Morgunblaðið - 12.12.2019, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019
SMÁRATORGI KRINGLAN GLERÁRTORGI LINDESIGN.IS
Íslensk
jólalína
25%
afsláttur
af íslensku
jólalínunni
MEÐ PÓSTINUMÁ ÖLL HEIMILIÁ LANDINU
JÓLABÆKLINGUR
Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
OPIÐ ALL
A
DAGA TIL
JÓLA FRÁ
10-19
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það má e.t.v. halda því fram að
veður þetta sé eins konar ættingi
Halaveðursins fræga – lægðin sú
var þó talsvert miklu dýpri en
þessi og veðurharkan trúlega meiri
– sömuleiðis skall það skyndilegar
á og menn höfðu engar veðurspár
til að styðjast við. En sameiginlegt
eiga þessi veður þó það að landið
austanvert slapp mun betur en
landið norðvestanvert – rétt eins
og nú. – Þá urðu símslit víða, en
raflínur voru nær engar til að
slitna – og engir bílar á ferð,“ seg-
ir Trausti Jónsson veðurfræðingur
um veðurofsann sem geisað hefur
á landinu í vikunni.
Trausti taldi ekki tímabært að
gera veðrið upp að fullu í gærdag
enda voru landsmenn enn að glíma
við afleiðingar þess.
„En þetta er nokkuð samsett
veður hvað vandræði varðar,“ seg-
ir hann. „Hiti var t.d. óheppilegur
vegna ísingarskilyrða og veðrið
kemur sjálfsagt til með að teljast
meðal þeirra verstu á seinni árum
hvað ísingartjón varðar. Úrkoma
virðist líka hafa verið með meira
móti – en hana er erfitt að mæla
þegar svona hvasst er.“
Trausti greindi frá því á blogg-
síðu sinni að veðrið skoraði ekki
mjög hátt á landsvísu þegar litið
væri á vindhraða eingöngu. Aftur
á móti hefðu ákveðin svæði orðið
illa úti og þar féllu met. „Það á
einkum við um Strandir og trúlega
austanverða Barðastrandarsýslu,
mikinn hluta Húnavatnssýslu, á
stöku stað á utanverðum Trölla-
skaga og á annesjum austur að
Rauðanúpi. Annað svæði sem varð
illa úti liggur til suðurs úr Húna-
vatnsýslunni, met virðist hafa ver-
ið sett á Þingvöllum og óvenju-
hvasst var sums staðar í
uppsveitum Árnessýslu. Sama á
við um Vestmannaeyjar, algeng-
ustu veður þar eru af austri, en
norðanveður af þessum styrk eru
ekki algeng þar í kaupstaðnum –
mælirinn þar fór þó ekki sérlega
hátt. Það gerði hins vegar hafn-
armælirinn við Básasker,“ segir
Trausti sem hafði ekki enn fengið
uppgjör að austan um miðjan dag í
gær.
„Þó að veður væri slæmt á Snæ-
fellsnesi var það alls ekki óvenju-
legt – mörg svona veður gerir þar
á hverju ári – sömuleiðis á Kjal-
arnesi og undir Hafnarfjalli.
Stutta svarið er því að veðrið sé
nokkuð óvenjulegt hvað ísingu
varðar og óvenjuleg veðurharka
varð um hluta landsins – á því
svæði þar sem rauð veðurviðvörun
hafði verið sett á. Við höfum þó
varla frétt enn af öllu tjóni – snjó-
flóð gætu t.d. hafa fallið fleiri en
við höfum af frétt og fleira fokið,“
segir Trausti Jónsson.
Óvenjuleg veðurharka
og tengsl við Halaveðrið
Vindhraði á landsvísu ekki mjög hár en met féllu þó víða
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Akureyri Mikið fannfergi var í höfuðstað Norðurlands í gærmorgun.
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Áhrifin sem veðurofsi þriðjudags
hafði á rafmagn í landinu undirstrika
mikilvægi þess að flutnings- og
dreifikerfi raforku sé eflt á lands-
vísu. Þetta segir Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, sem tekur þó
fram að veðrið hafi verið óvenjulegt.
Rafmagn sló út víða um land á
þriðjudag og miðvikudag, sérstak-
lega á landinu norðanverðu. Engar
rafmagnstruflanir urðu á höfuðborg-
arsvæðinu.
Þórdís telur að skilningur þeirra
sem búa á suðvesturhorninu gagn-
vart mikilvægi sterkra dreifikerfa
raforku sé takmarkaður.
„Ég myndi auðvitað vilja að það
væri ríkari sameiginlegur skilningur
á mikilvægi þess að flutnings- og
dreifikerfið okkar sé sterkt. Mér hef-
ur þótt skorta á skilning á landsvæð-
um sem búa við öflugra flutnings- og
dreifikerfi.“
Þórdís segir veður sem þetta ekki
daglegt brauð.
