Á MILLI
SÍN HUGMYNDUM – BARA EKKI Á MEÐAN
ÞÆR ERU EINGÖNGU Í HAUSNUM Á MANNI.”
„ÞAÐ STEYPTI SÉR NIÐUR ÖRN OG
KLÓFESTI GULLFISKINN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá sér einstaka
sinnum hamborgara og
franskar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GÆLUDÝR
ERU YNDI
SVO
SATT
JÓN, VIÐ HÖFUM
ÁKVEÐIÐ AÐ HALDA ÞÉR
VEGNA ÞESS AÐ Í HREYSUM ER
BARA AÐ FINNA ÓDÝRT DRASL!
HVÍ LEGG ÉG LÍF
MITT Í HÆTTU VIÐ AÐ
RÁÐAST Á KASTALA
OG RÆNA?
Sigurðardóttir, f. 1928, d. 2012.
Börn hans úr fyrra sambandi eru
Ingibjörg Elísa, f. 1999, og Ragnar
Otti, f. 2004.
Eiginmaður Helgu Sigrúnar var
Gunnlaugur Kristjánsson, f. 14.
janúar 1956, d. 2. september 2015,
forstjóri Hornsteins.
Dóttir Helgu Sigrúnar er Íris
Helgudóttir, f. 19. febrúar 1986,
hjúkrunarfræðinemi. Maki: Ómar
Freyr Sigurbjörnsson efnafræð-
ingur. Börn þeirra eru Helga Vala,
f. 2006, Dagur, f. 2013, Lóa Björk,
f. 2014, og Hlynur, f. 2016.
Alsystur Helgu Sigrúnar eru Jó-
hanna Dagrún, f. 1972, búsett í
Danmörku, Brynja Björk, f. 1975,
tannlæknir, búsett í Garðabæ, og
Harpa Lind, f. 1977, verslunareig-
andi, búsett í Garðabæ. Hálf-
systkin eru Margrét Ósk, f. 1961,
Árni Karl, f. 1963, Ingigerður, f.
1963, og Regína Rósa, f. 1968.
Foreldrar Helgu Sigrúnar eru
Anna Sigurðardóttir, starfsmaður
leikskóla, f. 5. ágúst 1945, og Hörð-
ur Karlsson, skrifstofumaður og
leigubílstjóri, f. 18. júlí 1942. Þau
fögnuðu 50 ára brúðkaupsafmæli
síðastliðið sumar.
Helga Sigrún Harðardóttir
Guðjón Pétursson
bóndi og sjómaður á Brunnastöðum
II á Vatnsleysuströnd
María Margrét Bjarnadóttir
húsfreyja í Mjóafi rði, S-Múl. og
Bolungarvík
Karl Sigurður Guðjónsson
rafvirkjameistari í Kefl avík
Hörður Karlsson
starfsmaður Veðurstofunnar
á Kefl avíkurfl ugvelli,
skrifstofumaður og leigubílstjóri
Steindór Sigurðsson sérleyfi shafi
og bæjarfulltrúi í Njarðvík, síðar
sveitarstjóri á Kópaskeri
Hanna María Karlsdóttir leikkona
Sigríður Dagrún Friðfi nnsdóttir
húsfreyja í Kefl avík, klæðskeri og kjólameistari
Friðfi nnur Sigurður Þórðarson
bóndi á Kjaransstöðum
Guðrún Jóhanna Jónsdóttir
húsfreyja á Kjaransstöðum í Dýrafi rði
Elís Kjaran gerði veg milli Arnarfjarðar
og Dýrafjarðar, svokallaða Vesturgötu
Einar Baldvinsson
bóndi á Steinavöllum
Anna Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Steinavöllum í
Flókadal
Sigurður Anton Einarsson
mótoristi á Siglufi rði og
síðan bóndi á Fitjum
Helga Steindórsdóttir
húsfreyja á Fitjum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafi rði
Steindór Kristján Sigfússon
bóndi á Mælifelli og síðar í
Hamarsgerði
Margrét Helga Magnúsdóttir
húsfreyja í Hamarsgerði og síðar Nautabúi í Skagafi rði
Úr frændgarði Helgu Sigrúnar Harðardóttur
Anna Sigurðardóttir
leikskólastarfsmaður í Njarðvík
Vinkonur Helga Sigrún og
Theodóra S. Þorsteinsdóttir.
Ámánudag skrifaði DavíðHjálmar í Davíðshaga þetta
snjalla kvæði „Skammdegi“ í Leir-
inn:
Aular niður ærnum snjó hjá ysta hafi.
Ýtudrengir drjúgt þó skafi
Davíðshagi er á kafi.
Syrtir að og sól er bak við sjónrönd falin.
Mannkind er af myrkri galin,
máttfarin og sálarkalin.
Vond er tíðin, vængur frýs á val og brúsa.
Ýtar mega inni dúsa.
Einn brýst þó á milli húsa.
Gegnum bylinn gösla ég með glöðu sinni.
Fjölda þann sem festist inni
fóðra ég og þyrstum brynni,
gifti, skíri, gref þá dánu, græði sjúka,
helbláa og harða búka
hita þar til fer að rjúka.
Feta ég um fönn og breða flesta daga,
gæslu sinni, gái, laga.
Gott er því við Davíðshaga.
Pétur Stefánsson lýsir ástandinu:
Frónskan lýðinn fjötrar hér
ferleg tíð í landi.
Núna víða úti er
illur hríðarfjandi.
Veðrin gerast vond og hörð,
valda kvöl og pínum.
Arka þau um alla jörð
með ógnarkrafti sínum.
Gengur allt af göflum hér,
gjögta hús og bílar.
Norðanbálið afleitt er
sem enginn maður fílar.
Upp úr kl. sjö skrifaði Jón Giss-
urarson: „Nú er hér tveggja gráðu
frost og hæglætisveður, en spáð er
norðan stórhríð þegar á daginn líð-
ur. Ljósadýrðin í Skagafjarðarhér-
aði blasir enn við þegar þetta er rit-
að, enda ekki ennþá farið að birta.
Bráðlega mun líklega syrta í álinn
og ljósin hverfa“:
Enn er blíða úti hér
engin stormahrina.
Skagafjörður fagur er
fyrir stórhríðina.
Undir kvöldmat sagði hann: „Þá
er norðan stórhríðin brostin á.“
Þreytir lýði þjark og níð
þorrin blíða okkur hjá.
Nú er víða nöpur tíð
norðan hríðin brostin á.
Gústi Mar svaraði:
Skelfur jörð og skjögta tré
skafhríð blind í stróknum.
Riða hús og ramba sé
rafmagnslaust á Króknum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stórhríð í skammdeginu