„Það tók út sterkar línur sem hafa
staðið af sér mörg óveður fram til
þessa. Hafandi sagt það þá finnst
mér að það sé ástæða til þess að und-
irstrika mikilvægi grundvallarinn-
viða í landinu og undirstrika sömu-
leiðis mikilvægi þess að þær
framkvæmdir sem þarf að fara í til
þess að byggja upp og treysta flutn-
ingskerfið þurfi að vera skilvirkar.“
Slíkar framkvæmdir segir Þórdís
að hafi ekki alltaf verið skilvirkar.
„Bæði flutnings- of dreifikerfin
hafa verið endurnýjuð mjög mikið á
undanförnum árum. Það er auðvitað
þannig að það eru margar mikilvæg-
ar framkvæmdir sem hafa tekið allt
of langan tíma vegna þess að leiðir til
að vinna þessar framkvæmdir eru
ekki nægilega skilvirkar.“
Fjarskiptasamband rofnaði víða
um land, aðallega vegna rafmagns-
leysis.
„Það er auðvitað algjörlega aug-
ljóst að raforku- og fjarskiptakerfi
snýst um þjóðaröryggi,“ segir Þór-
dís og bætir því við að umbætur á
flutnings- og dreifikerfinu séu vænt-
anlegar.
„Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar-
innar er lögð áhersla á að treysta
flutningskerfi raforku. Landsnet sér
um þær framkvæmdir og þær birt-
ast í kerfisáætlun. Við höfum nú þeg-
ar samþykkt þingsályktun um upp-
byggingu flutningskerfis raforku.
Við gerðum það í fyrsta sinn og það
er lögbundið fyrir Landsnet að taka
mið af þeim kerfisáætlunum, til að
mynda á Vestfjörðum og Norður-
landi. Gærdagurinn sýndi okkur
fram á mikilvægi þess.“
Þurfi að sýna ríkan skilning
Þórdís ítrekar að íbúar höfuðborg-
arsvæðisins þurfi að sýna löndum
sínum skilning.
„Við erum ein þjóð í þessu landi og
við sem samfélag þurfum að hafa rík-
an skilning á því að ástandið er mjög
mismunandi. Það er töluvert lakara
víða um land en á suðvesturhorninu
og íbúar þar þurfa að átta sig á því að
það er þjóðþrifamál að þetta kerfi sé
sterkt.“
Einar S. Einarsson, framkvæmda-
stjóri stjórnunarsviðs hjá Landsneti,
segir að rafmagnstruflanir hafi verið
sérstaklega margar á þriðjudag og í
gær. Erfiðlega hefur gengið að koma
rafmagni aftur á enda torvelt að at-
hafna sig í slæmu veðri.
Á Dalvík og Tröllaskaga hafði ver-
ið sérstaklega lengi rafmagnslaust
og farið að kólna hratt í húsum. Dal-
víkurlína sló út en fjöldi stæða brotn-
aði, um 20 talsins, og er gert ráð fyrir
því að það taki einhverja daga að
koma línunni aftur í gang, að sögn
upplýsingafulltrúa Landsnets.
Segir sterkt kerfi þjóðþrifamál
Þórdís Kolbrún segir umbætur á dreifikerfi raforku aðkallandi og á döfinni Höfuðborgarbúar sýna
löndum sínum takmarkaðan skilning, að sögn Þórdísar Kólnaði hratt í húsum vegna rafmagnsleysis
12:00 Trufl anir á Norðurland eystra
13:00 Bilun á Reykjaströnd
og Skaga að austan
13:00 Rafmagnslaust í Grýtubakkahr.
13:18 Rafmagnslaust á Sauðárkróki
og í nærsveitum
13:34 Rafmagnslaust á Dalvík
14:00 Bilun á Vatnsnesi
14:00 Rafmagnslaust á Þórshöfn
og í Þistilfi rði
14:59 Rafmagnslaust á sunnan-
verðum Vestfjörðum
15:00 Bilun í Svarfaðardal
15:00 Rafmagnslaust á Sauðárkróki
15:00 Rafm.laust í Hrútafi rði, Miðfi rði,
á Laugarbakka og Hvammstanga
16:00 Rafmagnslaust
á Svalbarðsströnd
17:00 Bilun í Hvalfi rði og Svínadal
19:00 Bilun í Langadal og Svínadal
20:00 Kísilverið á Bakka
rafmagnslaust
10:00 Bilun í Öxarfi rði milli
Núpa og Ekru
14:00 Rafmagnslaust á Tjörnesi
16:00 Trufl un á milli Hofsóss
og Brimness
20:00 Rafmagnslaust á Húsavík
og í nágrenni
Miðvikudagur 11. desember
00:00 Rafmagnslaust í Saurbæ
01:00 Rafmagnslaust í Hörgársveit
03:00 Bilun í Fjallabyggð
08:00 Bilun í Aðaldal/Kinn
11:12 Rafmagnslaust á Austurlandi
og Austfjörðum
11:12 Rafmagnslaust í Vopnafi rði
Rafmagnsleysi og trufl anir vegna óveðursins
Þriðjudagur 10. desember
Trufl anir á rafmagni í tímaröð, ekki tæmandi listi
H
e
im
ild
: L
a
n
d
sn
e
t
o
g
R
a
ri
k
Óveður á aðventu